Náðu í appið
Bönnuð innan 16 ára

Veggfóður: erótísk ástarsaga 1992

(Wallpaper)

Frumsýnd: 6. ágúst 1992

85 MÍNÍslenska

Myndin gerist í Reykjavík nútímans og fjallar um þríeykið Lass (Baldasar Komákur), Sveppa (Steinn Ármann Magnússon) og Sól (Ingibjörg Stefánsdóttir). Lass er kærulaus listnemi sem á yfir sér brottrekstur úr skóla vegna lélegrar mætingar og áhugaleysis, þegar vinur hans Sveppi sem er skemmtilegur og fyndin öfuguggi fær hann með sér í að reka veitingastað.... Lesa meira

Myndin gerist í Reykjavík nútímans og fjallar um þríeykið Lass (Baldasar Komákur), Sveppa (Steinn Ármann Magnússon) og Sól (Ingibjörg Stefánsdóttir). Lass er kærulaus listnemi sem á yfir sér brottrekstur úr skóla vegna lélegrar mætingar og áhugaleysis, þegar vinur hans Sveppi sem er skemmtilegur og fyndin öfuguggi fær hann með sér í að reka veitingastað. Þeir veðja um það hvor verði á undan að „afgreiða“ gengilbeinuna Sól. Lass vill fljótlega hætta við veðmálið þegar ástin heltekur hann. Hann reynir að fá Sveppa til að hætta við veðmálið en Sveppi er staðráðin í því að ná gengilbeinunni Sól á stigatöfluna.... minna

Aðalleikarar

Snilldin ein
Gleymi því aldrei þegar ég sá þessa mynd í fyrsta skipti og kollféll fyrir henni. Baltasar og Sveinn Ármann frábærir í hlutverkum Lass og Sveppa.
Myndin er mjög áhugaverð sýn inn í furðulegan heim
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Flest allar myndir sem Júlíus Kemp hefur komið nálægt eru rusl, og er þessi ekkert undanskilin.

Í mynningunni er þetta þokkalegasta mynd, en þegar maður sér hana aftur, og þá aðeins þroskaðri en þegar myndin kom út, þá sér maður hverslags rusl þetta er.

Jú jú, það eru ágætis brandarar í myndini, og maður nær að glotta einstakasinnum, en flest annað er ömurlegt.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Þokkalegasta mynd af íslenskri mynd að vera. Leikur er allra þokkalegasti fyrir utan Ingibjörgu, hún er ansi slök leikkona. Steinn Ármann sýnir ágætis spretti en frekar er Baltasar klisjukenndur þarna. Kótelettukarlinn er ansi flottur. Þessi mynd skilur ekki mikið eftir sig, en er þokkalegasta afþreying. Einnig er gaman að sjá Eyþór Arnalds sem í dag er orðinn virðulegur forstjóri Íslandssíma, en þarna er hann síðhærður poppari, mikil breyting á einum manni ekki á lengri tíma.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn