Þetta er góð mynd með góða leikara, þessar myndir frá þessum tíma voru með gott atmó. Góðir ástralskir leikarar, frubyggja menning ástrala er einnig mjög áhugaverð.
Mig líkaði vil alla leikarana, sérstaklega The Rock og Jack Black, en þetta er voða gleymanleg mynd sem er ekkert lík fyrstu.hún þarf ekkert að vera lík fyrst en hún hefði bara getað verið betri.
Það fyrsta sem ég sá í þessari mynd var brot úr köngulóaatriðinu og svo þegar ég fékk hana á vidjó þá horfði ég hana aftur og aftur, þvílíkur gullmoli var þessi mynd og Robin Williams er sárt saknað.
Þessi mynd fyrir mig sem krakka var eitthvað hryllingsleg en samt góð.....þessi mynd fyrir mig sem fullorðinn mann var skrýtin, en góð. Að horfa á hana á ensku er spes þar sem hún virðist ske á Englandi en allir eru með bandarískan hreim og ef maður horfir á hana á íslensku þá er hún svakalega( liggur við letilega) illa talsett og krakkar eiga skilið betra. Það var gott að hún var talsett en syngjandi krókódíla myndin Frikki krókódíll var virkilega vel talsett og á gullhæðum hlið við þessari þegar kemur að íslenskri talsetningu, reynið betur næst. Allavega þvert á alla mína gagnrýni þá er þetta falleg mynd sem ég held að börn og fullorðnir kunna að meta.
Þessa sá ég sem pjakkur og elskaði en tístandi bangsar gætu fælt eldri áhorfendur. Byrjunin með Jaba the hött var góð og svo endirinn og endalokin á þessum myndum. Það er einnig athyglisvert hvernig þessar myndir urðu partur af vesturlandamenningu og heilluðu svo marga, mátturinn og hið góða sigraði var það sem heillaði flesta. Svarthöfði fær uppreisna æru....ef til vill.
Star wars 2 er góð geimvísindamynd, allt er flott og gott við hana ég hef ekkert slæmt að segja um þessa mynd og ég er engin Star wars aðdáandi. Ég sá fyrstu myndina og svo þessa og get eiginlega bara mælt með þessari en hún hefur elst en er samt góð. Gæti verið leiðinlegt fyrir suma að horfa á þessar gömlu.
Mér fanns og finnst þessi mynd vera æðisleg, ég sá brot úr myndinni 10undaátatug held eða allavega á vidjóleigum en svo svona byrjunina á fyrsta áratug. Mér fannst hún góð og allar þessar kampí myndir sem komu út á þessum tíma, messi er ekki beint alveg þannig en er með kampí konsept, ég gæti horft á þessa oft til viðbótar.EN...mér finnst hún hafa elst, það er kvikmyndaútlitð einnig, þessar myndir eru að fá svona 90s útlit því miður, þær eru ekki bara myndir eins og maður sagði. Allur söguþráður virðist líka vera eitthvað kjánó og þess háttar, minnir mann á gæjann sem kom úr holræsinu sem Branden Fraser lék og var fastur í 6jöttaáratug......þrátt fyrir allt það er þetta æðisleg mynd sem ég mæli með. Jim Carrey á sínu besta í þessari og Dumb og Dumber.
Mér finnst fyrsta betri en þessi er með meiri spennu og atriði sem nýr áhorfandi myndi vilja sjá. Þeir virkilega náðu góðum skotum í þessari og hún er ansi draugaleg. Mæli með.
Þetta er engin Titanic en hún er svo draugaleg, ég hef horft á hana svo oft að ég get ekki talið skiptin. Ég man eftir hulsteinu af Ringu með auganu og svo BNA hulstrinu af The Grudge en japanska Ju On hulstrið sá ég einu sinni í Laugarásvídeó ef ég man rétt og fannst hulstrið ansi draugó. Ég sá atriði hér og þar mitt um 2005-7 af þessari og japönsku Púls sem mér fannst frekar draugalegar. Þessi getur vekiðóhug þar sem engin von er til staðar eftir að viðkomandi fer inní húsið. Íslenskar hryllinsmyndir mættu alveg reyna að líkjast þessum. Allavega ég mæli með þessari, endilega kíkið á.
Ég beið út í rigningu fyrir utan Laugarásbíó í röð til þess að sjá þessa. Hín var æðisleg og jafnvlaut. Besta bíóupplifun sem ég hef aft, mæli endalaust með. Ég sá hana þegar hún kom út 2003, alveg mögnuð og tölvuleikurinn líka.
Ég hafði séð teiknimyndina sem kom út um 70 eitthvað og fannst þetta athyglisvert en ekkert svo, fjölskyldumeðlimir sáu hana og sögðu að hun væri góð og ekkert meirq. Ég sá þessa eftir á og fannst hún bara sæmileg en svakalega flott, sá hana ansi oft eftir á.
Þetta er svakalega indíleg mynd eða eins og þeir í kvikmyndaskóla byrjuðu bara að filma upp úr þurru. Hún er samt eins og svona mynd sem virðist bönnuð og þess háttar. Kannski varð hún grafin út af umræðuefni hennar þar sem allt svona er orðið allt of algengt en samt viðkvænt umræðuefni þar vestan. Mér fannst hún skemmtileg og ég get bara rætt og mælt með henni.
Þessa mynd sá ég bara einu sinni og mér fannst hún draumkennilega falleg. Ég væri alveg til að sjá hana aftir, endirinn var sérstaklega eins og draumur í skýjunum. Mæli með þessari.
Ég hafði ekki séð fyrstu myndina en ég man þegar hún kom út og ég vissi hvað hún fjallaði um en mér fannst hún virðast bara vera einsog þessar dæmigerðar myndir sem komu út þá. Eftir að ég sá þessa þá verð ég að sjá fyrstu, þetta var góð mynd, sá hana í Egilshöllinni þegar hún kom út.
Þetta er uppáhalds íslenska myndin mín og ég hef horft á hana dáldið oft og lesið bókina(ég mæli með bæði). Þessi mynd náði einhverjum töfrum sem aðrar íslenskar myndir náðu aldrei. Endilega gerið fleiri svona íslenskar myndir. Ég ætlaði að nefan leikara en mér fannst bara allir hafa staðið sig vel, þetta er æðisleg mynd og ég mæli með að þú horfir á hana strax.
Kannski væri bara gott að fá sér fisk.
Fyrir hvað margir landsmenn segja að þessi er besta íslenska myndin og margar endursýningar eru af henni og hún virðist hafa verið svakalega vel meðtekin af almenningi í stafrænu formi þá finnst mér ótrúlegt að engin álit hafa verið skrifuð um þessa. Fyrst þegar ég sá þessa þá hafði ég heyrt hitt og þetta um þessa mynd og brandara þegar einhver spyr um einhverja Stellu út í bæ og svo er sagt að hún er í orlofi og þess háttar, jafn vel frægt og Dúfnahólar 10 og þess háttar þá fannst mér þessi mynd fyrst þegar ég sá hana ekkert það góð og skildi alls ekkert æðið, mér fannst hún bara svona blah...en svo horfði ég á hana í stafrænu formi og fannst hún einhvern veginn betri, ég hló aldrei en gaman var að sjá hvernig nú allt var í gamla daga. Þetta er fín mynd en ekkert meira en það, mér fannst Sódóma Reykjavík betri en þessi er bara ókei. Væri alveg til í að horfa á hana aftur og eiga þessa mynd.
Þessi mynd gat verið svo miklu, miklu betri en hún varð. Við fygjum Ingaló sem er ekki einsog allar stelpur og er uppreistnargjörn og öðruvísi en aðrir á sínum slóðum og virðist vera bara töff. Þessi mynd er samt nánast eyðilögð með því að hunsa henni og gefa Skúla sem er leikinn af Ingvari allt sviðljósið og einhverri bæjar pólitík sem öllum er sama um og kemur henni Ingaló ekkert það mikið við. SPILLIR en fjölskylduaðili hennar deyr og það er höndlað eins og sápuóperu, þessu mynd byrjar vel og einsog flottar myndir um harðjaxla sem hún Ingaló virðist vera og svo er bara öllu kastað á eldinn með því að gefa Ingvari sviðljósið, svona á ekki að gera flotta mynd. Þetta er eins og ef Ripley í Alien 3 hefði verið sett á hliðina og öll myndin er svo um læknirinn...nei, nei og nei. Ég get ekki mælt með þessa útaf því, þessi má fá almennilega endurgerð.
