Náðu í appið
Bönnuð innan 12 ára

Hross í oss 2013

(Of Horses and Men)

Frumsýnd: 28. ágúst 2013

Hross í mönnum og menn í hrossum.

96 MÍNÍslenska
Rotten tomatoes einkunn 100% Critics
The Movies database einkunn 74
/100
Hlaut kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs. Haut sex Eddur, þar á meðal sem besta kvikmyndin. Hefur unnið til fjölda verðlauna á hátíðum um allan heim.

Grimm sveitarómantík um hið mennska í hrossinu og hrossið í manninum. Ást, kynlíf, hross og dauði fléttast saman með skelfilegum afleiðingum. Örlagasögur af fólki í sveit frá sjónarhól hestsins. Sólveig elskar Kolbein og Kolbeinn elskar Sólveigu en Kolbeinn elskar líka merina Gránu sem aftur á móti elskar folann Brún. Það er ekki víst að þessi saga... Lesa meira

Grimm sveitarómantík um hið mennska í hrossinu og hrossið í manninum. Ást, kynlíf, hross og dauði fléttast saman með skelfilegum afleiðingum. Örlagasögur af fólki í sveit frá sjónarhól hestsins. Sólveig elskar Kolbein og Kolbeinn elskar Sólveigu en Kolbeinn elskar líka merina Gránu sem aftur á móti elskar folann Brún. Það er ekki víst að þessi saga endi vel. Vernharður elskar vodka og Jarpur elskar Vernharð. Útlendingurinn Gengis á hins vegar engan vodka en elskar hross eins og Jarp. Það er ekki heldur víst að þessi saga fari vel. Grímur kann að meta hesta og fornar hestaslóðir en Egill er áhugamaður um gaddavír og traktora. Þessi saga mun ekki enda vel. Jóhanna elskar Rauðku en Rauðka elskar frelsið. Við gamalt sumarhús liggur særður maður. Þessi saga gæti endað vel. Juan Camillo elskar náttúruna og leitar almættisins á hálendi Íslands. En hrossið er gamalt og þreytt og þarfnast hvíldar. Þessi saga getur farið hvernig sem er. En hvernig sem hver og ein af þessum sögum fer og fléttast saman þá sameinast menn og hross í eitt í réttunum á haustin!... minna


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn