Jingle All the Way
1996
Frumsýnd: 13. desember 1996
Two Dads, One Toy, No Prisoners.
89 MÍNEnska
20% Critics 34
/100 Brian Levant fékk Razzie verðlaunin fyrir verstu leikstjórn.
Howard Langston, sölumaður í dýnufyrirtæki, er alltaf upptekinn og hefur aldrei tíma fyrir son sinn, sem verður sífellt fyrir vonbrigðum með pabba sinn. Eftir að Howard missir af karatekeppni hjá syni sínum, þá vill hann endilega reyna að bæta syni sínum það upp. Á þessum tímapunkti segir sonurinn Howard að honum langi í ofurhetjudúkku úr uppáhaldssjónvarpsþættinum... Lesa meira
Howard Langston, sölumaður í dýnufyrirtæki, er alltaf upptekinn og hefur aldrei tíma fyrir son sinn, sem verður sífellt fyrir vonbrigðum með pabba sinn. Eftir að Howard missir af karatekeppni hjá syni sínum, þá vill hann endilega reyna að bæta syni sínum það upp. Á þessum tímapunkti segir sonurinn Howard að honum langi í ofurhetjudúkku úr uppáhaldssjónvarpsþættinum sínum, Turbo Man. Til allrar óhamingju þá er Howard alltof seinn að redda gjöfinni, enda komið aðfangadagskvöld, og Turbo Man er uppseldur nær allsstaðar. Nú þarf Howard að ferðast út um alla borg og keppa við aðra pabba eins og hann, um Turbo Man dúkku, skyldi hún nú finnast einhversstaðar. Póstmaðurinn Myron er einn þessara pabba sem ætlar sér einmitt aldeilis að redda sér Turbo Man dúkku, og fara síðan á vetrarskrúðgönguna þar sem Turbo Man mun koma fram. ... minna