Hún Sólveig lék samt Ingaló ansi vel.
26/09/2026
Ég held að álitin fyrir neðan mitt gætu verið dáldið gömul en ég vil segja að jú þetta er góð mynd sem ég hef horft á nokkrum sinnum, þessi gamalmenni á þeim tíma voru þessir íslendingar sem töluðu oftast bara íslensku og mundu eftir hvernig allt var fyrir heimstyrjöldina síðari og örugglega fyrstu líka, þessi tegund af íslendingi er nánast horfin og öll gamalmenninn í dag eru af Bítla kynslóðinni, geta flest talað ensku og eru flest ekki svona hreiníslensk(í hugafari) einsog þessi horfna eða hverfandi kynslóð(sumir eru enn lifandi) var og er. Þess vegna er þessi mynd svo merkileg þar sem þessi kynslóð sem var frekar út á landi og Reykjavík sem ekta borg var þeim sem óskiljanleg hugsun að þrátt fyrir ég segi að þessi kynslóð var svona ,,ekta íslensk\'\' þá er hið kaldhæðnislega það að hún fæddist samt í íslenskri Danmörku og lést svo á óskiljanlegu Íslandi. Ég mæli með þessari mynd en því miður hefur hún slæmt orðspor þar sem eftir að menn sáu að miklar fúlgur gætu verið aflaðir með einfaldri íslenskri ,,náttúru mynd\'\' þá var gert fullt af svona íslenskunáttúruklámi sem eru myndir sem ég vona að hætta í framleiðslu og hverfa um stund bara fyr en síðar því slíkar myndir eru oftast ekkert það góðar, ímyndiði ykkur ef flestar BNA myndir væru bara Mikligljúfur og gangandi karl, nei við þurfum alltaf góða sögu í mynd og spennu.
Þessi mynd fjallar um það að stundum verður maður að sleppa fortíðinni til þess að geta sætt sig við núið.
Ég var með frátekin nánast VIP sæti á þessa mynd og ef þessir drengir sem voru í myndinni lesa þetta þá segi ég ,,Vel gert strákar, þetta var velt gert hjá ykkur\'\' sem er alveg satt þeir stóðu sig vel og svo var rappað eftir sýninguna, ég held að þessir drengir eiga ágætis framtíð í vændum ef þeir halda þessu áfram. Ormarnir voru svakalega flottir fyrir íslenska mynd og ég væri til í að sjá meiri svona myndir en eina gagnrýnin mín var sú að það þyrfti ekki að vera endurtaka hvert einasta orð sem engin annar sagði. Til dæmis: ,, Ég er með battríið\'\' og svarið ,,Ah þú ert með battríið\'\', einu sinnu og tvisvar ókei það sleppur en þetta var nánast öll myndin, ég vona að þeir sleppa hváunum sínum við nærstu mynd. Allavega vel gerð mynd og fleiri svona með meira hösum og blóði væru vel þægðar, vel gert strákar.
Ég sá þessa fyrst svone í kringum 2005-2006 og mér fannst hún dáldið leiðinleg en ég vissi að hún var merkileg fyrir hryllingsmyndir. Á þessum tíma á netinu var mikið ,,lore\'\' á netinu um Michael Myers Vs Pinead úr hellraiser og það var farið i alvarlegt tal um það eftir Freddy vs Jason en ekkert varð að því...ég held sem betur fer. Þessi Kvikmynd samt tekur það sem var gert úr Black Christmas og breytir því aðeins þar sem við vitum strax hver morðinginn er: Lítill pjakkur og við vitum þegar hann verður eldri þá mun hann bara halda áfram morðæði sínu eftir að hann sleppur af geðveikrahælinu. Þetta er mynd núna sem ég tek nánast sem ritúal og horfi á hana þegar kemur að hrekkjavöku sem var eitthvað sem ég vandist þar sem í BNA voru þessi og númer 2 alltaf sýnd á þeim tíma, Sci Fi chanel var líka með allskonar aðrar myndir til sýnis á þessum tíma en svo ég fer ekki í útúrdúra þá mæli ég með þessari mynd og að allir ættu að sjá hana að minnsta lagi einu sinni á ævinni. Ræðan hans Loomis í myndinni er það besta við hana, liggur á að vera svipað og ræða skipstjórans í Jaws 1 um auga hákarlsins.
Þegar þessi kom út þá var hún eins og nýtt blóð í dælu hryllingsmynda. Þessi er aðeins öðruvísi, hryllingsleg og helst spennuynd. Hún er mjög skemmtileg og ég mæli með henni. Ég sá hana þó aðeins eftir á og hún kom út og vissi konseptið og mér fannst hún samt góð.
Þetta er ansi hrollvekjandi mynd sem er meiri sönn saga en margar sem skella slíkt sem stimpil á sig. Engin spillir frá mér ég geta bara eindregið mælt með þessari, horfðu á hana strax einn heima.
Það var Valentínusar dagur og allir staður voru uppteknir, ég pantaði pízzu á Dominos og skellti mér svo í Laugarásbíó á eitt af þeirri mest mögnuðu mynd sem hefur verið gerð. Ég hafði séð aðeins úr hinni upprunalegu sem er talin af mörgum fyrsta hryllingsmyndin og var höfundarréttabrot. Þessi mynd á hinn bóginn lætur okkur upplifa þessa sígildu Vampíru ekki sem maður í bland við leðurblöku heldur frekar við rottu sem hefur miklu meiri tengingu við þann hrylling sem Evrópubúar eru komnir af þegar talað er um Svartadauða. Þessi kvikmynd er falleg, listræn en aldrei leiðinleg og magnað sjónaspil.
Ég sá þessa 2019 í faraldrinum, sóttvkí var um allar trissur í útlöndum og ég var svo að horfa á menn í vita sem voru sjálfir komnir í einangrunar sóttkví. Ég hafði heyrt um hana og beið með eftirvænt að geta séð hana þegar ég væri kominn heim til Íslands frá fríi mínu erlendis. Ég endaði á því að horfa á hana heima og kolféll fyrir henni. Það er algjör synd að menn í denn ritskoðuðu fullt af þessum eldri myndum sem voru í þessum stíl, fólk hefur alltaf verið fólk og slíkar tapaðar myndir út af þessari sensörun er ekkert annað en bara hrikarlegt. Ég elskaði kvikmyndina og horfði á hana ansi oft get ég sagt. Þessi eyjamenning hjá Nova Scotia og Nýfundnalandi er jú skosk-írsk blandað við þetta Norður Ameríska, ansi flott. Mállýskan í myndinni er einnig svo heillandi og falleg( að mínu mati) að maður gæti hlustað í heilan dag á menn sem tala svona.
Þetta er besti leikur Robert Pattinsons að mínum dómi að dæma og mæli með þessari mynd. William Dafoe var einnig magnaður.
Ég virkilega vorkenni þeim mönnum í denn sem hokruðu og tóruðust í þessu starfi.
Þetta er eitt af mínum uppáhalds af þjóðsöguhryllingssnillingnum sjálfum, hann Robert Eggers, ég spilli ekkert um hana en við fylgjum öfga Púrítana-fjölskyldu sem er bannsungin fyrir utan samfélagið og út í óbyggðir þar sem guðleysi virðist liggja allt um kring.
Þetta er geggjuð mynd sem ég sá nokkrum árum eftir hún kom út en ég man ekkert mikið eftir að hún var í bíó en hún var það örugglega....ég mæli með þessari.
Þessi kvikmynd er nútíma þjóðsaga í öllum sínum ljóma, það var mjöööög mikið talað um þessa þegar ég var pjakkur og setningin ,,I see dead people\'\' var orðið heimsfrægur kviður eftir ekki svo stuttu eftir hún kom út og er í poppmenningu útum allt. Þetta er eitt af bestu myndum Bruce Willis og drengur er einnig ótvíræður í þessu hlutverki.
Ef þú hefur ekki séð hana þá mæli ég að þú gerir það og ekki skoða neitt um hana það er best þannig, ég vissu allt um myndina nema endann þegar ég sá hana fyrst, mæli með.
Þessi var frekar vel auglýst Í BNA þegar ég bjó þar og þessi varð svo ein af mínum uppáhalds, árið 2010 horfði ég á þessa ansi oft og man vel eftir að hafa horft á hana fyrst í stofu, hún var mögnuð. Þessar Bandarískar myndir sem gerast í norður fylkunum eru alltaf með svona Transatlatískt atmó með þetta tal sem segir ,,See!\'\' og mikil evrópsk innflytjenda menning stemmar þar að, það er bara eitthvað svo æðislegt við það, endilega fleiri svona myndir. Allavega ég hef ekki enn svo er lesið bókina en ég hef það sem markmið, myndin sjálf var æðisleg en getur verið of augljós fyrir nútímaáhorfendur þrátt fyrir að mér finnst eins og þessi mynd kom út fyrir ansi stuttu, tíminn flýgur.
Lenardo er æðislegur í myndinni, þetta er tímabilið þegar hann var í þessum jakkafata-myndum sínum með Gatsby á svipuðu leyti og svo náði þetta hámarki sínu í Wolf of Wallstreet.
Þetta er skemmtileg B myn með flott skrímsli og skemmtilega leikara, einn lék Benny í The Mummy en hér er hann góði karlinn. Ég mæli með þessari hún var frekar vinsæl þegar maður var pjakkur í gorið í myndinni fannst manni ansi ógeðslegt þá. Horðu á þessa og Anaconda saman. Þegar maður var yngri þá hélt maður að þetta var fyrsta myndin af Tremors seríunni frá endanum að dæma, maður myndi alltaf raða þeim hlið við hlið á vidjóleigunni.
Þetta er skrítin, óþægileg en falleg mynd. Náttúran þarna í Norður Ameríku er einstök og Bandaríkjamenn eru með stórt og fallegt land. Viggo Mortensen er hið skemmtilegasta við þessa mynd en flestir karakterarnir og hann líka eru með eitthvað sem maðir líkar ekki við, það er eins og engin er með öllum mjalla í myndinni. Pabbinn í myndinni er með þetta klassíska Bandaríska sveitamanna úlit.
Ég sýndi einhverjum þessa mynd og fattaði að hún er erfið að mæla með en ef þú hefur áhuga á spes myndum þá horfðu á þessa.
Þetta jú er algjör B mynd eins og sagt var áður en B mynd sem hefði átt að hafa almennilegt framhald þar sem skepnurnar voru magnaðar í útliti. Ég sá þessa í bíó þegar hún kom út í Bandaríkjunum og mér fannst hún bara ansi góð snakk og popp mynd. Mæli með.
Þessi mynd var verulega góð fyrir Friday mynd þar sem hinir voru á mörkum að vera hrikalegar. Þessi er í anda fyrstu fjóru og er eins og allar þær til samans. Þeir stóðu sig mjög vel með þessa og framhöld voru ábótavön en útaf höfundaréttarrjóli þá varð ekkert úr því, framhald myndi bera í bætiflál við slíkt.
Þessi mynd er hallærisleg að öllu leyti og ég man eftir stiklunum þegar hún kom út og hún var sýnd sem hið flottasta flotta sem til var, hún var svona Resident Evil mynd fyrir það. Ef þeir hefði haldið áfram með svona ofur Jason þá hefði það verið ansi athyglisvert.
Þetta er Halloween 3 season of the witch fyrir Friday the 13th mynda. Spillilaust get ég sagt að myndin fjallar um að Jason virðist kominn aftur á kreik og ætlar að hefna sín á Tommy Jarvis.
SPILLIR: Jason var ekki í myndinni og það veitti öllum vonbrigðum í denn og til dagsins i dag þegar aðdáendur fatta að hann var ekki í myndinni. Mér fannst þessi mynd bara fín og sæmileg og þessi var enn í anda fyrstu fjóra, eftir þessa breyta allar myndirnar um tempó.
Þessar myndir tóku algjöra 360 með árunum, það er nú alveg hægt að horfa á þessa og vita ekkert um hinar. Við erum með svalan lögreglumann sem andinn hans Jasons nær að taka yfir og aðra sem blasa við veg hans. Myndin jú fær það sem hún lofar með titlinum en ekkert meira en það. Sum atriðin eru dáldið ógeðsleg þegar fólk étur hjartað hans Jasons en hvað meira var hægt að gera við þennan karakter...þessi er sæmileg þegar kemur að svona myndum. Endirinn samt(spillir) með hanska hans Freddys var flottur, örugglega það besta við myndina. Hryllingsaðdáendur í denn horfðu örugglega á það atriði í endalausri endurtöku.
Í æsku horfði ég á þessa ansi oft og var alltaf jafn vonsvikinn að myndir gerist ekki öll í New York, Camp Crystal Lake er núna allt í einu snar breytt og með leið að hafi( maður verður að kingja þeirri vitleysu fyrst) sem var skrýtið. Þessi mynd er eiginlega endirinn af þessari tegund af afturgöngu Jason sem byrjaðu í Jason Lives þar sem Jason goes to hell er bara mynd sem er sér á bát. Þessi var sæmileg en ekkert meira en það.
Þetta er óopinbera versus-mynd Jasons og Carrie. Þetta er fín mynd og Jason er örugglega með besta útlitið í þessari. Leikarinn Kane Hodder semleikur Jason stóð sig vissulega vel.....en hve oft þarf að drepa hann vestlings Jason?
Þetta er sæmileg mynd, engin Titanic en hún er létt afþreying.
Ég vildi bara aðeins fá að tala um þessa. Þessi hefur lengi verið í uppáhaldi hjá Jason aðdáendum þar sem eftir 5immtu sem brást mörgum með jasonleysi þar sem annar var morðinginn þá kemur hann til baka í þessari sem ódauðleg afturganga. Gaurinn sem leikur Tommy Jarvis stóð sig ansi vel og leikur harðannagna með áfallstreituröskun þar sem hann yrði óvart að endurvekja Jason með því að reyna vera viss um lát hans. Þetta er skemmtileg mynd sem tekur sig ekki alvarlega og sýnir Jason í sínu eigin 007 skotmarkabyrjunarsenu. Ég mæli alveg með þessar, bara skemmtileg súr mynd.
Ókei, þessi mynd er tæknilega endirinn á hinum upprunalega fjórleik en á meðan svona kvikmyndaflokkur þénar svo mikið þá getur engin drepið illmennið...en þetta ER endirinn þar sem upprunalega myndin byrjaði, allt eftir á verður bara hallærislega ótrúlegt og hin mesta fantasía. Það er ein fyndið atriði í myndinni þegar Jason ræðst á einn og við heyrum ,,Aaah hann er að drepa mig! Hann er að drepa mig!\'\' svakalega hallærislegt og ég veit ekki alveg hvað var verið að spá með það en það var fyndið. Corey Feldman var alltaf skemmtilegur í den og stóð sig vel í þessari.
Hérna fáum við mynd í slæmu 3D þar sem Jason fær loksins hokkígrímu sína frægu. Þessir er góð, sumir kalla hana hina bestu, mér fannst hún bara sæmilega góð. Horfið á þessa ef þið viljið klára fjórleikinn.
Þetta er fyrsta Jason myndin í raun, mér fannst þessar fyrstu tvær bestar þar sem við raunverulega erum enn með Mrs.Voorhees illmennið að einhverju leyti og suma af bæjarbúum fyrstu. Þessi er góð, slægju-formúlan var að taka sín fyrstu skref og allir stóðu sig ansi vel í því. Mæli með þessari helst fyrir hryllingsaðdáendur.
Mér fannst þessi alltaf skemmtilegust hún er svo atmó með skóglendið, lækin og smábæjarlífið. Ég hafði oft farið gegnum Jersey fylkið og þessi tré eru eins og endalaus veggur svo karakterarnir i myndinni eiga ekki séns með óðmennið í eftirdraginu í þeirri mörk. Ég sá þessa fyrst í Bandaríkjunum og hún hefur alltaf verið með mér síðan. Það er nánast smekksatriði þegar eitthvað endar vel eða ekki en mér fannst hún góð. Hún leikur með sjónarhorn morðingjans sem hún tók frá Halloween 1.
Þessi var ansi fræg í denn og ég horfði á hana oft, hefði verið gott ef fleiri svona myndir hefðu verið gerðar en þessi var voða svalt flopp. Þessi hefði samt átt að vera algjör fullorðinsmynd að mínu mati. Helstu gagnrýni mín með þessari var að mér fannst hún enda of skjótt, hefði verið betri sem mun lengri mynd. Hún var einnig talsett á íslensku, ég hefði alveg verið til í að sjá hana þannig.
Ég hafði lesið Illíads- og Ódysseifskviðu fyrir mörgum árum og Eneasarkviðu sem Hollywood mætti alveg byrja að kvikmynda í nútímamynd en þessi mynd er Amerísk Ódysseifskviða og stendur sig ansi vel sem þannig mynd. Þessi mynd er Amerísk túlkun á Ódysseifskviðu og mun standa sem athyglisverð mynd í kvikmyndasögunni. Umfjöllunin um þessa mynd áður en hún var komin út var leiðinleg og það var augljóslega fullt af fólki að gagnrýna hana sem hafði aldrei lesið kviðuna sjálfa. Það gagnrýndu margir myndina útaf það var hörundsdökkt fólk í henni, ekki mundi ég eftir svipaðri mikilli gagnrýni sem var höfð um Gladiator 1. Söguhetjan var ekkert meiri grikki í útliti en hinir EN ÞAÐ ER Í LAGI! Þetta er BÍÓMYND! Geggjaðslega flott bíómynd sem ég mæli með að þú horfir á. Þetta er bandarísk-Ódysseifskviða gerð af Bandaríkjamönnum, njóttu lífsins og hafðu gaman af þessari mynd. Hið eina sem ég var helst leiður með var að ekki var haft atriðið þegar goðið kemur til jarðar og stoppar Ódysseif og fjölskyldur biðlana frá því að berjast, þar sem augun á goðinu eru lýst með nánast gegnsæum glampa. Hefði verið gaman að sjá hvernig þeir hefðu gert það.
Ég hef samt alla trú að kvikmyndaáhugafólk leyfir sér ekki að detta í gildru nöldurseggjanna og tautarana sem hata allt í núinu og elska gleymda tíma sem voru aldrei til. Lífið er fallegt og gott svo skeltu þér í bíó eða streymisveitu og horfðu á þessa.
Þetta er eitt af þeim bestu kvikmyndum sem hefur verið gerð. Hún er með slæmt orðspor en hún er um að hið góða sigrar alltaf hið illa. Þetta er falleg mynd og ég mæli með henni fyrir alla, horfðu á hana einn í myrkrinu heima hjá þér.
Byrjunin í Írak var svo falleg og Írak virðist vera mjög athyglisvert og fallegt land.
Horfðu bara á þessa og númer 3, eða kannski bara þessa. Mæli samt með númer 3.
Ég er nú alveg orðlaus að engin álit hafa verið skrifuð um þessa mynd.....ÞVÍ HÚN ER MÖGNUÐ..
Höfundurinn Clive Barker sem gerði Hellraiser lét kvikmynda gera aðra sögu sína og þessi er alveg mögnuð. Tony Todd er geggjaður sem Candyman og Virginia Madsen stendur sig einnig vel í sínu hlutverki.
Ef þú hefur ekki séð hana þá verðurðu að gera það STRAX.
Ég fékk þessa í gjöf sem pjakkur í 2 diska setti þar sem unguárin var diskur eitt og fullorðinsárin diskur 2. Mér fannst og finnst fyrstur partur mun betri og þetta 6ttaáratugatímabil er ansi vel náð. Derry flottur draugabær þar sem skepnan ÞAÐ býr og etur alla eftir áratuga tímabil. Þetta er gott efni og ég mæli með öll IT efni, nýjustu myndirnar voru góðar og þættirnir líka.
Endilega tékkið á þessar kósý morgun með fjölskyldunni eða ein sér.
Þessar Exorcist myndir eru með svakalega slæm orðspor en 1 og 3 eru með einhverjan boðskap.
Í þessari mynd er lögreglumaður að berjast við öfl sem hann virðist ekki ráða við en myndin eru miklu frekar um vináttu í þessu móki og hvernig vináttan kemst í gegnum áreynslunar.
Ég mæli með Exorcist 3, leikararnir standa sig frábærlega vel en versta atriðið er skæruatriðið, ef þú veist þá veistu.
Mér fannst mjög gaman að horfa á þessa þegar maður var pjakkur og hún er enn skemmtileg þó að margir þoldu hana ekki. Hún er tæknilega séð endirinn á hryllings Chucky áður en að þessar myndir urðu grínmyndir, við erum ekki með strákinn sem lék Andy Barclay fyrstu 2 myndirnar heldur fylgjum við öðrum leikara sem leikur Andy...og honum gekk bara frekar vel.
Ég mæli alveg með þessari, hún sýnir líka hvernig tíundaráratugurinn var við hornið og myndir voru sífelt að reyna mörkin...sem betur fer svo nútíma kvikmyndalist getur tjáð sig almennilega.
Þegar þú ert yngri þá viltu sjá meir af Chucky og þú færð það með þessari mynd. Þetta er voða gott framhald og margar flottar véltæknibrellur eru til staðar. Þessi mynd gerir allt en öfgafyllri en fyrsta mynd, með meira allt og hún stendur sig vel. Það var örugglega voða flott að sjá þessa í bíó þegar hún kom út.
Þetta er einnig sú mynd þegar dúkkan byrjaði að sýna sína kímnisgáfu.
Þessi fyrsta var svo góð og ólík hinum. Þetta var eitt af fyrstu myndunum sem ég sá eftir að ég flutti erlendis og mér fannst hún mjög góð. Borgin Chicago sem er svo mögnuð í útliti hliðina á Reykjavík með sína skýjakljúfa er svo flott í þesasri mynd og svo jólaleg. Allavega mér fannst atriðin fyrir morðæðið hans Chucky vera skemmtulegust og leikkonan Catherine Hicks sem leikur Karen Barclay heldur þessari mynd upp á herðum sér, einnig var leikarinn Chris Sarandon nokkur góður sem löggan en ekki á stigi hennar Catherines. Þetta er að mínu mati besta Chucky myndin en sumir myndu frekar segja besta Child\'s Play myndin, hún er með almennilegan hrylling sem hinar sem komu eftir á náðu ekki( þá er ég helst að tala um til fjórðu).
Þetta er mjög góð hryllingsmynd að mínu mati og ég mæli með þessari flottu mynd.
Þessi var svakalega vinsæl á Vellinum í denn í Kefló, ég man eftir að hafa séð þessa virst 1998 eða 1999 mér fannst hún frekar góð á þeim tíma þar sem Tekken 3 var að mökk rústa öðrum leikum, ég held að ég hafi ekki þekkt eina manneskju sem var af x-kynslóðinni og yngri sem hafði ekki spilað þann leik.
Þessi mynd er þó ágætist skemmtun, ég veit að teikningarnar eru ekki það flottar hliðina á nútíma anime en hún er samt nokkuð grýpandi með sín spennuatriði. Ég mæli að ef þú ætlar að horfa á Tekken mynd (og flestar eru ekki þekktar fyrir að vera góðar) þá ættirðu að kíkja á þessa.
Ég horfði örugglega á þessa mynd og Goonies 100sinnum sem krakki, þessi mynd sem átti ekki að vera jólamynd en varð það svo fyrir marga. Þetta er æðisleg mynd og ég mæli eindregið með þessari. Ég sjálfur sem pjakkur horfði á þessa og númer 2 aftur og aftur og spilaði Gameboy leikinn líka, ég mæli með þessari fyrir alla. Einnig verð ég að nefna það að aðalleikarinn í myndinni Zack Galligan er Íslandsvinur og kom til Íslands 1980 eitthvað til þess að dæma í fegurðardrottningarkeppni og Davíð Oddsson heitin var þar einnig til staðar, það væri gaman að heyra sögur af því frá einhverjum.
Allavega horfði á þessa við fyrsta tækifæri, verið sæl.
