Resident Evil heldur toppsætinu í íslenskum bíóum


Þó að aðsókn hafi dregist saman heldur hrollvekjan Resident Evil (2026) áfram að ráða ríkjum í íslenskum kvikmyndahúsum.

Þó að aðsókn hafi dregist saman heldur hrollvekjan Resident Evil áfram að ráða ríkjum í íslenskum kvikmyndahúsum. Nýjar myndir eins og Avengers Endgame: Encore gera sig þó líklegar.  Avengers: Endgame Encore er sérstök endurútgáfa af Avengers: Endgame frá árinu 2019.  Encore-útgáfan er um 4 mínútum lengri og inniheldur nýtt efni sem tengir… Lesa meira

Eyríki, ástarbréf til Grímseyjar á Nordisk Panorama


Heimildarmyndin Eyríki var á dagskrá kvikmyndahátíðarinnar Nordisk Panorama í Malmö.

Heimildarmyndin Eyríki, eða Island Nation, var á dagskrá Nordisk Panorama í Malmö, þar sem sýndar voru norrænar heimildar- og stuttmyndir dagana 17. til 22. september. Myndin er væntanleg í Bíó paradís 6. október næstkomandi. Myndin er eftir Nikolai Galitzine og fjallar um samfélagið í Grímsey, 60 kílómetrum norður af Íslandi.… Lesa meira

Hildur Guðnadóttir samdi tónlist með beinum fyrir 28 Years Later


Hildur Guðnadóttir smíðaði heilan hljóðheim úr beinum fyrir 28 Years Later: The Bone Temple

Kvikmyndatónskáldið og Óskarsverðlaunahafinn Hildur Guðnadóttir segir frá því í nýju viðtali við Screen Daily að hún hafi smíðað heilan hljóðheim úr beinum fyrir 28 Years Later: The Bone Temple, framhald hrollvekjunnar 28 Years Later. Í viðtalinu lýsir Hildur því hvernig hún bjó til eins konar „beinasveit“ fyrir myndina. Hún hafði… Lesa meira

Ísland: bíóland rifjar upp íslenska kvikmyndasögu á RÚV


Heimildaþáttaröðin Ísland: bíóland er aftur aðgengileg á RÚV

Heimildaþáttaröðin Ísland: bíóland er aftur aðgengileg á RÚV og býður upp á kærkomið tækifæri til að rifja upp sögu íslenskra kvikmynda frá fyrstu áratugum tuttugustu aldar til samtímans. Þættirnir eru tíu talsins og í leikstjórn Ásgríms Sverrissonar. Í röðinni er farið yfir þróun íslenskrar kvikmyndagerðar með kvikmyndabrotum og viðtölum við… Lesa meira

K2-mynd um John Snorra opnar RIFF


RIFF, hófst í Háskólabíói í gær með opnunarmyndinni The Last First: Winter K2

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, hófst í Háskólabíói í gær fimmtudaginn 24. september með opnunarmyndinni The Last First: Winter K2, heimildarmynd um örlagaríkan leiðangur á fjallið K2 í Karakoram-fjallgarðinum á landamærum Pakistans og Kína þar sem íslenski fjallagarpurinn John Snorri Sigurjónsson kemur við sögu. Myndin, sem er leikstýrð af Amir… Lesa meira

Sundruð eftir Fan Sissoko keppir á Nordisk Panorama


Sundruð keppir í Malmö í Svíþjóð.

