Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Ein af þessum sem koma á óvart. Leigði hana kvöld eitt, þegar ég hafði ekkert annað að gera og hef síðan nagað mig í handarbökin yfir að hafa ekki séð hana fyrr.
Leikarahersingin stendur sig ljómandi vel, enda vart annað hægt með svona ljómandi vel skrifaða sögu, og standa Paul Reiser og Michael Douglas uppúr, að öðrum ólöstuðum.
Fjallar í stuttu máli um vonda konu, sem vefur körlum um fingur sér í leit að góðu lífi, og hikar ekki við að draga menn til bælis - eða skjóta þá, ef í það fer.
Menn verða margir óhressir með þetta, sem eðlilegt er, og ekki orð um það meir.
Ágætis svört grínmynd um þrjá gaura sem falla fyrir sömu stelpunni. Myndin hefur sýnar góðu og vondu hliðar, en ekki er handritið sem best en leikurinn er frábær. Góð mynd og ég mæli með henni.
Yndislega furðuleg dökkleit komedía. Leikararnir eru hver öðrum betri, sérstaklega fannst mér Reiser koma á óvart. Liv Tyler er ein og sér ástæða til að horfa á myndina. Söguþráður myndarinnar er ákaflega undarlegur en gengur þó upp. Andrew Dice Clay kemur skemmtilega í heimsókn.
Þessi mynd er góð skemmtun fyrir alla fjölskulduna. Eitt atriði er sérstaklega minnisstætt það er þegar hún er að þvo bílinn og sprautar mjög þokkafullt á sjálfa sig. Þessi mynd er í svipuðum gæðaflokki og Miss Congeniality og The Mexican. Stórskemmtileg mynd sem verðugt er að kíkja á sérstaklega útaf bílaatriðinu
Sumarið var frekar slappt kvikmyndalega séð en þó var einn gullmoli sem stendur uppúr. Mynd sem fór ekki mikið fyrir og eins og þið hafið væntanlega áttað ykkur á þá er ég að tala um One Night At McCool´s. Þessi mynd er kolsvört og sexy kómedía. Myndin fjallar í stuttua máli um mjög kynþokkafulla konu sem leikin er af Liv Tyler. Hún vefur karlmönnum um fingur sér og í myndinni sjáum við sjónarhorn 3 karlmanna sem allir vilja vera með henni á sínum forsendum. Frábært handrit og frábærir leikarar gera þessa mynd að stórgóðri skemmtun. Tvímælalaust ein besta mynd þessa árs.
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Vefsíða:
Aldur USA:
R
Frumsýnd á Íslandi:
15. júní 2001
VHS:
31. október 2001