Svartir englar

Svartir englar (2008)

Black Angels

4 klst 31 mín2008 2 álit notenda

Saga um fjóra íslenska rannsóknarlögreglumenn sem starfa í drungalegum hversdagsleika Reykjavíkur þar sem alþjóðlegir glæpahringir eru farnir að láta á sér kræla. Sagan gerist í...

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldi

Söguþráður

Saga um fjóra íslenska rannsóknarlögreglumenn sem starfa í drungalegum hversdagsleika Reykjavíkur þar sem alþjóðlegir glæpahringir eru farnir að láta á sér kræla. Sagan gerist í Reykjavík nútímans og eru höfuðpersónur þáttaraðarinnar lögreglumennirnir Stefán, Katrín, Árni og Guðni. Þau eru sammála um að á Íslandi sé allt að fara til fjandans og að starf þeirra sé einungis til málamynda og megi sín lítils í baráttu við ört vaxandi glæpaöldu. Í undirheimum Íslands tíðkast nú ekki bara smáglæpir og fjölskyldutengd afbrot, heldur hættulegri glæpir sem jafnvel er stýrt af kunnáttu mönnum með tengsl við alþjóðlega glæpahringi. Örvæntingarfull barátta lögreglunnar við mjög erfiðar aðstæður er undirliggjandi tónn þáttaraðarinnar. Innri barátta aðalpersónanna og veikleikar þeirra setja svip á söguna auk þeirrar tilfinningar að það sé skítadjobb að vera í lögreglunni. Í fyrri hluta þáttaraðarinnar segir frá eiganda auglýsingastofu, manni á fimmtugsaldri sem finnst látinn fyrir utan fjórtán hæða blokk þar sem hann bjó. Ljóst er að hann hefur hrapað niður af svölunum. Fjóreykið hefur rannsókn og læðist fljótt að þeim sá grunur að honum hafi verið hjálpað niður. Þegar lögreglufólkið er við það að leysa gátuna kemur upp nýtt mál sem reynist öllu flóknara. Um er að ræða hvarf konu, Birgittu, kerfisfræðings sem virðist vera flækt í dularfullt verkefni. Í bakgrunninum er stærra samfélagsmein sem snýr að rafrænu eftirliti yfirvalda með einstaklingum.

Svipaðar myndir

Pressa
Pressa
2008
Sami leikstjóri: Óskar Jónasson
Einkunn
Réttur
Réttur
2009·Þáttaröð·IMDb 7.2
Líka drama, íslenskt
Einkunn
Mýrin
Mýrin
2006·IMDb 6.8
Líka drama, glæpa
Einkunn
Pressa
Pressa
2007·Þáttaröð·IMDb 6.9
Sami leikstjóri: Óskar Jónasson
Einkunn
Sherlock
Sherlock
2010·IMDb 9.0
Líka drama, glæpa
Disney+
Einkunn
Fangavaktin
Fangavaktin
2009·Þáttaröð·IMDb 8.4
Líka drama
Einkunn

Aðalleikarar

Vissir þú?

Þættirnir eru byggðir á vinsælum glæpasögum rithöfundarins Ævars Arnar Jósepssonar, bókunum Svartir englar og Skítadjobb.

Höfundar og leikstjórar

Sigurjón Kjartansson
Sigurjón KjartanssonHandritshöfundurf. 1968

Aðrar myndir eftir sama leikstjóra

Margrét Örnólfsdóttir
Margrét ÖrnólfsdóttirHandritshöfundurf. 1967

Álit notenda (2)

Áhugaverð sería

★★★★☆

 Bækurnar hafa alltaf verið í uppáhaldi hjá mér og þegar ég sá að búið var að gera sjónvarpsséríu úr þeim þá varð ég mjög skeptísk enda nýbúin að sjá Mannaveiðar sem …

★★★☆☆

 Svartir egnar er sjónvarpssería sem sýnd var á RÚV. Hún fjallar um fjóra rannsóknalögreglumenn í Reykjavík sem eru að rannsaka morð. Í fyrstu seríu eru sex þættir og í þeim er…

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!