
Hvað er það sem kemur okkur í hrekkjavökugírinn? Er það búningafjör, graskersskreytingar, beinagrindur og almennur drungi eða býr eitthvað stærra þarna meira að baki?
Kannski er líka stundum bara frussugaman að fagna hinu yfirnáttúrulega, prakkarast og horfa á skítmikið af hryllingsmyndum.
Eða alls konar myndum með hryllingsívafi….
Hrekkjavaka er enn tiltölulega nýlegt fyrirbæri í íslenskri menningu en flestallir landsmenn hafa líklega upplifað sinn skerf af gleðinni í gegnum dægurmenninguna. Því er gráupplagt að dusta aðeins rykið af spóluhillunni eða ná í sjónvarpsfjarstýringuna og skoða ýmsar skuggalegar, safaríkar og nammigóðar kvikmyndir sem eru líklegar til þess að koma fólki í sannan hrekkjavökugír, með einum eða öðrum hætti.
Þetta eru 30 stykki. Kannaðu hversu margar þú hefur séð.
Neðangreindum kvikmyndum er raðað eftir aldri:

Halloween 1978
Sagan gerist árið 1963 á hrekkjavökuhátíðinni í Bandaríkjunum. Lögreglan er kölluð til Lampkin götu nr. 43 og finnur þar hina 15 ára gömlu Judith Myers stungna til bana af 6 ára gömlum bróður hennar, Michael. Eftir að…

Halloween III: Season of the Witch 1982
Morð og sjálfsmorð á gjörgæslu á spítala verður til þess að læknir á vakt rannsakar málið, og kemst að því að klikkaður leikfangasmiður hefur ill áform um að drepa eins mikið af fólki og hann getur á Halloween…

Clue 1985
Myndin fjallar um sex gesti, bryta og þernu, en þau eru öll flækt í morðið á sex manns. Gestirnir hittast allir í Hill House þar sem við komumst að því að Professor Plum vinnur í D.C. þar sem allir aðrir búa. Mustard…

Hellraiser 1987
Myndin fjallar um mann og konu sem flytja inn í gamalt hús og finna forljóta veru - hálfbróður mannsins, sem einnig er fyrrum elskhugi konunnar - í felum á efri hæðinni. Eftir að hann hefur tapað jarðneskum líkama sínum…

Beetlejuice 1988
Beetlejuice er gamansöm draugasaga og fjallar um ung hjón sem lenda í bílslysi og deyja. Þau snúa síðan aftur sem draugar og fara heim til sín. Í fyrstu virðist allt eins og áður, en fljótlega koma aðrir lifandi íbúar…

Hellbound: Hellraiser II 1988
Doctor Channard fær nýjan sjúkling, stúlku sem vill vara við hræðilegum verum sem hafa drepið fjölskyldu hennar, Munkunum, sem bjóða upp á ákafa sælu og sársauka. En Channard hefur verið að leita að leið til heljar í…

Ernest Scared Stupid 1991
Ernest leysir óvart úr læðingi ljótt tröll, sem ætlar sér að breyta börnum í trédúkkur, í bænum Briarville í Missouri. Nú þarf Ernest að grípa til sinna ráða og kveða tröllið í kútinn.

The Addams Family 1991
Addams fjölskyldan daðrar við dauðann á margvíslegan hátt, og verur eins og afhoggin hönd er þjónn þeirra. Þau eru einnig nokkuð auðug. Ennfremur koma bæklaður bókhaldari og okurlánari við sögu, og áætlanir um smygla…

Dracula 1992
Þessi útgáfa af sögunni um Drakúla er byggð á sígildri sögu Bram Stoker með sama nafni. Ungur lögfræðingur er ráðinn til starfa í drungalegu þorpi í austur Evrópu. Hann er tekinn höndum og settur í fangelsi af…

Interview with the Vampire: The Vampire Chronicles 1994
Það er aðeins eitt ár síðan landeigandinn Louis missi eiginkonu sína af barnsförum. Bæði konan og barnið dóu, og nú hefur hann misst viljann til að lifa. Vampíran Lestat vill hjálpa manninum og býður honum að verða…

The Crow 1994
Gítarleikarinn Eric Draven er reistur upp frá dauðum af kráku, ári eftir að hann og unnusta hans eru myrt. Krákan leiðbeinir honum í gegnum land hinna lifandi og leiðir hann heim til þeirra sem drápu hann og kærustuna…

