30 fjölbreyttar og geggjaðar hrekkjavökumyndir

Hvað er það sem kemur okkur í hrekkjavökugírinn? Er það búningafjör, graskersskreytingar, beinagrindur og almennur drungi eða býr eitthvað stærra þarna meira að baki?

Kannski er líka stundum bara frussugaman að fagna hinu yfirnáttúrulega, prakkarast og horfa á skítmikið af hryllingsmyndum.

Eða alls konar myndum með hryllingsívafi….

Hrekkjavaka er enn tiltölulega nýlegt fyrirbæri í íslenskri menningu en flestallir landsmenn hafa líklega upplifað sinn skerf af gleðinni í gegnum dægurmenninguna. Því er gráupplagt að dusta aðeins rykið af spóluhillunni eða ná í sjónvarpsfjarstýringuna og skoða ýmsar skuggalegar, safaríkar og nammigóðar kvikmyndir sem eru líklegar til þess að koma fólki í sannan hrekkjavökugír, með einum eða öðrum hætti.

Þetta eru 30 stykki. Kannaðu hversu margar þú hefur séð.

Neðangreindum kvikmyndum er raðað eftir aldri:

Halloween

Halloween 1978

Hrollvekja, Spennutryllir · 91 mín16 áraIMDb 7.7

Sagan gerist árið 1963 á hrekkjavökuhátíðinni í Bandaríkjunum. Lögreglan er kölluð til Lampkin götu nr. 43 og finnur þar hina 15 ára gömlu Judith Myers stungna til bana af 6 ára gömlum bróður hennar, Michael. Eftir að…

Gefa einkunn

Halloween III: Season of the Witch

Halloween III: Season of the Witch 1982

Hrollvekja, Vísindaskáldskapur, Ráðgáta · 96 mín16 áraIMDb 5.2

Morð og sjálfsmorð á gjörgæslu á spítala verður til þess að læknir á vakt rannsakar málið, og kemst að því að klikkaður leikfangasmiður hefur ill áform um að drepa eins mikið af fólki og hann getur á Halloween…

Gefa einkunn

Clue

Clue 1985

Gaman, Spennutryllir, Glæpa · 94 mín6 áraIMDb 7.3

Myndin fjallar um sex gesti, bryta og þernu, en þau eru öll flækt í morðið á sex manns. Gestirnir hittast allir í Hill House þar sem við komumst að því að Professor Plum vinnur í D.C. þar sem allir aðrir búa. Mustard…

Gefa einkunn

Hellraiser

Hellraiser 1987

Hrollvekja, Spennutryllir · 94 mín16 áraIMDb 6.9

Myndin fjallar um mann og konu sem flytja inn í gamalt hús og finna forljóta veru - hálfbróður mannsins, sem einnig er fyrrum elskhugi konunnar - í felum á efri hæðinni. Eftir að hann hefur tapað jarðneskum líkama sínum…

Gefa einkunn

Beetlejuice

Beetlejuice 1988

Gaman, Ævintýri · 92 mín12 áraIMDb 7.4

Beetlejuice er gamansöm draugasaga og fjallar um ung hjón sem lenda í bílslysi og deyja. Þau snúa síðan aftur sem draugar og fara heim til sín. Í fyrstu virðist allt eins og áður, en fljótlega koma aðrir lifandi íbúar…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

Hellbound: Hellraiser II

Hellbound: Hellraiser II 1988

Hrollvekja, Spennutryllir · 97 mín16 áraIMDb 6.4

Doctor Channard fær nýjan sjúkling, stúlku sem vill vara við hræðilegum verum sem hafa drepið fjölskyldu hennar, Munkunum, sem bjóða upp á ákafa sælu og sársauka. En Channard hefur verið að leita að leið til heljar í…

Gefa einkunn

Ernest Scared Stupid

Ernest Scared Stupid 1991

Gaman, Hrollvekja, Fjölskylda · 91 mín6 áraIMDb 5.9

Ernest leysir óvart úr læðingi ljótt tröll, sem ætlar sér að breyta börnum í trédúkkur, í bænum Briarville í Missouri. Nú þarf Ernest að grípa til sinna ráða og kveða tröllið í kútinn.

Gefa einkunn

The Addams Family

The Addams Family 1991

Gaman, Ævintýri · 99 mín12 áraIMDb 7.0

Addams fjölskyldan daðrar við dauðann á margvíslegan hátt, og verur eins og afhoggin hönd er þjónn þeirra. Þau eru einnig nokkuð auðug. Ennfremur koma bæklaður bókhaldari og okurlánari við sögu, og áætlanir um smygla…

Gefa einkunn

Dracula

Dracula 1992

Rómantík, Hrollvekja, Ævintýri · 128 mín16 áraIMDb 7.4

Þessi útgáfa af sögunni um Drakúla er byggð á sígildri sögu Bram Stoker með sama nafni. Ungur lögfræðingur er ráðinn til starfa í drungalegu þorpi í austur Evrópu. Hann er tekinn höndum og settur í fangelsi af…

Gefa einkunn

Interview with the Vampire: The Vampire Chronicles

Interview with the Vampire: The Vampire Chronicles 1994

Drama, Ævintýri · 123 mín16 áraIMDb 7.5

Það er aðeins eitt ár síðan landeigandinn Louis missi eiginkonu sína af barnsförum. Bæði konan og barnið dóu, og nú hefur hann misst viljann til að lifa. Vampíran Lestat vill hjálpa manninum og býður honum að verða…

Gefa einkunn

The Crow

The Crow 1994

Spenna, Spennutryllir, Ævintýri · 102 mín16 áraIMDb 7.5

Gítarleikarinn Eric Draven er reistur upp frá dauðum af kráku, ári eftir að hann og unnusta hans eru myrt. Krákan leiðbeinir honum í gegnum land hinna lifandi og leiðir hann heim til þeirra sem drápu hann og kærustuna…

Gefa einkunn

From Dusk Till Dawn

From Dusk Till Dawn 1996

Spenna, Hrollvekja, Spennutryllir · 108 mín16 áraIMDb 7.2

Seth Gecko og yngri bróðir hans Richard eru á flótta eftir blóðugt bankarán í Texas. Þeir sleppa yfir landamærin yfir til Mexíkó, og verða hólpnir daginn eftir þegar þeir greiða skatt til höfuðpaurs helsta…

Horfa:Netflix
Gefa einkunn

Practical Magic

Practical Magic 1998

Gaman, Rómantík, Drama · 103 mín12 áraIMDb 6.4

Sally og Gillian Owens hafa alla tíð vitað að þær væru ekki eins og fólk er flest. Eftir að þær misstu foreldra sína ólu frænkur þeirra þær upp á heimili sem vægast sagt var óvenjulegt og þar sem engum reglum var fylgt…

Gefa einkunn

Idle Hands

Idle Hands 1999

Gaman, Hrollvekja, Spennutryllir · 90 mín16 áraIMDb 6.3

Hinn sautján ára gamli iðjuleysingi Anton Tobias, vaknar að morgni hrekkjavökunnar, og uppgötvar að báðir foreldrar hans hafa breyst í hauslausar hrekkjavökuskreytingar. Eftir að hafa talað við vini sína, sem eru álíka…

Horfa:Netflix
Gefa einkunn

Sleepy Hollow

Sleepy Hollow 1999

Rómantík, Hrollvekja, Ráðgáta · 105 mín16 áraIMDb 7.3

Sagan gerist snemma í sögu Bandaríkjanna, þegar ungur lögreglumaður, Ichabod Crane er sendur frá New York, til litla bæjarins Sleepy Hollow til að rannsaka röð af hryllilegum morðum. Þegar hann kemur í bæinn þá segir…

Gefa einkunn

Ginger Snaps

Ginger Snaps 2000

Drama, Hrollvekja, Ævintýri · 108 mín16 áraIMDb 6.8

Táningssysturnar Ginger 16 ára og Brigitte 15 ára eru helteknar af dauðanum. En kvöld eitt er önnur þeirra bitin af varúlfi.

Gefa einkunn

House of 1000 Corpses

House of 1000 Corpses 2003

Hrollvekja · 89 mín16 áraIMDb 6.0

Tvö pör, Jerry, Bill, Mary og Denise, fara í ferðalag í leit að skrítnum stöðum utan alfaraleiðar, í þeim tilgangi að skrifa um þá bók. Þegar þau hitta Captain Spaulding, þá heyra þau um goðsögnina Dr. Satan. Þegar þau…

Gefa einkunn

Monster House

Monster House 2006

Gaman, Fjölskylda, Ráðgáta · 91 mín7 áraIMDb 6.7

Táningurinn DJ er að fylgjast með nágranna sínum Nebbercracker hinum megin götunnar í götunni þeirra í úthverfinu, sem eyðileggur þríhjól krakkanna sem fara yfir lóðina hans. Þegar foreldrar DJ fara í ferðalag að kvöldi…

Gefa einkunn

Hatchet

Hatchet 2006

Gaman, Hrollvekja, Spennutryllir · 84 mínIMDb 5.7

Þegar hópur ferðamanna í bátsferð í New Orleans strandar úti í óbyggðunum, þá breytist ferðin í hrottalega martröð.

