Íslenskar kvikmyndir vinsælastar 2022

Þær fimm kvikmyndir sem mest voru skoðaðar hér á Kvikmyndir.is á nýliðnu ári, 2022, eru allar íslenskar.

Eins og sjá má hér fyrir neðan þá var Berdreymi vinsælasta kvikmyndin á síðunni á síðasta ári en næst á eftir kemur fjölskyldumyndin Abbababb! Þriðja sætið fellur svo í skaut Svari við bréfi Helgu.

Úr vinsælustu mynd ársins á kvikmyndir.is: Berdreymi.

Elvis vinsælust erlendra mynda

Vinsælasta erlenda myndin var Elvis, mynd Baz Luhrmann um ævi rokkóngsins sáluga, en verðlaunamyndin Triangle of Sadness er næst vinsælasta erlenda kvikmyndin. Í þriðja sæti er Avatar: The Way of Water. Þess ber þó auðvitað að geta að síðastnefnda myndin var ekki frumsýnd fyrr en rétt fyrir Jól.

Skoðaðu tuttugu vinsælustu kvikmyndirnar á Kvikmyndir.is hér fyrir neðan:

Berdreymi

Berdreymi 2022

Drama, Íslenskt · 123 mín14 áraIMDb 7.3

Berdreymi segir frá Adda, unglingsstrák í Reykjavík sem á skyggna móður. Hann og vinir hans alast upp án eftirlits og nota slagsmál til að leysa ágreining. Einn daginn ákveður Addi að taka vinalausan strák undir sinn…

Gefa einkunn

Abbababb!

Abbababb! 2022

Fjölskylda, Söngleikur, Íslenskt · 86 mínÖllum leyfð

Þegar Hanna og vinir hennar í hljómsveitinni Rauðu Hauskúpunni uppgötva að óprúttnir náungar ætla að sprengja upp skólann á lokaballinu, þurfa þau að beita öllum sínum ráðum til að ná sökudólgnum.

Gefa einkunn

Svar við bréfi Helgu

Svar við bréfi Helgu 2021

Rómantík, Drama · 112 mín9 áraIMDb 6.2

Í afskettum firði á 5. áratug síðustu aldar verður hinn ungi bóndi Bjarni ástfanginn af Helgu, konunni á næsta bæ. Þau hefja ástríðufullt, forboðið ástarsamband, og brátt fara tilfinningarnar að flæða jafn hömlulaust og…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

Allra síðasta veiðiferðin

Allra síðasta veiðiferðin 2022

Gaman, Íslenskt · 95 mín12 áraIMDb 6.1

Eftir ævintýralegan laxveiðitúr fyrra sumars er ákveðið að halda aftur til veiða, þrátt fyrir misgóðar minningar úr þeim túr. Til að koma sér áfram í pólitík býður Valur Aðalsteins félögunum í flotta laxveiði með því…

Gefa einkunn

Sumarljós og svo kemur nóttin

Sumarljós og svo kemur nóttin 2021

Gaman, Drama · 110 mín9 áraIMDb 6.8

Ef þú leggur við hlustir þá segir Þorpið þér kannski nokkrar ósagðar sögur. Sögur af forstjóranum unga sem dreymir á latínu og fórnar fjölskyldu og glæstum frama fyrir gamlar bækur og stjörnukíki, heljarmenni sem kiknar…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

Elvis

Elvis 2022

Drama, Tónlist, Æviágrip · 159 mín12 áraIMDb 7.3

Mynd um líf og feril hins goðsagnakennda rokktónlistarmanns Elvis Presley, séð í gegnum flókið samband hans við umboðsmanninn Colonel Tom Parker yfir 20 ára tímabil. Fjallað er um feril tónlistarmannsins allt frá því…

Gefa einkunn

Villibráð

Villibráð 2023

Gaman, Drama, Íslenskt · 110 mín12 áraIMDb 7.3

Í matarboði í Vesturbænum ákveða sjö vinir að fara í stórhættulegan samkvæmisleik. Viðstaddir leggja símana á borðið og fallast á að öll símtöl og skilaboð sem berast verði deilt með samkomunni til að sanna að ekkert…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

Triangle of Sadness

Triangle of Sadness 2022

Gaman, Drama · 147 mín12 áraIMDb 7.2

Við fylgjumst með hinum ofurríku, þegar ungt par á uppleið í módel bransanum fær tækifæri til að dvelja á skemmtiferðaskipi þar sem dýr föt, yfirgengilegir málsverðir og stéttaskipting ræður ríkjum. En þegar skipið…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

Avatar: The Way of Water

Avatar: The Way of Water 2022

Spenna, Ævintýri · 192 mín12 áraIMDb 7.5

Jake Sully býr ásamt fjölskyldu sinni á plánetunni Pandóru þegar kunnuglegur óvinur birtist sem vill ljúka við áður óklárað verk. Jake þarf nú að vinna með Neytiri og her Na'vi þjóðflokksins til að vernda plánetuna.