Stutta teiknimyndin Sundruð, eða Hold It Together, eftir Fan Sissoko er á dagskrá kvikmyndahátíðarinnar Nordisk Panorama í Malmö í Svíþjóð. Myndin er íslensk-frönsk teiknuð leikin stuttmynd og er skráð í keppni hátíðarinnar um bestu norrænu stuttmyndina. Samkvæmt hátíðaryfirliti er hún 12 mínútur að lengd. Sagan fylgir Neemu, ungri innflytjandakonu á… Lesa meira

Danska konan valin besta norræna sjónvarpsþáttaröðin


Danska konan var valin besta norræna sjónvarpsþáttaröðin á Freyjuverðlaununum í Helsinki, auk þess sem Trine Dyrholm hlaut verðlaun fyrir leik sinn í aðalhlutverkinu

Íslenska þáttaröðin Danska konan vann til tvennra verðlauna þegar nýju Freyjuverðlaunin voru afhent í fyrsta sinn í Helsinki. Þættirnir voru valdir besta norræna sjónvarpsþáttaröðin og danska leikkonan Trine Dyrholm hlaut einnig verðlaun fyrir leik sinn í aðalhlutverkinu. Danska konan er sex þátta íslensk-frönsk dökk gamansería í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Hann… Lesa meira

Elma kemur í Sjónvarp Símans í október – fyrsta stiklan birt


Fyrsta stiklan úr íslensku spennuþáttaröðinni Elmu er komin út.

Fyrsta stiklan úr íslensku spennuþáttaröðinni Elmu er komin út, en þættirnir verða frumsýndir í Sjónvarpi Símans Premium 15. október næstkomandi. Serían er byggð á glæpasögunni Marrið í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur. Unnur Birna Backman fer með hlutverk rannsóknarlögreglukonunnar Elmu Jónsdóttur og Nikulás Hansen Daðason leikur einnig eitt af aðalhlutverkum.… Lesa meira

Næsta Bíótöfrasýning: The Truman Show – meistaraverk sem á meira erindi en nokkru sinni fyrr


The Truman Show er enn ótrúlega framsýn, fyndin og djúp mynd um frelsi og leitina að sannleikanum í heimi sem reynist vera ein stór tálsýn

The Truman Show kom út árið 1998 og hægt er að færa góð rök fyrir því að hún sé jafn góð eða jafnvel betri í dag en þegar hún kom út fyrir 28 árum. Grunnhugmynd sögunnar er einföld og snjöll. Truman Burbank lifir venjulegu lífi í litlum og fallegum bæ… Lesa meira

Resident Evil réðst á toppinn


Nýja Resident Evil-myndin vinsælust á Íslandi. En hvaða myndir fengu verstu skellina ?

Nýja Resident Evil-myndin vinsælust á Íslandi. En hvaða myndir fengu verstu skellina ? Hrollvekjan Resident Evil (2026) sló í gegn um síðustu helgi í íslenskum bíóhúsum.  Myndin, sem er sýnd á átta skjám, náði að skila inn 10.265.028 krónum og 4.554 áhorfendum. Það setur hana í efsta sæti aðsóknarlistans og… Lesa meira

Sögur sem flestir fótboltaforeldrar ættu að kannast við


Hugmyndin kviknaði, samkvæmt Lilju Nótt, á hliðarlínunni í hennar eigin „boltamömmulífi“.

Ný íslensk gamanþáttaröð, Boltamömmur, er komin í Sjónvarp Símans Premium. Hugmyndin kviknaði, samkvæmt Lilju Nótt, á hliðarlínunni í hennar eigin „boltamömmulífi“, þar sem hún segir alltaf nóg af hasar og drama – jafnvel meira utan vallar en innan hans. Leikstjórn þáttanna er í höndum Hannesar Þórs Halldórssonar og Hafsteins Gunnars… Lesa meira

Iceguys the Movie frumsýnd 30. október – fyrsta stiklan komin


Fyrsta stiklan úr Iceguys the Movie er komin út, en myndin verður frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum 30. október.

Fyrsta stiklan úr Iceguys the Movie er komin út, en myndin verður frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum 30. október. Þegar strákasveitin ICEGUYS villist óvart inn í alþjóðlegu raunveruleikakeppnina Battle of the Boybands, neyðast þeir til að keppa við aðrar strákasveitir til að tryggja sér opnunarpláss á tónleikaferðalagi hinnar goðsagnakenndu Backstreet Boys.… Lesa meira

Resident Evil rís upp frá dauðum – bestu dómar seríunnar og metopnun í kortunum


Ný Resident Evil frá leikstjóra Barbarian og Weapons fær frábæra dóma og stefnir í langstærstu opnun kvikmyndaseríunnar til þessa

Ný Resident Evil kvikmynd frá leikstjóra Weapons og Barbarian er komin í kvikmyndahús og stefnir í langstærstu frumsýningarhelgi seríunnar til þessa. Það virðist vera komið nýtt líf í Resident Evil. Um er að ræða nýja endurræsingu á hinni 24 ára gömlu kvikmyndaseríu. Myndinni er leikstýrt af Zach Cregger, bandaríska leikstjóranum… Lesa meira

No Rest for the Wicked: færeysk hrollvekja með íslenskri tengingu í Bíó Paradís


No Rest for the Wicked er komin í Bíó Paradís, en myndin er færeysk-dönsk-íslensk hrollvekja.

No Rest for the Wicked er komin í Bíó Paradís, en myndin er færeysk-dönsk-íslensk hrollvekja með íslenska framleiðslufyrirtækið True North sem meðframleiðanda. Myndin gerist árið 1862 á afskekktri eyju í Færeyjum. Baldur, ungur sjómaður, verður ástfanginn af Helga, dönskum hvalveiðimanni. Þegar Helgi drukknar í óveðri virðist ástin grafin með honum,… Lesa meira

Latnesk-amerískar konur í fókus á kvikmyndahátíð í Bíó Paradís


Latin American Film Festival Reykjavík snýr aftur í Bíó Paradís.

Latin American Film Festival Reykjavík snýr aftur í Bíó Paradís dagana 15. til 19. september og er í ár helguð kvikmyndum eftir latnesk-amerískar konur. Þetta er fjórða útgáfa hátíðarinnar og samkvæmt Bíó Paradís er markmiðið að fagna samtímakvikmyndum frá Rómönsku Ameríku með sérstakri áherslu á verk kvenleikstjóra. Á dagskrá eru… Lesa meira

Fuglar (og menn) kemur í íslensk bíó 17. september


Heimildarmyndin Fuglar (og menn), sem ber enska titilinn Amongst the Birds, er væntanleg í íslensk bíó 17. september.

Heimildarmyndin Fuglar (og menn), sem ber enska titilinn Amongst the Birds, er væntanleg í íslensk bíó fimmtudaginn 17. september. Myndin er eftir Mika Kaurismäki, Ragnar Axelsson og Ingvar Þórðarson og var heimsfrumsýnd á CPH:DOX fyrr á árinu. Þar er henni lýst sem látlausri, hlýrri og myndrænni kvikmynd um fugla, fólk… Lesa meira

Jón E. Gústafsson um Anorgasmia, Bubba, Björk og upphaf Gettu betur


Leikstjórinn Jón E. Gústafsson er gestur í nýjasta þætti af The Drop-In hjá Reykjavík Grapevine, þar sem hann fer yfir feril sem spannar tónlist, sjónvarp, heimildarmyndagerð og nýjustu kvikmynd sína Anorgasmia: All the Things We Do To Survive. Anorgasmia er nú í Bíó Paradís. Í þættinum lýsir Jón myndinni sem…

Leikstjórinn Jón E. Gústafsson er gestur í nýjasta þætti af The Drop-In hjá Reykjavík Grapevine, þar sem hann fer yfir feril sem spannar tónlist, sjónvarp, heimildarmyndagerð og nýjustu kvikmynd sína Anorgasmia: All the Things We Do To Survive. Anorgasmia er nú í Bíó Paradís. Í þættinum lýsir Jón myndinni sem… Lesa meira

The Pitt, Widow’s Bay og DTF St. Louis stóðu uppi sem sigurvegarar á Emmy verðlaununum


The Pitt, Widow’s Bay og DTF St. Louis voru sigurvegararnir á 78. Primetime Emmy-verðlaununum

The Pitt, Widow’s Bay og DTF St. Louis voru sigurvegararnir á 78. Primetime Emmy-verðlaununum, sem fóru fram í gær, 14. september. The Pitt hlaut verðlaun sem besta dramasería ársins annað árið í röð. Noah Wyle vann einnig aftur sem besti aðalleikari í dramaseríu fyrir leik sinn í þáttunum, sem hafa… Lesa meira

Hvar er Draumurinn? heldur toppsætinu


Spennandi nýjar myndir á topplistanum og og óvæntar breytingar á listanum.

Spennandi nýjar myndir á topplistanum og og óvæntar breytingar á listanum. Helgina 10. til 13. september 2026 væru bæði nýjar myndir og markverðar breytingar á aðsóknarlistanum í íslenskum kvikmyndahúsum. Á toppnum er Hvar er Draumurinn? sem heldur áfram að laða að áhorfendur á annarri viku sinni á lista. Nýjar myndir… Lesa meira

Grímur Hákonarson fer til Kópavogs á sjöunda áratugnum


Grímur Hákonarson er með nýja íslenska kvikmynd í vinnslu.

Grímur Hákonarson er með nýja íslenska kvikmynd í vinnslu sem ber enska titilinn A Favour og íslenska vinnuheitið 200 Kópavogur. Myndin er skrifuð og leikstýrt af Grími og er framleidd af Sarimar Films. Samkvæmt Nordisk Film & TV Fond gerist sagan í Kópavogi á sjöunda áratugnum og fjallar um bræðurna… Lesa meira

Er íslensk kvikmyndagerð í frosti? RIFF setur stöðuna á dagskrá


Bransadagar RIFF  fá í ár óvenju beittan undirtón.

Bransadagar RIFF  fá í ár óvenju beittan undirtón eins og lesa má um á vef hátíðarinnar.  Þar segir að fólk í íslenskum kvikmyndabransa hafi lýst stöðunni í brandsanum sem neyðarástandi og frosti. Erik Hemmendorff, Susan Wendt og Ruben Östlund. Á meðal gesta í ár eru Erik Hemmendorff hjá Plattform Produktion,… Lesa meira

Alexander Skarsgård mætir á RIFF í ár


Sænski leikarinn Alexander Skarsgård verður einn af heiðursgestum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF,  í ár

Sænski leikarinn Alexander Skarsgård verður einn af heiðursgestum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF,  í ár og mætir á hátíðina í tengslum við norræna frumsýningu myndarinnar Wicker. Samkvæmt RIFF mun Skarsgård taka á móti heiðursverðlaunum hátíðarinnar fyrir framúrskarandi listrænan árangur. Sýningin fer fram í Háskólabíói 29. september. RIFF 2026 fer fram… Lesa meira

A24 skoðar Ísland fyrir Death Stranding


Kvikmyndaaðlögun tölvuleiksins Death Stranding mun mögulega verða tekin upp að hluta á Íslandi.

Kvikmyndaaðlögun tölvuleiksins Death Stranding mun mögulega verða tekin upp að hluta á Íslandi. Leikstjórinn Michael Sarnoski, sem gerði kvikmyndirnar Pig og A Quiet Place: Day One, vinnur að myndinni fyrir framleiðslufyrirtækið A24. Í viðtali við Variety segist hann nýlega hafa skilað annarri útgáfu handritsins og vonast til að taka myndina… Lesa meira

Met sumar í kvikmyndahúsum – Íslendingar flykkjast í bíó


Sumarið 2026 sló aðsóknarmet í kvikmyndahúsum í Norður-Ameríku og sterk uppsveifla sést einnig hér heima, þar sem bæði erlendar stórmyndir og íslenskar myndir hafa dregið að sér fjölda gesta

Þeir sem hafa haft áhyggjur af framtíð kvikmyndahúsa geta andað aðeins léttar. Sumarið 2026 varð það stærsta frá upphafi í miðasölu í Norður-Ameríku og á sama tíma benda tölur hér heima til þess að Íslendingar séu einnig farnir að mæta aftur í bíó af krafti. Heildartekjur kvikmyndahúsa í Norður-Ameríku frá… Lesa meira