Gefa einkunn

Trick 'r Treat

Trick 'r Treat 2007

Hrollvekja, Spennutryllir · 82 mín16 áraIMDb 6.7

Fimm samtengdar sögur sem gerast á Hrekkjavökunni: Skólastjóri lifir tvöföldu lífi og er einnig raðmorðingi; jómfrú í menntaskóla hittir loksins draumaprinsinn; unglingahópur gerir ljótan grikk; kona sem hræðist myrkrið…

Gefa einkunn

Coraline

Coraline 2009

Drama, Fjölskylda, Teiknað · 100 mín9 áraIMDb 7.8

Ævintýragjörn stúlka finnur nýjan heim sem reynist vera undarleg og breytt útgáfa af hennar eigin óþolandi heimili. Heimurinn býr þó yfir óþægilegum leyndarmálum.

Gefa einkunn

We Need to Talk About Kevin

We Need to Talk About Kevin 2011

Drama, Spennutryllir · 112 mínÖllum leyfðIMDb 7.4

Eva hefur alltaf verið óörugg í móðurhlutverkinu og samband hennar við son sinn,Kevin, hefur verið þyrnum stráð allt frá fæðingu hans. Kevin er nú fimmtán ára gamall og eftir að hann hefur framið ólýsanlegan og…

Gefa einkunn

Hotel Transylvania

Hotel Transylvania 2012

Gaman, Fjölskylda, Teiknað · 91 mín7 áraIMDb 7.1

Velkomin á Hótel Transylvaníu, fimm stjörnu hótel Drakúla markgreifa, þar sem skrýmsli og fjölskyldur þeirra geta notið lífsins, og verið þau sjálf án þess að einhver sé að ónáða þau. Drakúla hefur ákveðið að halda…

Gefa einkunn

Sinister

Sinister 2012

Hrollvekja, Spennutryllir, Glæpa · 110 mín16 áraIMDb 6.8

Myndin segir frá rithöfundinum Ellison Oswald sem hefur sérhæft sig í að skrifa sakamálasögur sem eru byggðar á sönnum atburðum. Til að fá innblástur fyrir næstu bók sína flytur hann með fjölskyldu sína í hús þar sem…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

ParaNorman

ParaNorman 2012

Gaman, Ævintýri, Teiknað · 93 mín7 áraIMDb 7.0

Norman Babcock er vel gefinn og greindur 11 ára strákur og það eina sem er óvenjulegt við hann er að flestir kunningjar hans eru dauðir. ParaNorman gerist í litla bænum Blythe Hollow sem var vettvangur mikilla og…

Gefa einkunn

The Guest

The Guest 2014

Spenna, Spennutryllir, Ráðgáta · 101 mín16 áraIMDb 6.7

Hermaður kemur til Peterson fjölskyldunnar og kynnir sig sem vin sonar þeirra sem dó í bardaga. Eftir að fjölskyldan býður manninum inn á heimili sitt, þá byrja að eiga sér stað slysaleg dauðsföll sem virðast tengjast…

Horfa:Síminn
Gefa einkunn

The Batman

The Batman 2022

Spenna, Drama, Glæpa · 175 mín12 áraIMDb 7.8

Leðurblökumaðurinn, Batman, kemst á snoðir um spillingu í Gotham borg sem tengist fjölskyldu hans. Á sama tíma glímir hann við skelfilegan raðmorðingja sem gengur undir nafninu Gátumaðurinn, eða The Riddler.

Gefa einkunn

Terrifier 2

Terrifier 2 2022

Hrollvekja · 138 mínIMDb 6.0

Trúðurinn Art snýr aftur í litla bæinn Miles County eftir að hafa verið reistur upp frá dauðum af illum öflum. Þar beinir hann spjótum sínum að unglingsstelpu og yngri bróður hennar að kvöldi Hrekkjavökunnar.

Gefa einkunn

Barbarian

Barbarian 2022

Hrollvekja, Spennutryllir · 102 mínIMDb 7.0

Kona sem gistir í Airbnb íbúð kemst að því að húsið sem hún leigði er ekki allt eins og sýnist. Svo virðist sem íbúðin hafi verið tvíbókuð og undarlegur maður er þar einnig. Hún ákveður þrátt fyrir það að halda kyrru…

Gefa einkunn

Beetlejuice Beetlejuice

Beetlejuice Beetlejuice 2024

Gaman, Hrollvekja, Ævintýri · 104 mín12 áraIMDb 6.6

Eftir óvæntan fjölskylduharmleik snúa þrjár kynslóðir Deetz fjölskyldunnar aftur heim til Winton River. Líf Lydiu, sem enn er ásótt af Beetlejuice, fer allt á hvolf þegar uppreisnargjörn unglingsdóttirin Astrid finnur…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn