Aðalleikarar
Leikstjórn
Ég veit eiginlega ekki alveg hvað ég á að segja um The Game. Sennilega vegna þess að þegar uppi er staðið er lítið um hana að segja og því hef ég umfjöllun þessa ekki mjög langa. Michael Douglas sem fer með aðalhlutverkið er góður leikari en því miður leikur hann oftast sömu týpuna og sömuleiðis Sean Penn sem fer líka með stórt hlutverk. Markmiðið með þessari mynd er greinilega það að láta áhorfendur ekki vera vissir um hvort hinar og þessar uppákomur sem Douglas lendir í séu hluti af leiknum eða ekki en handritið er bara þannig að maður er aldrei í vafa hvort að þetta sé leikur sem allavega böggaði mig soldið. Þó alls ekki alslæm hún þessi, nokkur kraftmikil augnablik hífa hana upp í meðallag og splæsi ég því tveimur stjörnum.
Já þá er bara komið að The Game.
Ok Persónulega held eg mjög míkið upp á leikstjórann David fincher og eg fyrirgef honum fyrir þessa mynd.
Myndinn fjallar um mann sem verður fyrir ólýsanlegri ólukku.
En undir lok kemur eithvað alt annað í ljós.
Það er nefnilega það að endirinn var bara alt of míkill og bara hreint út sagt alveg fáranlegur.
En eins og eg sagði áðan þá held eg míkið upp á leikstjórann og fyrirgef honum þessa mynd, sem er alveg fín afþreying en ekkert meira en það.
Þegar ég byrjaði að horfa á myndina leist mér vel á hana fannst mér hún fín en svo byrjaði hún að vera langdreginn og
leiðinleg. Og plottið í myndinni var ekkert sérstakt maður áttar sig á því allt of snemma.
Helstu kosturinn við myndina er sá að hún er vel leikinn.
Ágætis spennuræma eftir einn skemmtilegasta leikstjóra samtímans.
Douglas er hér í hlutverki auðkýfings, sem fær að gjöf frá litla bróður sínum þáttöku í leik, sem virðist sakleysi í fyrstu, en þegar líða tekur á er sem einhver maðkur sé í mysunni.
Ekki gallalaus, en skemmtileg og talsvert yfir meðallagi að gæðum.
The Game er hrein snilld þegar maður hugsar út í það. Fincher er einhver besti leikstjóri allra tíma. Plottið og útsnúnni söguþráðurinn og ekki gleyma misterían er bara frábær. Myndin inniheldur eitthvað það besta handrit sem til er og plot. En myndin hefði getað verið betri. Michael Douglas leikur ríkan snobbaðan náunga sem á sorglega æsku en þegar litli bróðir hans gefur honum afmælisgjöf fer allt úrskeiðis. Þetta er mynd sem ekki má missa af.
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
John D. Brancato, Michael Ferris, Andrew Kevin Walker
Framleiðandi
Universal Pictures
Aldur USA:
R
Frumsýnd á Íslandi:
28. nóvember 1997
VHS:
19. maí 1998
- Nicholas: I don't care about the money, I'm pulling back the curtain. I want to meet the wizard.