Ég fór á The Odyssey með miklar væntingar. Christopher Nolan hefur sjaldan brugðist mér sem leikstjóri, en þrátt fyrir það fór myndin langt fram úr því sem ég bjóst við.
Stórbrotin aðlögun á Hómerskviðu
Það fyrsta sem sló mig var hversu vel tókst að færa þetta tímalausa verk yfir á hvíta tjaldið. Handritið nær að gera söguna aðgengilega án þess að fórna þeirri dýpt og þeim klassa sem einkennir frumverkið, og uppbygging myndarinnar heldur manni föngnum frá upphafi til enda.
Tæknilega er myndin með nánast allt upp á tíu. Myndatakan, hljóðvinnslan og leikstjórnin eru öll í hæsta gæðaflokki, eins og búast má við af Christopher Nolan.


Leikarahópurinn stendur sig einnig frábærlega. Tom Holland skilar að mínu mati einni bestu frammistöðu sinni hingað til, Matt Damon er sterkur í hlutverki sínu og Robert Pattinson er sannfærandi sem lævís gunga og svikull andstæðingur.


Praktískar tæknibrellur og IMAX
Eitt af því sem vakti athygli mína var hvernig myndin nýtir praktísk tæknibrelluáhrif. Það gefur henni meiri þyngd og raunveruleikatilfinningu en margar stórmyndir nútímans sem treysta nær eingöngu á tölvubrellur. Nolan finnur jafnframt frumlegar leiðir til að færa þekktustu atriði Hómers, höfundar Ódysseifskviðu, yfir á hvíta tjaldið og útkoman er bæði fersk og trúverðug.
Mikill metnaður var einnig lagður í tökurnar. Myndin var tekin að öllu leyti á IMAX-filmur, sem hefur lengi verið draumur Nolans. Ef þú vilt fá innsýn í hvernig The Odyssey varð til mæli ég eindregið með þessu tæplega 20 mínútna myndbandi sem sýnir bak við tjöldin. Þar er farið yfir allt frá tökustöðum, leikmyndum og praktískum tæknibrellum til tónlistar, IMAX-tækninnar og þess gríðarlega metnaðar sem einkenndi gerð myndarinnar.
Tónlistin kom mér á óvart. Hún er óhefðbundnari en ég bjóst við en verður á köflum gríðarlega áhrifamikil og lyftir upp mörgum af sterkustu atriðum myndarinnar. Ég hefði kannski viljað heyra aðeins meira af hefðbundnari ævintýratónlist inn á milli, en draumkenndi og örlítið drungalegi tónninn virkaði engu að síður afar vel. Á köflum minnti sjónrænn stíll myndarinnar mig meira að segja örlítið á verk Tim Burton, án þess þó að missa hinn sérstaka Nolan-stíl.
Ómissandi fyrir kvikmyndaunnendur
Fyrir mér er The Odyssey eitt af sterkustu verkum Christopher Nolan til þessa og kvikmynd sem ég mun án efa sjá aftur. Hún sameinar stórbrotna kvikmyndagerð, sterka frásögn og áhrifamiklar persónur á þann hátt sem fáir leikstjórar ná.
Ef þú hefur gaman af metnaðarfullum ævintýramyndum sem byggja jafnt á sjónrænum stórfengleika og vandaðri frásögn er þetta kvikmynd sem þú ættir ekki að láta fram hjá þér fara. Christopher Nolan sýnir enn á ný hvers vegna hann er talinn einn fremsti kvikmyndagerðarmaður samtímans.
Hvernig ég myndi raða kvikmyndum Christopher Nolan
12. Following

Following 1998
Ungur óreyndur rithöfundur, Bill, segir eldri manni frá því hvernig hann eltir ókunnuga um götur Lundúna, og fylgist með þeim, til að fá efnivið í skáldsögu. Dag einn, þá ákveður einn maður sem Bill er að elta, að…
11. Tenet
10. Insomnia

Insomnia 2002
Rannsóknarlögreglumaður, sem er sendur úr borginni til að rannsaka morð á unglingsstúlku í litlum bæ í Alaska, skýtur fyrir slysni félaga sinn þegar þeir eru að reyna að handtaka grunaðan. Í staðinn fyrir að játa sekt…
9. The Dark Knight Rises

The Dark Knight Rises 2012
Átta ár eru liðin síðan Batman tók ábyrgð á illvirkjum glæpaforingjans Two Face, öðru nafni saksóknarans Harvey Dent. Nú er nýr hryðjuverkaleiðtogi kominn fram á sjónarsviðið, Bane. Hann veldur ógn og skelfingu í…
8. The Prestige

The Prestige 2006
Í lok nítjándu aldarinnar í London þá eru Robert Angier, ástkær eiginkona hans Julia McCullough og Alfred Borden vinir og aðstoðarmenn töframanns. Þegar Julia deyr slysalega í einu atriðinu, þá kennir Robert Alfed um…
7. Memento

Memento 2000
Við kynnumst manni af nafni Leonard sem er með heilaskaða sem gerir það að verkum að hann getur ekki myndað nýjar minningar og getur því aðeins reitt sig á skammtímaminni sitt. Í raun lifir hann lífi sínu í nokkurra…
6. Dunkirk

Dunkirk 2017
Hér segir frá einhverju magnaðasta björgunarafreki sögunnar þegar Bretum og bandamönnum þeirra tókst, í Seinni heimsstyrjöldinni árið 1940, þvert á allar aðstæður, að bjarga um 340 þúsund hermönnum úr nánast vonlausri…
5. Batman Begins

Batman Begins 2005
Fyrsta myndin í glænýrri seríu um Leðurblökumanninn. Myndin gengur út á upphaf hetjunnar og baráttu Bruce Wayne við innri hræðslu og sektarkennd tengt dauða foreldra hans en þeir voru myrtir þegar Wayne var ungur…
4. The Odyssey

The Odyssey 2026
Myndin segir frá Ódysseifi, konungi Íþöku, sem hefur barist hetjulega í Trójustríðinu en á erfitt með að komast heim til eiginkonu sinnar og sonar eftir að stríðinu lýkur. Á tíu ára langri heimferð sinni mætir hann…
3. The Dark Knight

The Dark Knight 2008
Hér tekst Batman, ásamt lögregluforingjanum James Gordon, á við nýjan brjálæðing í Gotham borg, Jókerinn. Glæpalýður þyrpist að úr öllum áttum á meðan völd Jókersins styrkjast og óreiða vex á götum borgarinnar. Myndin…
2. Interstellar

Interstellar 2014
Mynd byggð á kenningum eðlisfræðingsins Kip Thorne um þyngdaraflssvæði í geimnum, ormagöng, tímaferðalög og fleiri kenningar sem Albert Einstein náði aldrei að sanna. Hópur manna er sendur út í geiminn til að kanna…
1. Inception

Inception 2010
Dom Cobb er hæfileikaríkur þjófur og sá allra besti í þeim hættuleik að stela verðmætum leyndarmálum djúpt innan úr huga fólks þegar það er í draumsvefni. Þessi sjaldgæfi hæfileiki Cobbs hefur gert hann mjög…








