Possession
2002
Fannst ekki á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 29. nóvember 2002
The past will connect them. The passion will possess them.
102 MÍNEnska
63% Critics 52
/100 Roland Mitchell er bandarískur skólamaður sem er að reyna að ná frama í hinum erfiða heimi sem breska akademían er. Hann á enn eftir að brjótast út úr skugga læriföður síns, þegar hann finnur tvö ástarbréf sem tilheyrðu eitt sinn einu af átrúnaðargoðum hans, frægu skáldi frá Viktoríutímanum. Eftir smá eftirgrennslan, þá fer Michell að gruna konu... Lesa meira
Roland Mitchell er bandarískur skólamaður sem er að reyna að ná frama í hinum erfiða heimi sem breska akademían er. Hann á enn eftir að brjótast út úr skugga læriföður síns, þegar hann finnur tvö ástarbréf sem tilheyrðu eitt sinn einu af átrúnaðargoðum hans, frægu skáldi frá Viktoríutímanum. Eftir smá eftirgrennslan, þá fer Michell að gruna konu eina, ekki eiginkonu skáldsins, sem einnig var vel þekkt skáld á Viktoríutímanum, um að hafa skrifað bréfin. Roland fær hjálp frá Dr. Maud Bailey, sem er sérfræðingur um ævi konunnar sem um ræðir. Nú fara púslin að raðast saman og þau komast að sögu af forboðnu ástarsambandi, auk þess sem ástin kviknar á milli þeirra tveggja. Þau þurfa einnig að halda uppgötvun sinni leyndri sem lengst svo hún falli ekki í hendur keppinautar þeirra, Fergus Wolfe.... minna