Um tímann og vatnið fór beint í annað sætið


Um tímann og vatnið byggir á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar og áratugalöngu kvikmyndasafni fjölskyldu hans. Myndin var heimsfrumsýnd á Sundance fyrr á árinu og er nú komin í íslensk bíó

Heimildarmyndin Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar, hefur nú verið frumsýnd hér á landi eftir heimsfrumsýningu á Sundance kvikmyndahátíðinni fyrr á árinu. Um tímann og vatnið er ný heimildarmynd frá National Geographic Documentary Films sem byggir á bók Andra Snæs Magnasonar og áratugalöngu kvikmyndasafni… Lesa meira

Hollywood Norðursins: draumur Baltasars um stærri íslenskan kvikmyndaiðnað


Ísland gæti orðið alvöru miðstöð kvikmyndagerðar.

Kvikmyndaleikstjórinn og leikarinn Baltasar Kormákur ræddi á dögunum um hugmyndina um Ísland sem Hollywood norðursins í hlaðvarpinu Chess After Dark, þó að slíkt "slagorð" sé kannski of stórt fyrir land þar sem veðrið getur lokað heilu tökuplani og markaðurinn er lítill. En þegar Baltasar Kormákur talar um framleiðslufyrirtæki sitt RVK… Lesa meira

Spider-Man heldur toppsætinu en Um tímann og vatnið er skammt undan


Helgin var fjörug í íslenskum kvikmyndahúsum og nýjar myndir kepptu um hylli áhorfenda.

Helgin var fjörug í íslenskum kvikmyndahúsum og nýjar myndir kepptu um hylli áhorfenda. Helgarsalan í íslenskum kvikmyndahúsum var lífleg með nokkrum nýjum myndum í boði fyrir áhorfendur. Spider-Man: Brand New Day hélt sigurgöngu sinni áfram og situr enn á toppnum, þrátt fyrir verulegan samdrátt í aðsókn. Nýjar myndir áberandi Ný… Lesa meira

Hvar er draumurinn? kemur í bíó 3. september


Ný íslensk söngvamynd byggð á lögum Sálarinnar hans Jóns míns kemur í bíó 3. september og gerist í Reykjavík snemma á tíunda áratugnum

Ný íslensk söngvamynd, Hvar er draumurinn?, verður frumsýnd í kvikmyndahúsum 3. september. Sagan segir frá Bjarti, ungum manni sem á fátt annað en vinahóp sinn og skemmtistaðinn Sódóma. Þegar staðurinn stendur frammi fyrir lokun ákveða vinirnir að gera allt sem þeir geta til að bjarga honum. Á sama tíma tekur… Lesa meira

Heitustu myndirnar þessa vikuna


Hvaða myndir eru mest skoðaðar síðustu daga?

Hér er listi yfir þær myndir sem vekja mesta athygli lesenda í lok ágúst 2026. Það er alltaf forvitnilegt að sjá hvaða myndir notendur eru mest að skoða á hverjum tíma á Kvikmyndir.is  Þessa vikuna eru nokkrar myndir sem standa upp úr þegar kemur að aukningu í síðuflettingum. Bæði klassískar… Lesa meira

Spider-Man heldur toppsætinu í íslenskum bíóum


Þrátt fyrir 28% fall heldur Spider-Man: Brand New Day áfram að laða að áhorfendur. Insidious: Out of the Further kemur ný inn á listann.

Þrátt fyrir 28% fall heldur Spider-Man: Brand New Day áfram að laða að áhorfendur. Insidious: Out of the Further kemur ný inn á listann. Helgin 20. til 23. ágúst 2026 var lífleg í kvikmyndahúsum á Íslandi þrátt að margir hafi sótt menningarnótt og maraþon. Toppmyndin í aðsókn var enn og… Lesa meira