Danska konan

Danska konan (2026)

50 mín2026 1 umfjöllun

Ditte Jensen (Trine Dyrholm) lætur af störfum í dönsku leyniþjónustunni og flytur í fjölbýlishús í Reykjavík.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →

Söguþráður

Ditte Jensen (Trine Dyrholm) lætur af störfum í dönsku leyniþjónustunni og flytur í fjölbýlishús í Reykjavík. Draumur hennar er að lifa óáreitt meðal fólks sem þekkir hvorki stríð né blóð. Það kemur þó fljótt í ljós að Ditte getur ekki hætt að vera það sem hún er - þrautþjálfaður hermaður. Fyrr en varir er blokkin hennar orðin að vígvelli í baráttunni fyrir bættum heimi. Hún finnur sig knúna til að hjálpa nágrönnum sínum sem glíma við hin ýmsu vandamál og það skiptir hana engu hvort þeir vilji aðstoðina eða ekki. Í huga dönsku konunnar réttlætir tilgangurinn meðalið. Alltaf.

Þáttaröðinni lokið1 þáttaröð

Þættir

1 þáttaröð · 6 þættir
  1. 1

    Drap hún köttinn?

    Ditte Jensen uppgötvar að nýju nágrannar hennar eru ekki fullkomnir. Þetta er fólk sem glímir við ýmis vandamál og persónugalla og er greinilega hjálparþurfi. Hún þarf líka að horfast í augu við drauga fortíðar sem ásækja hana bæði í vöku og draumi. Og svo er það kötturinn. Ditte á auðveldara með að takast á við hann, því hún er fullkomin, eða næstum því.

  2. 2

    Brotið barn

    Ditte tekst á við skjáfíkn ungra barna og veitir meðferð við eitraðri karlmennsku, þótt það kosti nokkur brotin hjörtu. Eftir því sem hún tengist samfélaginu í húsinu þéttari böndum, þeim mun fleiri verða verkefnin. Á fyrstu hæð búa flóttamenn í neyð, á þriðju hæð er meðvirkni og alkóhólismi og á annarri hæð býr umhverfissóði hússins – sem er líka formaður húsfélagsins.

  3. 3

    Ljósmæður

    Draumar og raunveruleiki renna saman hjá Ditte þegar álagið eykst í kjölfar þess að hún er orðin aðalbjargvættur samfélagsins í húsinu. Gamlir félagar úr dönsku leyniþjónustunni skjóta upp kollinum og vilja kúga Ditte til að taka að sér afar vandasamt verkefni.

  4. 4

    Aftakan

    Draumur Ditte um að skapa ástríkt fjölskyldusamfélag þar sem hún er miðpunkturinn sem hjálpari og frelsari hússins virðist vera að rætast. Hún trúir því að tilgangurinn helgi meðalið, alltaf, og því ræðst hún gegn opinberri stofnun með sýklahernaði og brýtur fimmta boðorðið. Þar með getur hún strikað tvö verkefni af „listanum“ sínum.

  5. 5

    Brotin beinagrind

    Ditte tekur að sér eitt lokaverkefni fyrir dönsku leyniþjónustuna. Stóra málið í huga hennar er samt yfirtaka húsfélagsins sem krefst seiglu, styrks og allra hennar hæfileika. Á sama tíma lendir hún óvænt í árekstri við skipulagða glæpastarfsemi á Íslandi og mætir þar verðugum andstæðingi.

  6. 6

    Eitruð líf

    Ditte uppgötvar að nágrannar hennar eru ekki verðugir kærleika hennar og umhyggju og jafnvel íslensk náttúra svíkur hana. Allt virðist snúast gegn henni. Í tilraun til að bjarga vini sem villst hefur af leið grípur hún til örþrifaráða.

Svipaðar myndir

Hross í oss
Hross í oss
2013·IMDb 6.8
Sami leikstjóri: Benedikt Erlingsson
Einkunn

Myndbönd

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Ólafur Egill Egilsson
Ólafur Egill EgilssonHandritshöfundur

Aðrar myndir sem handritshöfundur

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Framleiðendur

Slot MachineFR
Gullslottid
Zik Zak FilmworksIS
RÚVIS
ZDF/ArteDE
DRDK