From Dusk Till Dawn 1996
Seth Gecko og yngri bróðir hans Richard eru á flótta eftir blóðugt bankarán í Texas. Þeir sleppa yfir landamærin yfir til Mexíkó, og verða hólpnir daginn eftir þegar þeir greiða skatt til höfuðpaurs helsta…
Netflix
Practical Magic 1998
Sally og Gillian Owens hafa alla tíð vitað að þær væru ekki eins og fólk er flest. Eftir að þær misstu foreldra sína ólu frænkur þeirra þær upp á heimili sem vægast sagt var óvenjulegt og þar sem engum reglum var fylgt…

Idle Hands 1999
Hinn sautján ára gamli iðjuleysingi Anton Tobias, vaknar að morgni hrekkjavökunnar, og uppgötvar að báðir foreldrar hans hafa breyst í hauslausar hrekkjavökuskreytingar. Eftir að hafa talað við vini sína, sem eru álíka…
Netflix
Sleepy Hollow 1999
Sagan gerist snemma í sögu Bandaríkjanna, þegar ungur lögreglumaður, Ichabod Crane er sendur frá New York, til litla bæjarins Sleepy Hollow til að rannsaka röð af hryllilegum morðum. Þegar hann kemur í bæinn þá segir…

Ginger Snaps 2000
Táningssysturnar Ginger 16 ára og Brigitte 15 ára eru helteknar af dauðanum. En kvöld eitt er önnur þeirra bitin af varúlfi.

House of 1000 Corpses 2003
Tvö pör, Jerry, Bill, Mary og Denise, fara í ferðalag í leit að skrítnum stöðum utan alfaraleiðar, í þeim tilgangi að skrifa um þá bók. Þegar þau hitta Captain Spaulding, þá heyra þau um goðsögnina Dr. Satan. Þegar þau…

Monster House 2006
Táningurinn DJ er að fylgjast með nágranna sínum Nebbercracker hinum megin götunnar í götunni þeirra í úthverfinu, sem eyðileggur þríhjól krakkanna sem fara yfir lóðina hans. Þegar foreldrar DJ fara í ferðalag að kvöldi…

Hatchet 2006
Þegar hópur ferðamanna í bátsferð í New Orleans strandar úti í óbyggðunum, þá breytist ferðin í hrottalega martröð.

Trick 'r Treat 2007
Fimm samtengdar sögur sem gerast á Hrekkjavökunni: Skólastjóri lifir tvöföldu lífi og er einnig raðmorðingi; jómfrú í menntaskóla hittir loksins draumaprinsinn; unglingahópur gerir ljótan grikk; kona sem hræðist myrkrið…

Coraline 2009
Ævintýragjörn stúlka finnur nýjan heim sem reynist vera undarleg og breytt útgáfa af hennar eigin óþolandi heimili. Heimurinn býr þó yfir óþægilegum leyndarmálum.

We Need to Talk About Kevin 2011
Eva hefur alltaf verið óörugg í móðurhlutverkinu og samband hennar við son sinn,Kevin, hefur verið þyrnum stráð allt frá fæðingu hans. Kevin er nú fimmtán ára gamall og eftir að hann hefur framið ólýsanlegan og…

Hotel Transylvania 2012
Velkomin á Hótel Transylvaníu, fimm stjörnu hótel Drakúla markgreifa, þar sem skrýmsli og fjölskyldur þeirra geta notið lífsins, og verið þau sjálf án þess að einhver sé að ónáða þau. Drakúla hefur ákveðið að halda…

ParaNorman 2012
Norman Babcock er vel gefinn og greindur 11 ára strákur og það eina sem er óvenjulegt við hann er að flestir kunningjar hans eru dauðir. ParaNorman gerist í litla bænum Blythe Hollow sem var vettvangur mikilla og…

The Batman 2022
Leðurblökumaðurinn, Batman, kemst á snoðir um spillingu í Gotham borg sem tengist fjölskyldu hans. Á sama tíma glímir hann við skelfilegan raðmorðingja sem gengur undir nafninu Gátumaðurinn, eða The Riddler.

Terrifier 2 2022
Trúðurinn Art snýr aftur í litla bæinn Miles County eftir að hafa verið reistur upp frá dauðum af illum öflum. Þar beinir hann spjótum sínum að unglingsstelpu og yngri bróður hennar að kvöldi Hrekkjavökunnar.

Barbarian 2022
Kona sem gistir í Airbnb íbúð kemst að því að húsið sem hún leigði er ekki allt eins og sýnist. Svo virðist sem íbúðin hafi verið tvíbókuð og undarlegur maður er þar einnig. Hún ákveður þrátt fyrir það að halda kyrru…

Beetlejuice Beetlejuice 2024
Eftir óvæntan fjölskylduharmleik snúa þrjár kynslóðir Deetz fjölskyldunnar aftur heim til Winton River. Líf Lydiu, sem enn er ásótt af Beetlejuice, fer allt á hvolf þegar uppreisnargjörn unglingsdóttirin Astrid finnur…









