Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Það er heill her stórleikara sem fer með aðalhlutverkin í þessari kvikmynd Steve Zaillians sem gerði meðal annars myndina "Searching for Bobby Fischer", en er annars þekktastur fyrir handrit sín að myndum eins og óskarsverðlaunamynd Spielberg "Schindler's List", einnig að "The Falcon and the Snowman" og "Clear and Present Danger". Myndin er byggð á sönnu máli sem kom upp þegar átta fjölskyldur í smábæ einum í Bandaríkjunum misstu börn sín úr hvítblæði. Í ljós kom að orsök hvítblæðisins mátti e.t.v. rekja til þess að drykkjarvatni bæjarins hafði verið spillt og voru tvö stórfyrirtæki grunuð um verknaðinn. Það var hins vegar ljóst að möguleikarnir á að vinna málið voru hverfandi þar sem fyrirtækin höfðu efni á að ráða til sín bestu lögfræðinga Bandaríkjanna á meðan fjölskyldurnar höfðu nánast enga peninga á milli handanna til málarekstursins. Til að leita réttar síns leituðu fjölskyldurnar til lögfræðingsins Jans Schlichtmann (Travolta) sem hafði sérhæft sig í slíkum málarekstri, en hafði fram að þessu einbeitt sér að málum sem mátti semja um utan réttar. Jan leist í fyrstu ekkert á málið en ákvað að taka það að sér þegar hann hafði farið í gegnum þær vísbendingar sem fjölskyldurnar höfðu handbærar. En baráttan við lögfræðinga stórfyrirtækjanna átti eftir að verða erfiðari en jafnvel hann hafði grunað og brátt kom að því að hann neyddist til að velja milli þess að hætta við málssóknina eða eiga það á hættu að missa allt sitt. Þrumugóð mynd sem allir verða að sjá. Í aðalhlutverki er John Travolta en aðrir leikarar eru m.a. Robert Duvall (sem var tilnefndur til óskarsverðlaunanna sem besti leikari í aukahlutverki 1998 fyrir leik sinn í myndinni), William H. Macy, Kathleen Quinlan, John Lithgow, Dan Hedaya, Tony Shalhoub og James Gandolfini. Ágætis mynd sem er athyglinnar vel virði
Þokkalegt lögfræðidrama sem segir frá máli þar sem íbúar í smábæ rétt utan Boston sem hafa misst börn sín vegna dularfullra sjúkdóma fá lögfræðinginn Jan (John Travolta) til að taka máli þeirra. Foreldrarnir eru sannfærðir um að mengun vegna losun eiturefna hafi valdið dauða barna þeirra og vilja láta viðkomandi fyrirtæki bera ábyrgð fyrir gerðum sínum. Lögfræðiskrifstofa Jans er ekki stór og á fullt í fangi við að takast á við stórfyrirtækin sem standa að baki meintu eiturefnalosuninni og fljótlega eru hann og félagar hans komnir upp fyrir haus í málskostnaði. Myndin er byggð á skáldsögu sem er byggð á sönnum atburðum og að mínu mati er þetta ekki efni sem er hægt að koma vel til skila í svona kvikmynd. Þrátt fyrir að vera ekki gífurlega löng er myndin langdregin og ég var búinn að missa allan áhuga á atburðarásinni undir lokin. Myndin er enga að síður vel leikin, Travolta er sannfærandi sem lögfræðingurinn sem í upphafi hugsar aðeins um peninga en breytist síðan og William H. Macy stendur sig líka vel sem einn félaga hans. Stærsti galli þessar myndar var að atburðarásin var bara ekki nógu áhugaverð, það var fátt sem kom á óvart og það sem helst hífir hana upp eru áhugaverðar persónur inn á milli.
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Steven Zaillian, Jonathan Harr
Kostaði
$70.000.000
Tekjur
$56.702.901
Vefsíða:
Aldur USA:
PG-13
Frumsýnd á Íslandi:
9. apríl 1999
VHS:
26. október 1999