Limbó

Limbó (1993)

1993

imbó var gamanþáttaröð í leikstjórn Óskars Jónassonar með Radíusbræður (Stein Ármann Magnússon og Davíð Þór Jónsson) í aðalhlutverkum.

TMDB5.0
Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →
Öllum leyfðÖllum leyfð

Söguþráður

imbó var gamanþáttaröð í leikstjórn Óskars Jónassonar með Radíusbræður (Stein Ármann Magnússon og Davíð Þór Jónsson) í aðalhlutverkum. Þættirnir, sem urðu aðeins tveir, voru sýndir í Ríkissjónvarpinu 27. febrúar og 27. mars árið 1993. Í fyrri þættinum komu fram auk Steins og Davíðs, Helga Braga Jónsdóttir, Steinunn Ólafsdóttir og Sigurjón Kjartansson, en í seinni þættinum Sigurjón Kjartansson, Jón Gnarr, Gunnar Helgason og Hjálmar Hjálmarsson. Þættirnir gengu út á tilraun þeirra Steins og Davíðs til að gera skemmtiþátt í sjónvarpi þar sem allt gengur á afturfótunum. Þættirnir fylgdu í kjölfar mikilla vinsælda útvarpsþáttarins Radíus á Aðalstöðinni. Þeir fengu misjafna dóma. Aðeins var samið um gerð tveggja þátta og ekki varð framhald á því en Sveinn Einarsson, dagskrárstjóri innlendrar dagskrárgerðar lét af störfum um sama leyti og nokkru síðar tók Hrafn Gunnlaugsson við sem framkvæmdastjóri RÚV. Næsta ár voru stuttir sketsar („Radíusflugur“) með Steini Ármanni og Davíð Þór fluttir í dægurmálaþættinum Dagsljósi og haustið 1995 voru gamanþættirnir Radíus á besta tíma á laugardögum.

Svipaðar myndir

Fóstbræður
Fóstbræður
1997·IMDb 9.3
Sami leikstjóri: Óskar Jónasson
Einkunn
Svínasúpan
Svínasúpan
2003·IMDb 7.7
Sami leikstjóri: Óskar Jónasson
Einkunn
Einkalíf
Einkalíf
1995·IMDb 5.0
Líka gaman
Einkunn
SSL-25
SSL-25
1990·IMDb 8.4
Sami leikstjóri: Óskar Jónasson
Einkunn
Stuttur Frakki
Stuttur Frakki
1993·IMDb 5.6
Líka gaman, íslenskt
Einkunn

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!