Aðalleikarar
Leikstjórn
Raiders of the lost ark segir frá ferðalagi fornleifafræðingsins Indiana Jones(Harrison Ford) víðsvegar um heiminn í....tja, leitinni að hinni týndu örk árið 1936. Ég hafði soldið gaman af þessari mynd en ég verð að vera hróplega ósammála langflestum með að þetta sé einhver snilld. Hún þjáist nokkuð af skort á stíl og lit og handritið er engan veginn algott. Að mínu mati er ROTLA létt og skemmtileg ævintýramynd en lengra nær hún ekki. Ford leikur þó Jones alveg frábærlega og heldur myndinni á floti og Karen Allen leikur hörkukvendi nokkurt mjög vel og er samleikur þeirra tveggja eitt og sér þess virði að sjá myndina. ROTLA gengur svona upp og niður í gæðum út sýningartímann og nasistaatriðin eru skondin. Síðasta korterið þynnist myndin óþægilega mikið en lokaatriðið er samt smellið. Góð mynd í heild þrátt fyrir að vera ekki svona frábær. Indiana Jones er áhugaverður og skemmtilegur karakter og því segi ég tvær og hálf stjarna.
Fyrsta og besta Indiana Jones myndin er í raun sú tuttugasta og fjórða, ef sjónvarpsmyndirnar eru taldar með og þær hafðar í réttri atburðarás. Í þessu tilfelli er fornleifafræðingurinn Indiana Jones sendur af bandarísku leyniþjónustunni til að hafa upp á sáttmálsörkinni týndu úr Gamla testamentinu áður en þýski herinn nær henni, en nasistarnir telja sig vera komna á slóð hennar í stórtækum uppgreftri í óbyggðum Egyptalands. Enda þótt nasistarnir hafi í reynd varið miklum tíma í leit að alls kyns dultrúarfornminjum á fjórða áratugnum, hafa þeir sennilega ekki leitað sérstaklega að sáttmálsörkinni. Engu að síður er hugmyndin að leit þeirra í myndinni mjög góð, því margir þeirra voru áhugamenn um þessi yfirnáttúrulegu fyrirbæri og töldu mögulegt að nýta þau sér til framdráttar. Harrison Ford er sem fæddur í hlutverk hetjunnar og Karen Allen er fín sem hjálparhella hans. Leitin að týndu örkinni er því í heildina mjög góð ævintýramynd og vel þess virði að sjá.
Steven Spielberg og George Lucas sameina hér krafta sína í fyrstu Indiana Jones myndinni. Og hvað gerist? Bara fín mynd.
Indiana þarf að fara til Egyptalands til að finna Sáttmálsörkinni á undan nasistum sem hafa leitað lengi að örkinni. Flott mynd, góð spenna, sumir góðir leikarar og sumir vondir leikarar.
Sú fyrsta og að mínu mati besta Indiana Jones myndin. Indiana Jones (Harrison Ford) er hér ráðin til að finna hina týndu örk, sem geymdi boðorðin 10. En á meðan eru nasistarnir að leita að henni og nota hana til ills. Þetta er svakalega góð mynd, vel skrifuð og leikstýrð. Ef þið hafið ekki séð hana þá endilega drífið ykkur upp í leigu og takið hana. Þið sjáið ekki eftir því !
Indiana Jones: Raders of the Lost Ark er frábær mynd og er hún sú næsta besta í syrpuni um forleifafræðingin Indiana Jones. Myndin fjallar um það að Jones er sendur til Egiptalands til að finna hinna tíndu örk sem geyma á leifarnar af töflunum sem boðorðin 10 standa á. Bandaríska leyniþjónustan kemst á snoðir um að Nasistar eru einnig að leita af örkinni. Þegar Indiana leggur af stað fer hann til Nepal og kynnist hann þar stúlku sem verður svo fylgdar mær hans í ferðinni. Og þegar komið er til Egiptalands hefst fjörið fyrir alvöru. Handritið af þessari mynd er mjög gott og hefur snillingnum George Luckas tekist vel upp. Spilberg heldur trausta tökum um taumana á myndini sem leikstjóri og á hann hrós skilið. Öll tækniatriði í myndini eru mjög vel gerð og ef það er einhver sem ekki hefur séð Indiana Jones myndirnar þá skal hann hlaupa út á næstu leigu og taka allar þrjár myndinar og horfa á þær.
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
George Lucas, Lawrence Kasdan, Mick Jagger
Framleiðandi
Paramount Pictures
Kostaði
$18.000.000
Tekjur
$389.925.971
Vefsíða:
Aldur USA:
PG