The Grinch
2018
Frumsýnd: 9. nóvember 2018
Stealing Christmas 2018.
90 MÍNEnska
59% Critics
51% Audience
51
/100 Trölli býr í fjalli fyrir ofan Hver-bæ sem eitt sinn var heimabær
hans og lætur það fara alveg sérstaklega í taugarnar á sér þegar
fyrrverandi nágrannar hans byrja að skreyta fyrir jólin, kaupa
gjafir og gleðjast. Hann ákveður því að taka til sinna ráða, læðast
inn í bæinn að næturlagi og hreinlega stela öllum gjöfunum og
skreytingunum þannig að... Lesa meira
Trölli býr í fjalli fyrir ofan Hver-bæ sem eitt sinn var heimabær
hans og lætur það fara alveg sérstaklega í taugarnar á sér þegar
fyrrverandi nágrannar hans byrja að skreyta fyrir jólin, kaupa
gjafir og gleðjast. Hann ákveður því að taka til sinna ráða, læðast
inn í bæinn að næturlagi og hreinlega stela öllum gjöfunum og
skreytingunum þannig að íbúarnir nái ekki að halda upp á jólin og
verði jafnfúllyndir og hann er sjálfur. Það sem hann reiknar hins
vegar ekki með er að þótt hann geti í sjálfu sér stolið því efnislega
sem tengt er jólunum getur hvorki hann né nokkur annar stolið
jólagleðinni sjálfri. Og hvað gerir Trölli þá?... minna