
Lífið er pólitík og það er listin svo sannarlega líka. Kosningar víða um veröld eru handan við hornið og að því gefnu er gráupplagt að renna yfir 20 fjölbreytta kvikmyndatitla þar sem kosningar með öllu tilheyrandi (forsetar í embætti, skandalar og alls konar!) er í brennidepli.
Kannaðu hversu margar þú hefur séð.

Mr. Smith Goes to Washington 1939
Jeffrey Smith trúir því að börnin séu framtíðin og þau eigi skilið að fá styrk til að komast út í náttúruna.. Þegar Jeff, sem er einfeldningur og hugsjónamaður, er skipaður í öldungardeild Bandaríkjaþings, þá á hann…

The Manchurian Candidate 1962

All the President's Men 1976
Sannsöguleg mynd sem fjallar um Bob Woodward og Carl Bernstein, blaðamenn við Washington Post sem rannsaka ráðgátuna á bakvið Watergate innbrotið, sem leiddi til afsagnar Richard Nixon Bandaríkjaforseta snemma á áttunda…

The American President 1995
Andrew Shepherd er um það bil að ljúka fyrsta kjörtímabili sínu sem forseti Bandaríkjanna. Hann er ekkill og á unga dóttur og nýtur vinsælda. Endurkjör hans lítur vel út. Það er þangað til hann hittir Sydney Ellen Wade…

Nixon 1995
Pólitísk kvikmynd sem fjallar um æviskeið Bandaríkjaforseta Richard Nixon og Watergate hneykslið. Oliver Stone fjallar hér um stíft kvekara uppeldi forsetans fyrrverandi, hvernig hans pólitísku skoðanir byrjuðu að…

Black Sheep 1996
Myndin fjallar um tilvonandi fylkisstjóra Washington ríkis, Al Donnelly, sem gengur allt í haginn, nema að hann á yngri bróður, Mike, sem er það eina sem gæti komið í veg fyrir kjör hans. Til að koma í veg fyrir að…

Wag the Dog 1997
Eftir að hafa verið gripinn glóðvolgur í kynlífshneyksli, 14 dögum fyrir kosningar, þá virðist sem Bandaríkjaforseti hafi misst alla möguleika á endurkjöri. Einn af ráðgjöfum hans reynir að redda málum, og hefur samband…

Bulworth 1998
Bulworth er þingmaður demókrata sem býður sig fram til endurkjörs í Kaliforníu árið 1996. Bulworth er þreyttur á því að gefa afslátt af eigin skoðunum, og leiður á lífinu, og ákveður því að panta leigumorðingja til að…

Primary Colors 1998
Jack Stanton ætlar að bjóða sig fram í forsetaembættið og fær til liðs við sig litríkan hóp sérfræðinga á sviði pólitíkur og almannatengsla. Þar fara fremst í flokki Richard Jemmons og Libby Holden. Við fylgjumst með…

Dick 1999
Þegar blaðamennirnir Bob Woodward og Carl Bernstein birtu fréttina um að forseti Bandaríkjanna Richard Nixon vissi um tilraun til að hlera höfuðstöðvar demókrataflokksins í Watergate byggingunni, þá sögðu þeir að…

The Contender 2000
Eftir að varaforsetinn deyr, þá ákveður forseti Bandarikjanna, sem er að nálgast lok kjörtímabilsins, að gera nokkuð sögulegt, og velja konu í embættið. Sú sem verður fyrir valinu er öldungardeildarþingmaður sem skiptir…

Napoleon Dynamite 2004
Forvitnasti íbúinn í Preston í Idaho, hinn vinalegi en óvinsæli Napoleon Dynamite, sem vill ekkert frekar en að vera eins og allir hinir, býr með ömmu sinni og 32 ára gömlum bróður sínum ( sem stundar netspjall sem er…

Election 1999
Tracy Flick er duglegasti nemandinn í Carver High skólanum, og á í ástarsambandi við einn af kennurunum sínum. Annar kennari, félagsfræðikennarinn Hr. McAllister, á í ástarsambandi við bestu vinkonu eiginkonu sinnar…

Milk 2008
Myndin Milk er byggð á sannri sögu stjórnmálamannsins og mannréttindafrömuðsins Harvey Milk, en hann braut blað í sögu Bandaríkjanna þegar hann var fyrsti opinberlega samkynhneigði maðurinn sem kosinn var til opinbers…

The Manchurian Candidate 2004
Þegar herflokkurinn hans lendir í fyrirsát í Persaflóastríðinu, þá bjargar Raymomd Shaw liðþjálfi félögum sínum eftir að yfirmaður hans, Ben Marco, rotast. Shaw notfærir sér reynsluna sem innlegg í stjórnmálin, og nær á…
Netflix
Frost/Nixon 2008
Verðlaunamyndin Frost/Nixon segir frá sönnum atburðum árið 1977, en hinn ungi og metnaðarfulli sjónvarpsmaður David Frost fékk tækifæri lífs síns þegar sjálfur Richard Nixon, fyrrum forseti Bandaríkjanna samþykkti að…

The Ides of March 2011
Steven Myers er ungur hugsjónarmaður sem þrátt fyrir ungan aldur er talinn einn allra besti kosningastjóri Bandaríkjanna, enda hefur hann alltaf náð markmiðum sínum fyrir þá frambjóðendur sem hann hefur unnið fyrir. Nú…

The Campaign 2012
Cam Brady hefur verið þingmaður Norður-Karólínuríkis í nokkur kjörtímabil í röð og ætlar sér að sitja lengur. Þeir eru þó nokkrir sem myndu gjarnan vilja skipta honum út og þeirra á meðal eru forstjórarnir Glen og Wade…

The Purge: Election Year 2016
Tveimur árum eftir að hann ákvað að drepa ekki manninn sem drap son hans, verður fyrrum lögregluforinginn Barnes yfirmaður öryggismála hjá öldungadeildarþingmanninum Charlene Roan, sem keppir um að verða forsetaefni…





