
Jólaandanum fylgir alltaf ýmis stemning með góðri aðstoð frá dægurmenningu. Í hugum sumra bresta hátíðirnar ekki á fyrr en rétta lagið er komið í gang, jafnvel rétti baksturinn og að sjálfsögðu réttu jólamyndirnar.
Það er annars óskrifuð regla að til séu fleiri slæmar kvikmyndir með jólaþema en framúrskarandi. Því er kjörið að renna í gegnum 24 jólakvikmyndir, bæði frægar og faldar, léttar sem truflandi, og hvetjum við lesendur til að smella þeim á dagatalið.
Við bendum á að margar myndanna verða sýndar nú í desember í Sambíóunum og má sjá listann hér.
Einnig er boðið upp á sumar myndanna í Bíó paradís.
Ein jólamynd á dag kemur hátíðarskapinu í lag með glæsibrag.
1. (des)

Batman Returns 1992
Eftir að hafa borið sigurorð af Jókernum etur Batman nú kappi við nýjan óvin, Mörgæsina - mann sem vill verða viðurkenndur inn í samfélagslíf Gotham borgar. Hinn spillti athafnamaður Max Schreck er kúgaður til að hjálpa…
2.
3.

The Holiday 2006
Iris er ástfangin af manni sem er að fara að giftast annarri konu. Hinum megin á hnettinum áttar Amanda sig á því að sambýlismaður hennar hefur verið henni ótrúr. Konurnar hafa aldrei hist og búa langt í burtu frá…
4.
5.
6.

The Chronicles of Narnia: The Lion, the Witch and the Wardrobe 2005
Fjögur börn úr sömu fjölskyldu þurfa að flýja úr bænum af því að Fyrri heimsstyrjöldin er hafin. Kona og prófessor, taka börnin að sér. Þegar þau eru í feluleik einn daginn og eru að leita að þeirri yngstu, Lucy, finnur…
7.

Gremlins 1984
Myndin segir frá því þegar strákur í ógáti, brýtur þrjár mikilvægar reglur varðandi nýja krúttlega gæludýrið sitt, og leysir úr læðingi hjörð meinfýsinna og ógeðfelldra lítilla skrýmsla. Reglurnar eru eftirfarandi: 1…
8.

The Hateful Eight 2015
Hér segir frá John „The Hangman“ Ruth sem er á leiðinni með útlagann Daisy „The Prisoner“ Domergue til Red Rock-bæjar þar sem hún er eftirlýst fyrir morð. Á leiðinni í gegnum fjallaskarð í Wyoming lenda þau í blindbyl…
9.

The Long Kiss Goodnight 1996
Samantha Caine er húsmóðir í úthverfi. Hún er fyrirmyndarmóðir 8 ára stúlku, Caitlin. Hún býr í Honesdale, PA, og vinnur sem kennari og býr til bestu Rice Krispie kökurnar í bænum. En þegar hún fær höfuðhögg byrjar hún…
10.

Rare Exports 2010
Á aðfangadagskvöld í Finnlandi. Sjálfur jólasveinninn finnst við fornleifauppgröft. Stuttu síðar byrja börn að hverfa. Feðgar elta Jóla uppi og hyggjast selja hann til fyrirtækisins sem fjármagnaði uppgröftinn. En þá…
11.

Home Alone 1990
Það eru komin jól og McAllister fjölskyldan er að undirbúa að fara í frí til Parísar í Frakklandi. Yngsti fjölskyldumeðlimurinn Kevin lenti í rifrildi við eldri bróður sinn Buzz og var sendur upp í herbergið sitt sem…
12.

The Christmas Chronicles 2018
Saga systkinanna Kate og Teddy Pierce, en þau ætla að reyna að taka ljósmynd af Jólasveininum, en sú tilraun breytist í óvænta ferð sem flest börn dreymir um.
Netflix13.

Kiss Kiss Bang Bang 2005
Smáþjófurinn Harry Lockhart, sem er á flótta í Los Angeles undan lögreglunni eftir misheppnað rán, er af slysni fenginn í leikprufu fyrir hlutverk rannsóknarlögreglumanns í kvikmynd, og er einnig boðið í partý. Hann…
14.

Elf 2003
Buddy var á munaðarleysingjahæli sem barn en stalst í burtu í poka jólasveinsins og endaði á norðurpólnum. Seinna, þegar hann er orðinn fullvaxinn maður, sem óvart var alinn upp af álfum, þá leyfir jólasveinninn honum…
15.

Love Actually 2003
Hér segir frá nokkrum ólíkum persónum sem þekkjast og tengjast mismikið sín á milli en eiga það allar sameiginlegt að vera að leita að hinni einu sönnu ást. En eins og allir vita eru vegir ástarinnar órannsakanlegir og…
16.

Christmas Vacation 1989
Clark Wilhelm Griswold langar að halda hin fullkomnu Griswold fjölskyldujól. Eftir margra mánaða undirbúning býður hann bæði foreldrum sínum og tengdaforeldrum, og einnig frænda sínum Louis og elliærri frænku sinni…
17.

Silent Night, Deadly Night 1984
Eftir að foreldrar hans eru drepnir verður Billy sturlaður eftir slæma meðferð á munaðarleysingjahæli. Hann fer síðar á stjá íklæddur jólasveinabúningi – en það rennur á hann morðæði sem endar með hrollvekjandi…
18.

Jingle All the Way 1996
Howard Langston, sölumaður í dýnufyrirtæki, er alltaf upptekinn og hefur aldrei tíma fyrir son sinn, sem verður sífellt fyrir vonbrigðum með pabba sinn. Eftir að Howard missir af karatekeppni hjá syni sínum, þá vill…
19.

Eyes Wide Shut 1999
Læknir verður heltekinn af því að eiga kynmök, eftir að eiginkona hans viðurkennir að hafa haft kynferðislegar langanir til manns sem hún hitti og refsar honum fyrir þann óheiðarleika að viðurkenna ekki eigin kynóra…
20.
21.

The Grinch 2018
Trölli býr í fjalli fyrir ofan Hver-bæ sem eitt sinn var heimabær hans og lætur það fara alveg sérstaklega í taugarnar á sér þegar fyrrverandi nágrannar hans byrja að skreyta fyrir jólin, kaupa gjafir og gleðjast. Hann…
22.

The Muppet Christmas Carol 1992
Endursögn af hinni sígildu sögu Dickens um nirfilinn Ebenezer Scrooge. Draugar fortíðar, nútíðar og framtíðar heimsækja hann til að sýna honum heiminn og tilveruna í nýju ljósi.
23.

Home Alone 2: Lost in New York 1992
Kevin McCallister er mættur aftur. Í þetta skiptið er hann í New York borg með nóg af peningum og kreditkortum, og ákveður að skemmta sér eins og hann getur, og breyta borginni í sinn eigin leikvöll. En Kevin er ekki…
24.

Brazil 1985
Sam Lowry er langhrjáður tækniveldissinni í framtíðarsamfélagi sem er að hnigna. Hann dreymir um líf þar sem hann getur flúið frá tækninni og skrifræðinu, og eytt eilífðinni með draumakonunni. Á meðan hann reynir að…