Þetta er svo góð mynd, ef þú veist ekkert um hana þá endilega kenntu þér fyrir hana. Ég man þegar ég bjó erlendis á ungdómsárunum og mér var sýnd þessi mynd af einum mannis sem útskýrði hana á þennan máta: ,,Hún er um gangster sem betur bætur kjör sín með að stúdera list lífsins við slæm kjör og nær sig úr þeim\'\', maðurinn var með sína eigin túlkun á myndinni....þetta er geggjuð mynd, tékkið á henni.
Ég sá þessa mynd á spólu eftir að hún kom á leigu og ég horfði á hana ansi oft, tímaferðamaðurinn sem missti ást lífsins virðist ekki geta sætt sig við orðinn hlut og fær að kenna á því. Þessi mynd sýnir hve merkilegt er að sætta sig við heiminn sem hefur alla sína kosti og galla annars finnur maður aldrei gleðina. Ég væri nú alveg til í að lesa bókina.
Ég hefði vilja vita hvað þessi hét á íslensku þar sem ég man alls ekki eftir þessum titli, þessi mynd var voða vinsæl í denn en hvarf svo alveg af yfirborði jarðar. Við sjáum örugglega besta atriði kvikmyndasögunnar þegar kemur að því að láta morgunkorgn líta ansi vel út. Lokaatriðið með illmenninu og krákunum er líka mjög eftirminnilegt. Sýn mætti alveg sýna þessa með íslensku tali.
Áður en að hafa séð þessa þá hafði ég heyrt að hún væri svakalega erfiðs viðhorfs, ég sá hana og skildi það á engan hátt. Þessi mynd er dáldið eins og kvikmyndin The Patriot þegar Mel Gibson hefnir sín fyrir fjölskylduna en þessi mynd er meira eins og Mel Gibson hefði strax farið í sjokk eftir fyrstu hefndina en þessi mynd er geggjuð. Þetta tímabilþegar landnám Breta var í fullu gangi þarna sunnan var greinilega tímabil mikillar óöldu og allir sem voru ekki efst í efnishaglega pýmamídanum urðu að bráð samfélagsins. Næturgalinn er góð mynd sem ég væri alveg til í að eiga og sýna öðrum. Þetta er falleg mynd með fallegum skotum í hryllilegum heimi sem betur fer hefur skánað.
Þetta er eitt af þeim bestu myndum sem þú munt sjá, þessi kvikmynd var mikið menningarfyrirbæri þar sem fáar kvikmyndir hafa náð að heilla jafnmikin fjölda af fólki og þessi. Allir þessir leikarar upp á sínu besta, mæli með þessari ef þú fyrir einhverja ástæðu hefur ekki séð þessa.
Úfff, hvað maður man eftir þessari, ég horfði á hana aftur fyrir einhverjum árum og fannst hún enn góð. Kevin Bacon stendur sig alltaf vel og framkoma hans í þessari mynd sem þráhyggjufullur vísindamaður og svo ósýnilegt illmenni var gaman að horfa á og svo leiðinlegt að leikari sem maður vill að sé góði karlinn verður svo hinn illi en hann stóð sig vel í þessari.
Þessi mynd var mikið umræðuefni krakka árið 2000 og ég man vel eftir auglýsingum af henni og henni í Myndablaðinu og svo spjall um hana af öðrum sem maður þekkti. Ég mæli með þessari.
Skrýtin en ágætis íslensk ruglsmynd, mér fannst þessi bara nokkuð góð. Þetta er algjör tilraunamynd og er frekar svona samsetning af alskonar fólki og sögum. Mæli með.
Þessi mynd er með dálítinn sess hjá mér þar sem ég sá hana þegar ég bjó erlendis og að heyra íslensku og sjá Ísland í þessari mynd fannst mér ansi flott þar sem sérstaklega fyrir svona 22 árum þá heyrði maður og sá Ísland aldrei í erlendri mynd og bara heyrði ekkert um Ísland erlendis. Leikararnir stóðu sig vel og skrímslið var flott og fyrir einhverja óskiljalega ástæðu var frekar frá Vesturheimi en Íslandi. Tónlistavalið í myndinni var frábrugðið öðrum myndum, dáldið skrítið en þægilegt. Viss þunglyndi ríkir í þessari mynd en það er hugmyndin þar sem skrímslið sjálft í myndinni er þunglynt.
Ég mæli með þessari, hún er spes en alveg fín mynd.
Þessi mynd hefði getað verið miklu betri. Það er verið að sýna þessa svokölluðu villinga sem eru hinir mestu dópistar og lúðar sem var eitthvað í tísku í íslenskri kvikmyndagerð vil aldamótin einsog kvikmyndagerðamenn voru að reyna að sanna fyrir kollegum sínum erlendis að við lásum ekki bara bækur og borðuðum konfekt. Allavega myndin, hún gerist í Reykjavík og sum atriði eru þarna í Breiðholtinu, þeir máttu alveg hafa tekið meira upp í hverfinu úti, ekki bara innanum veggi íbúða og þegar kemur að karektunum þá eru allir svona dæmigerðir íslenskir lúðar sem halda sig svala en eru það ekki og allir eru þannig fyrir utan karakter Andra Ómars.
Það mætti nú líka segja að unglingsfordómar eru í þessari mynd, flest ungt fólk er alls ekki svona einfalt en þetta er bara mynd og leikur.
Þessi mynd var svakalega hæpuð þegar hún kom út sem mynd sem sýnir hina ,,ekta, hörðu Reykjavík sem engin vill tala um\'\', úrkoman er hallærisleg. Þetta er svona mynd sem er hægt að glápa á en hún er ekkert skemmtileg þannig séð og \"söguhetjurnar\" eru algjörir skúrkar og lúðar, fólk sem maður vill ekkert með gera. Það var samt flott að sjá gamla Magdónas á Austurstræti.
Davíð Þór lék samt krimma alveg svakalega vel í þessari mynd og Óttarr lék nú bara sinn part ansi vel, aukaatriðin á DVDinum voru góð og ég skildi ekki af hverju það var ekki meira svoleiðs í myndinni þeas góður fíflaskapur. Ég var þó að vonast að atriðin í Hollandi væru betri en þau íslensku...leyfi þér að dæma um það.
Ég var samt glaður að hafa séð þessa mynd allavega einu sinni.
Þessar íslensku dópistamyndir eru þó orðnar þreyttar, það er hægt að skoða mannlegt eðli án eyturlifa. Þetta er orðin svakaleg klisja í íslenskri kvikmyndagerð.
Mér fannst þessi skemmtileg, við fylgjum svona ekta meðal Jóni sem er að reyna að finna sig í tilverunni en ekkert virðist ganga hjá honum en þetta gerist á Íslandi svo allt reddast.
Ég hafpi heyrt um þessa mynd og eftir að ég horfði á hana fannst mér hún bara nokkuð góð, ég get alveg mælt með henni fyrir forvitna og á dvdinum var meira að segja aukaefni af gerð myndarinnar.
Endilega tékkið á þessa, það er ekkert nýtt að sjá en samt ágætis ræma.
Atriði sem átti ekki að heima í myndinni var atriðið í bílnum þegar hanna talar um líf sitt og svo jafnóðan virðist sem gerendur myndarinnar nenntu ekki að gera þessa senu...horfðu samt á hana.
Þessi var á plakötum útum allt land þegar maður var pjakkur og svo bara hvarf hún, sem er algengt stef þegar talað er um þessa mynd.
Þetta er eitt af uppáhalds íslenskum myndum mínum og þessi á blueray eða 4k væri geggjuð, það má alveg gefa íslensku þjóðinni þessa. Páll Banine sem Robbi hefði alveg mátt koma oftar, Stella hefði mátt vera með meiri persónusköpun en fyrir utan það stóðu allir sig vel. Þessi mynd sýnir þessa unglinga sem voru svo oft kallaðir ,,villingar\'\' af eldra fólki og krökkum á þessum tíma. Karakterinn Robbi sem er hálfur bandaríkjamaður speglar líka þetta tímabil þegar Völlurinn var enn til staðar en enskukunnátta var ekki eins ríkjandi og nú til dags.
Veggfóður er góð íslensk mynd og sérstaklega fyrir það tímabil sem hún kom út. Ég sá hana fyrir nokkrum árum og fannst hún góð. Mér fannst að karakter Ingibjörgu hefði átt að vera fylgdur meira í myndinni og hún hefði átt að vera með betri persónusköpun. Það er hallærislegt ástarena í myndinni með Balta, konu og kertum ef ég man rétt sem var frekar hlægilegt.
Steinn Ármann stóð sig svakalega vel en karakterinn var því miður eyðilagður þar sem hann var gerður of illur, það eyðileggur framhald og þessi mynd hefði alveg geta haft framhald.
Ég mæli með þessari og kvikmyndin er einnig með góða tónlist og verður Reykvíkingum sérstaklega skemmtileg þegar gamla Reykjavík er sýnd.
Ég held að sumar einkunirnar eru frá því tímabili þegar myndin kom úr. Mér fannst þessi alltaf leiðinlegri en hin fyrsta samt horfði ég oftar á þessa á unglingsárunum. Mér fannst hún bara svona allt í lagi, ef þér fannst fyrsta góð þá mæli ég með að þú kíkir á þessa.
Ég veit ekki alveg hvað er hægt að bæta við þessa þegar kemur að gagnrýni, Owen Wilson er alltaf fyndinn, Ice Cube leikur alltaf sama gæjann og J-Lo er J-Lo. Illmennið er fyndið og myndin er ekki gerð til þess að vera tekin alvarlega og ef það var markið þá ættu nútímamenn alveg að hunsa því. Þetta er skemmtileg ræma ef þú horfir á með popp og kók. Man vel eftir hvað hún var vinsæl í gamla daga og ég held hún var oft tekin af vidjó.
Þessi mynd er eitthvað sem íslendingar gætu daðrað við í meira mæli þegar kemur að kvikmynda gerð og geta þar með lært hvað á að gera og hvað ekki. Draugasagan er kvikmynd sem ég held að flestir af X kynslóðinni líkuðu við fyrir mörgum árum og þessi sjónvarpsmynd átti að vera ein af þeim fáum íslensku hryllingsmyndum. Ég horfði á þessa mörgum árum eftir að hún kom úr, alveg áratugum svo kannski er ég ekki með sanngjarna gagnrýni...en mynd þvert á aldur á að skemmta svo ef Guðfaðirinn er enn skemmtileg og þessi ekki þvert á kostnað þá er ekkert nema sanngjarnt að gagnrýna þessa.
Mér fannst leikurinn skrýtinn í myndinni, allt í einu var karlinn í myndinni að klæða sig í kjólum með langt hár upp úr þurru og draugagangurinn virtist vera uppspuni þeirra sem stunda næturvakt hjá Ríkisútvarpinu og heyra skrýtin hljóð sem voru annað hvort húsvörðurinn eða kaffivélin og þar með missti þessi draugagangur alveg markinu þegar hið draugalega varð hallærislegt. Strætó atriðið var það hallærislegasta af öllu og í lokin veit maður ekkert hvað þessi mynd var um.
Ég myndi samt vilja sjá hana í 4k í stafrænu formi með aukaatriði og ég myndi vilja að ungir kvikmyndamenn horfi á þessa og geri draugamyndir sem eru mun betri en þessi af öllu leyti.
Þessi kvikmynd er í einu orði mögnuð, ég sá hana í bíói þar sem ég hélt að myndin yrði á spænsku og ég talaði spænsku en ég vildi horfa á meira spænskumælandi efni en myndin var þó flest á tungumáli frumbyggjana í La Guajira, sem heitir wayuunaiki á frumbyggjamálinu og meira fólk talar þetta tungumál en íslensku, færeysku og grænlensku til samans.
Þessi mynd er með spennu þrátt fyrir að vera listræn en hegðunin af karakterunum minnir mann á Fóstbræðrasögu og aðrar Íslendinga sögur þar sem heiður skiptir mestu máli og getur umturnað lífi manns.
Ég mæli hiklaust með þessari mynd sem heitir á íslensku Farfuglar og á spænsku Pajaros de Verano.
Kólumbía er einnig mjög fallegt land sem ég mæli með að flestir Íslendingar kynna sér fyrir.
Þetta er eitt af uppáhalds myndum mínum, ég heyrði fyrst um hana sem bestu mynd 20ustuogfyrstualdarinnar eða eitthvað þannig í fréttunum fyrir nokkrum árum og fannt stiklan ekkert virðast sem eitthvað spes spes en svo hlustaði ég á hlaðvarpsþátt íslenskan sem ég held hafi heitið trílógók....man ekki alveg en sá þáttur fannst mér alveg geggjaður og ég yrði að sjá myndina eftir það. Eftir það hefur þetta verið eitt af mínum uppáhalds, þetta er þó mynd sem þú þarft bara að horfa á einu sinni og það er það, ég held hún matlar í þér í nokkurn tíma.
Diner atriðið var geggjað og mörg önnur, þetta er mynd sem ná nánast því að vera alveg eins og draumur og útlitið á henni minnir mann frekar á CSI Miami og X Files heldur en Hollywood bíómynd. Hún er með svakalega mikið þátta útlit sem er ekki skrýtið þar sem myndin átti að vera þáttaröð.
Þessi mynd getur verið leiðinleg fyrir marga en ég mæli með þessari mynd, endilega kíkið á hana.
Mig langaði að sjá þessa fyrir löngu þar sem þetta var talin eina Íslenska hryllingsmyndin en þessi mynd var mikil vonbrigði. Ég sá hana mörgum árum eftir að ég heyrði um hana en hún endar þar sem hún byrjar sem er svakalegt. Þetta er svona einsog ef The Thing myndin hefði endað með hundinum.
Svipað gerðist í Frost myndinni, ég skil þetta ekki bara.
Ágætis mynd samt.
Ef rússíbani væri mynd þá er þetta hún.
Þétta er meiri upplifun en kvikmynd, mörg atriðin eru erfið að horfa á og eru svakalega ofbeldisfull. Þetta var á þessu tímbaili þegar hryllingsmyndir voru flestar með þetta gritty útlit einsog Saw myndirnar, Heute Tension, Silent Hill og listinn fer áfram. Hún er enn hryllileg mörgum árum eftir á hún kom út og ég get ekki mælt með henni en hún er vel gerð og með góða leikara.
Ég held að engin einkun eða stjarna sæmir þessari mynd.
Miðsummar, er á þeim lista með Hereditary og Næturgalanum. Þetta er mynd um sorg og harm og hvort manneskjan getur staðið á móti þeim öflum. Hún gerist mest í Svíþjóð, þeim stað sem enskumælendur virðast halda að mörg sé ólukkan þar með myndum eins og The Ritual sem var einnig staðsett á þeim slóðum. Þetta er góð mynd og ég mæli með.
Svíþjóð er einnig fallegt land og með falleg skot af sér í þessari mynd, mæli með.
Þetta er eitt af þeim bestu hryllingsmyndum sem til eru, hryllingurinn gengur alla myndina og ef Rosemary\'s Baby væri með framhald þá væri það þessi. Hið eina sem ég get bara sagt þér er að slökkva á öllum ljósum heima og að horfa á þessa í myrkrinu. Hún er æðisleg, geggjaðir leikarar.
Elska þessa mynd, ég horfði á hana aftur og aftur á tíundaráratuganum og vissi alls ekki að hún var frá 9undaáratuganum fyrir mörgum árum eftir á, hún var bara svo nútímaleg. Þetta er eitt af mínum uppáhalds myndum og maður getur horft á þessa aftur og aftur og vill búa á Ítalíu strax eftir á.
Þetta er góð norræn mynd frá Færeyjum, okkar kæru nágranaþjóð og frændum.
Við fylgjum tveim stúlkum sem ferðast um Færeyjar eftir margra ára dvöl erlendis, þau hitta fortíðadrauga og alskyns tegund af fólki á þessum mikla eyjaklassa. Þetta er söguþráðurinn í stuttu máli og þessir leikarar standa sig afbragðs vel fyrir svona sjálfstæða mynd.
Þessar norrænu myndir frá þessu tímabili virðast vera í nánast svona samaheimi eða sem Marvel myndir kalla ,,Shared Universe\'\' þar sem myndin Veggfóður og þessi hafa eitthvað svona sem maður getur kallað sama anda og nokkrar aðrar sem ég man ekki nafnið á.
Það kemur stundum fyrir þessi norrænaþunglyndishyggja en myndir dvelur ekki lengi þar og heldur hjólinu gangandi. Ég hef sjálfur komið til Færeyja og þessi mynd nær andanum þar nokkuð vel. Kemur myndinni kannski ekkert það mikið við en færeyskan mín er svona lala en ég náði að hlusta á hlaðvarpsþátt með leikkonunni Sigri Mitra Gaïni sem lék Barböru og frétti það að hún var mikill Laxness aðdáandi svo það mætti segja að einhver íslenskutenging er með þessari mynd.... bara að henda þessu í kosmósinn.
Algjör steypa útskýrir þessa mynd best. Ég horfði á þessa aftur og aftur á yngri árum mínum en ég veit ekki hvort krakkar nú til dags eða eldra fólk mun vera hrifið af þessari mynd, hún gæti verið of kjánaleg. Ef þér líkaði vel við Critters og Gremlins þá mun þér einnig líka vel við þessa.
Ég trúi varla að engin hefur talið um þessa á þessum vef...
Þetta var eitt af uppáhalds myndum mínum sem pjakkur og margra í hverfinu, horfði á hana oft. Á þessa, Fuglastríðið og Leynivopnið. Þetta er svakalega vel gerð mynd af Dönum og íslensk talsetning hefur oft verið aðgengileg hjá Sýn. Ég mæli með að þú horfir á þessa strax með fjölskyldunni.
Góður saxafón var í þessum myndum.
Þessi mynd grípur ímyndunarafl ungramanna sem vilja vera kvikmyndamenn og skilur eftir sá vitnesku að allt er hægt ef maður reynir.
Þessi mynd er bara fín, hún er augljóslega græningjamynd en vel gerð af þeim. Ég átti þessa á spólu í Bandaríkjunum og horfði á hana ansi oft og mæli með henni fyrir hryllingsaðdáendur en ekki meðal Jón út í bæ.
Ég horfði á þessa aftur fyrir nokkrum árum og varð fyrir svakalegum vonbrigðum, í minningunni var hún sæmileg en þetta skipti fannst mér hún slæm. Karakterarnir í myndinni fá ekki að þróast nóg og vel og aðalleikkonan deyr áður en maður man eftir henni eða verður deadite jafnóðan. 3 Stooges leikurinn í vitanum var útúrdúr og átti ekkert við.
Þetta er ágætis mynd fyrir ungling sem er að kynnast hryllingsmyndum eins og flestir hafa orðið en fyrir hina fullorðnu þá er þessi bara allt of þunn.
Maður þarf kannski að horfa á númer 2 og svo strax á þessa, þá gæti hún verið betri...einnig er þessi meiri spennumynd en hryllingsmynd.
Dragon Ball Z og Pokémon var stór þáttur í enskukennslu minni, ég horfði á þetta í Bandarísku umhverfi og þegar ég sagði Íslendingum frá þessu þá vissi engin af krakka jafnöldrum manns hvað maður var að tala um.
Því miður náði Dragon Ball Z æðið aldrei til landans, þessi sería sem var fræg um alla Evrópu og allar Ameríkurnar. Hið upprunalega Dragon Ball var þýtt á dönsku og eflaust sáu Grænlendingar og Færeyingar þessa þætti en Íslendingar voru í myrkrinu. Ég sá svo árum eftir á að Dragon Ball Z var sýnt á Cartoon Network en þá var þetta löngu þekkt allstaðar annar staðar. Það var mikill miður að við menningalausu íslendingar talsettum ekki þessa japönsku þætti, algjört menningarleysi....en nóg með það.
Í Dragon Ball Z fylgjum við hinum fullorðna Goku sem er í baráttu við geimverur eftir að hann fréttir að hann sjálfur að hann er geimvera sem kallast Sajann í Sajanna sögunni, svo kemur Nameka sagan, Vélmenna sagan, Cell saga og svo Buu saga. Inn á milli voru gerðar nokkrar kvikmyndir sem eru sagðar ekki vera partur af meginsöguþráðnum en eru samt skemmtilegar (ég mæli með Cooler myndunum). Þetta eru æðislegir þættir fyrir alla aldurshópa og ég mæli eindregið með. Kæru íslendingar við sem landsmenn þurfum að gera betur og japanskar teiknimyndir eru ekki barna- eða nördaefni, að hugsa þannig er hin mesta fáfræði.
Horfðu á þetta við fyrsta tækifæri og ég efast ekki um að þú munt hafa gaman af þessu.
Þetta er Chucky eftirherma. höfum það á hreinu. Ég sá þessa í Bandaríkjunum í denn og fannst hún vera bara heilalaus skemmtun sem ég get mælt með fyrir fólk sem hefur ekkert annað að gera, þetta er samt algjör Si-Fi rásarmynd.
Hún er slæm en ef þú fílar Chucky þá gætirðu fílað þessa.
Ég var að leita af einhverju til þess að glápa á árið 2011/2012 og fann þessa.
Það var ansi mikið af hæp fyrir þessa mynd af Sleepaway Camp áhugamönnum fyrir svona 20 árum. Þegar sýnt voru klippur úr þessari á netinu þá fannst mér útlitið alltaf hræðilega slæmt fyrir á þeim tíma ,,nútíma mynd\'\', þetta var eins og myndavélin úr fyrstu var notuð ,,ó hvernig fortíðarþrá eyðileggur hryllingsmyndir\'\' verð ég nú að segja...allavega ef þú vilt meira eða ert aðdáandi þá já tékkaðu á þessa en ef ekki þá get ég ekki mælt með þessari.
Ég væri þó til í að horfa á hana aftur til þess að sjá hvernig hún hefur eldst.
Að tala um þessa mynd gæti verið í sér sjálfu mikill spillir en ég get talað um annað varðandi hana...
Þessi mynd fjallar um mann sem er með ofsjónir í New York og þunglyndi.
Þessi kvikmynd kom út á þeim tíma 10undaáratugarins og sá grundge fílingur er í myndinni og er ansi nostalgískur nútildags en það er eitthvað með þetta tímabil sem hún kom út þetta var lok 20ustualdar og 2000 við næsta horn. Þessi og Exorcist 3 hafa eitthvað óseiganlegt sameiginlegt og ég get bara mælt með þessari mynd sem er svo hrikalega falleg.
Ég heyrði um allar Sleepaway Camp alveg óvart þegar ég var að brása á netinu fyrir meira en 20 árum og fann vefsíðu sem talaði einungis um þessar kvikmyndir þegar ég hafði verið að leita eitthvað um Friday the 13th.
Núna erum við komin til 10undaáratugarins og við sjáum konu sem á að vera hin morðóða Angela Baker. Ég vil þó ekki segja neitt meira um söguþráðin annað en að þessi mynd er athyglisverð sem svona týnd mynd sem var ókláruð og fannst en ég get með engum móti mælt með þessari mynd þar sem þessi kvikmynd er ókláruð.
Ég hef aldrei heyrt neinn neinstaðar tala um hana svo kannski ætti lesandi ekkert að vera að tékka á þessari.
2 og 3 eru bara sama steypan og ekkert annað hægt að segja um það.
Ekki hugsa meðan þú horfir á þessa og kannski verður hún þá bara meiri en sæmileg en fyrir mér var hún bara allt í lagi en ekkert annað.
Sleepaway Camp 2...Angela Baker er komin úr geðveikrahæli til þess að halda morðöldunni áfram.
Þessi mynd er Sleepaway mynd sem hefur verið Slægjuvædd af Friday the 13th og Freddy myndum, hún er kjánaleg, asnaleg og hallærisleg en er til þess að gerð að vera heilalaus bræla til þess að eyða deginum yfir..... ef þú ert hryllingsaðdáandi þá mæli ég með henni.
Mér fannst hún skemmtileg í denn en ekki lengur og horfi frekar á fyrstu sem mér fannst og finnst betri en þessi og númer 3 eru eigilega sama myndin og voru skotin samtímis. Aðal leikkonan er ekki stúlkan úr fyrstu myndinni en ekki hugsa um það ef þú vilt hafa gaman.
Plakatið var kannski hið skrítnasta af öllu þar sem stúlkan á því er ekki í myndinni.
Sumarbúðir,
sumarbúðir með skátunum var það mesta líkt þessu sem maður gerði í gamla daga og langaði manni oft til svona sumarbúða sem pjakkur, hjá á eða læk einsog í þessari mynd, allavega bara með frið og ró sem er ólíkt því sem þessi mynd bíður upp á.
ég sá þessa fyrst fyrir langa löngu um 2005/2006 á dvd setti sem var með annari hryllingsmynd of voru gæðin á þessari ekki góð en þessir ungu leikarar í myndinni stóðu sig svakalega vel og var Jonathan Tiersten afbragðs góður sem hinn kjaftfori Ricky.
Flestir leikararnir virðast vera frá New York borg eða Jersey frá hreimunum að dæma.
Allavega þetta eru sumarbúðir og morðalda gengur yfir staðinn en eigandi sumarbúðanna er líkur borgarstjóranum í ókyndinni og vill ekkert segja við fylgjum ungri stúlku sem heitir Angela Baker og frænda hennar Ricky sem reyna að finna sig sjálf í óbygðum sumarbúðanna.
Ég mæli með þessari mynd og ég held að nútíma áhorfendur geta alveg tengt sig við þessa, hún virðist vera eftirherma af Friday the 13th en sá sem bjó til þess (ef mér skjátlast ekki) virðist hafa sagt að hún var skrifuð fyrir þá mynd en hverjum er hægt að trúa?
Allavega fín slægja sem ég hef heyrt engan Íslendind tala um. Ég hef sýnt fólki hana en ég hef aldrei heyrt neitt um hana talað.
Danskar myndir voru alveg að slá í gegn fyrir utan Danmörku á þessum árum.
Þessi var frekar fræg meðal krakka í mínu hverfi og Skógardýrið Hugo, þegar ég var snáði, fallegir söngvar skreyta þesa mynd og ég held að ég get alveg mælt með þessari.
Sumt í henni gæti þó verið óviðeigandi fyrir suma.
Leynivopnið, sem ég held að er sá titill á barnamynd sem engin man og flestir muna sem apamyndina. Mér fannsst hún voða góð sem krakki, þessi danska mynd var vel talsett á íslensku en sú talsetning virðist hafa orðið gleymsku að bráð. Ég vildi sjá hana fyrir nokkrum árum og fann hana bara á dönsku, ég tékkaði á henni og skildi sumt og margt ekki en fannst teikningarnar ágætar en myndin sjálf Lala... Ég væri nú alveg til að sjá hana almennilega á Íslensku en eins og er þá er hún ófáanleg þannig.
Ég get ekki sagt hvort hún var góð eða vond en ég væri til í að kíkja á hana aftur, þótt ég held að hún hafi verið betri í minningunni.
Sko... Mads Mikkelsen og Nikolaj Coster eru góðir leikarar og hafa sannað það.
Þessi mynd er kannski fyrst og fremst nostalgíu-popp fyrir Reykvíkinga, við sjáum ekki bara Íslenska náttúrudýrkun sem er svo víða í Íslenskum myndum(og þessi danska var ein af þeim fyrstum) heldur sjáum við líka Grafarholt bara með tankana, ágætis útlit af miðbænum, Granda og svo Yrsufell í Breiðholti (reyni annar betur). Þessi mynd þrátt fyrir það er eitthvað sem ég hefði kallað tilgerðaleg í denn en hún er samt með eitthvað, eitthvað merkilegt eða hún var kannski merkileg fyrir leikara kvikmyndarinnar: Coster og Mikkelsen hafa alltaf komið til Íslands eftir þessa mynd og eru góðir Íslands vinir. Ég held að eftir einhver ár verður þessi mynd kannski betri með tímanum, sérstaklega þegar við sjáum útsýnið hans Ossy á Keflavíkurflugvelli, margt hefur nú breyst.
Mér finnst samt gaman að horfa á hana tíma og í tíma og mér finnst hún góð þrátt fyrir það að ég verð að gefa henni 2 stjörnur.
Potturinn sem átti að vera sjórinn var samt .... ekki nóg og góður.
Ég sá þessi mynd meiri en tuttugu árum eftir hún kom út og ég fann fyrir spennu svo ég get eindregið mælt með þessari mynd, hún var svakalega spennandi.
Frétti líka það að fyrstu netkaupin voru gerð á henni nema ef það var rugl eða slúður.
Þessi mynd er hæg og leiðinleg á köflum, ef ekki alltaf....en hún er merkileg.
Í þessar mynd fáum við að sjá gutta í geimnum með 8undaráratuga klippingu einsog þær væru að fara hlusta á Rolling Steins en myndinni nær alveg að stýra þessi almennilega. Svarthöfði að kyrkja gæjann á fundinum var svakalega vel gert og með engum tæknibrellum, örugglega eitt af bestu atriðum kvikmyndasögunnar.
Ég man þegar ég sá hana fyrst í lok 10undaáratugarins og fannst hún góð á þeim tíma, reyndi að horfa á hana á þessum áratugi en sofnaði, en þetta eru flottar myndir og ég mæli með þeim þrátt fyrir að áhugi manns á þeim hefur dafnað svakalega, en ef þessi hefði ekki verið til hefðum við aldrei fengið Alien myndirnar.
Það er líka flott hvernig Star Wars er orðið partur af Íslenskri menningu með Star Wars daginn sem er einu sinni á ári, allt þessari mynd að þakka.
Þessi mynd og Baka til um bakherbergin stóðu sig frábærlega og þessi mun betur. Þetta var voða skemmtileg mynd sem er voða óþægileg á köflum, allt virðist vera með upprunann sinn í Simpsons Tree House of Horror.
Þessi var ansi skemmtileg, ég hafði vitað fyr um Bakherbergin og vissi hvað það átti að vera og var spenntur til að sjá hvað þeir myndu gera.
Mín helsta gagnrýni var að við hefðum bara átt að fylgja Chiwetel, að sálfræðingur hefði átt að vera með minna hlutverk og að ungmennin sem hjálpuðu Chiwetel léku sem staðalímyndir sem hefði vest verið sleppt...
Allavega mæli með þessari og hlakka til þess að sjá framhald.
Ég gef þessari mynd miklar stjörnur og veit að hún er ekki fyrir alla en þessi mynd hefur orðið eitt af mínum uppáhalds. Ég las smábókina eftir á sem hér Draumabók og fannst hún mjög góð. Þetta er ekki The Shining eða Space Oddisey en þetta er eitthvað allt annað.
Þú verður að sjá þessa allavega einu sinni á ævinni.
Ég verð nú bara að segja að þessi kvikmynd er æðisleg, hún er byrjunin á öllum þeim slægjumyndum sem fylgdu í kjölfarið og er mun betri en þær allar og já betri en Halloween. Við erum með kvikmyndafólk í myndinni sem virðist eðlilegt og gerir ekkert of kjánalegt þótt að kjánaskapur kemur fram í myndinni. Ég mæli samt eindregið með þessari flottu mynd og aðalleikonan sem er svo klassísk í sinni framkomu stendur sig svakalega vel í þessari mynd.
Mæli með.
Jæa mér fannst þessi mynd bara fín, það var gaman að sjá hvernig hún virkaði stundum eins og heimildarmynd og að heyra þetta áttundaráratuga slangur var flott. Leikararnir standa sig flestir vel stelpurnar og sérstaklega aðal illmennið.
Ég get alveg mælt með henni þar sem hún er gömul mynd og hræðilegu atriðin eru ekkert það hræðileg hliðina á nútíma myndum. Kíkið á hana og kannski munið þið hafa gaman af henni, konan sem lék líka illmennið stóð sig vel.
Það var líka skemmtileg heimildarmynd um gerð myndina og ég gæti alveg horft á þessa aftur þegar maður vill upplifa 8undaáratugin á svona hryllilegan hátt. Mér fannst samt atriði leikkonanna fyrir hrottuheitin vera skemmtilegust, þegar þær voru að spjalla í bíl og út á landi. Leikstjórinn Wes Craven er eitt af mínum uppáhalds og hann var djarfur og með viss hugrekki að gefa þessa mynd út á þeim tíma.
21/09/2026
🎬 Hæ, ég er Kvikan — bíóráðgjafinn þinn.
Skráðu þig inn til að spjalla við mig um bíó, streymi og meðmæli.Skrá mig inn