Horfa:Disney+
Gefa einkunn

The Batman

The Batman 2022

Spenna, Drama, Glæpa · 175 mín12 áraIMDb 7.8

Leðurblökumaðurinn, Batman, kemst á snoðir um spillingu í Gotham borg sem tengist fjölskyldu hans. Á sama tíma glímir hann við skelfilegan raðmorðingja sem gengur undir nafninu Gátumaðurinn, eða The Riddler.

Gefa einkunn

Skjálfti

Skjálfti 2022

Drama, Ráðgáta, Íslenskt · 106 mín9 áraIMDb 6.2

Þegar Saga vaknar upp eftir heiftarlegt flogakast á Klambratúni man hún lítið sem ekkert hvað gerðist í aðdraganda þess. Í leit hennar að upplýsingum um sjálfa sig og sína nánustu fara minningar sem Saga bældi niður sem…

Gefa einkunn

Minions: The Rise of Gru

Minions: The Rise of Gru 2020

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 87 mínÖllum leyfðIMDb 6.5

Saga hins tólf ára Gru sem á sér þann draum helstan að verða heimsins mesti ofurþorpari. Hann elst upp í úthverfunum og er aðdáandi ofurgrúppunnar Vicious 6. Hann reynir hvað hann getur að verða nógu illur til að fá…

Gefa einkunn

Uncharted

Uncharted 2022

Spenna, Ævintýri · 116 mín12 áraIMDb 6.3

Hinn reyndi fjársjóðsleitarmaður Victor "Sully" Sullivan fær hinn bráðsnjalla Nathan Drake með sér í lið til að finna auðævi sem landkönnuðurinn Ferdinand Magellan safnaði og týndi fyrir 500 árum síðan.

Gefa einkunn

Everything Everywhere All at Once

Everything Everywhere All at Once 2022

Spenna, Gaman, Ævintýri · 139 mín16 áraIMDb 7.7

Kínverskur innflytjandi í Bandaríkjunum, frú Wong, þeysist inn í klikkað ævintýri þar sem hún er ein fær um að bjarga heiminum með því að kanna aðra alheima sem tengjast lífskeiðum sem hún gæti hafa lifað.

Gefa einkunn

The Northman

The Northman 2022

Spenna, Drama, Ævintýri · 140 mín16 áraIMDb 7.0

Söguleg mynd um víkingaprins og hversu langt hann er tilbúinn að ganga til að ná fram hefndum fyrir föður sinn sem var myrtur. Myndin gerist á Íslandi við upphaf 10. aldar.

Gefa einkunn

Þrjótarnir

Þrjótarnir 2022

Gaman, Ævintýri, TeiknaðÖllum leyfðIMDb 6.9

Aldrei hafa fimm vinir verið eins alræmdir og Þrjótarnir - hinn töfrandi vasaþjófur Mr. Wolf, hinn gamalreyndi sérfræðingur í peningaskápum Mr. Snake, dulargervameistarinn Mr. Shark, hinn skapstyggi þrjótur Mr. Piranha…

Gefa einkunn

Bullet Train

Bullet Train 2022

Spenna, Spennutryllir · 126 mín16 áraIMDb 7.3

Fimm leigumorðingjar um borð í hraðlest komast að því að einhver skyldleiki er með verkefnum þeirra allra. Hin seinheppni Ladybug, sem er þar á meðal, er staðráðinn í að leysa verkefni sitt snyrtilega af hendi eftir að…

Gefa einkunn

Ticket to Paradise

Ticket to Paradise 2022

Gaman, Rómantík · 104 mín12 áraIMDb 6.1

Fráskilin hjón taka sig saman og fara til Balí til að forða ástfanginni dóttur sinni frá því að gera sömu mistök og þau gerðu fyrir aldarfjórðungi.

Gefa einkunn

Top Gun: Maverick

Top Gun: Maverick 2022

Spenna, Drama · 131 mín12 áraIMDb 8.2

Top Gun: Maverick gerist 34 árum eftir atburði fyrri myndarinnar og segir frá því þegar hinn goðsagnakenndi flugmaður Peter "Maverick" Mitchell, er orðinn yfirþjálfari Top Gun, og hefur það verkefni m.a. að þjálfa…

Gefa einkunn

Smile

Smile 2022

Hrollvekja · 115 mín16 áraIMDb 6.5

Eftir að dr. Rose Cotter verður vitni að skelfilegu atviki sem hendir sjúkling hennar byrjar hún að upplifa undarlega og óhugnanlega – og óútskýranlega – hluti. Rose verður að horfast í augu við slæma hluti úr fortíð…

Gefa einkunn