Mafíumyndir njóta alltaf vinsælda og því tókum við saman fimmtán myndir sem þú verður að sjá áður en þú snýrð tánum upp í loft.

Þarna eru að sjálfsögðu sígildar bófamyndir eins og Guðfaðirinn 1 og 2, Scarface og Brother, svo dæmi séu tekin.
Kíktu á listann:

The Godfather 1972
Sagan hefst þegar "Don" Vito Corleone, yfirmaður mafíufjölskyldu í New York, er með fjölskyldu og vinum í brúðkaupi dóttur sinnar. Heittelskaður sonur hans, Michael, er nýkominn heim úr stríðinu, en ætlar sér ekki að…

GoodFellas 1990
Henry Hill er smábófi, sem tekur þátt í ráni ásamt Jimmy Conway og Tommy De Vito, tveimur bófum sem stefna hátt innan glæpaheimsins. Félagarnir tveir drepa alla aðra sem taka þátt í ráninu, og byrja að feta sig hægt og…

Once Upon a Time in America 1984
Saga af litlum hópi glæpamanna í New York af Gyðingaættum í byrjun 20. aldarinnar, sem nær yfir 40 ára tímabil. Sagan er sögð að mestu í gegnum endurlit í leiftursýn fram og aftur í tíma, en aðalpersónan er David…

The Departed 2006
Í suðurhluta Bostonborgar á lögreglan í stríði við írsk-bandarísku mafíuna. Hinn ungi lögreglumaður Billy Costigan, sem vinnur á laun, er ráðinn til að smygla sér í raðir glæpagengis undir stjórn Frank Costello. Á meðan…

Casino 1995
Sam 'Ace' Rothstein, glæpatengdur spilavítiseigandi í Las Vegas, reynir að halda uppi venjulegum lífsstíl með konunni sinni, Ginger. Nicky Santoro, æskuvinur Ace sem nú er orðinn stór karl í mafíunni, kemur í bæinn með…

The Untouchables 1987
Alríkislögreglumaðurinn Elliot Ness safnar saman úrvalsliði til að berjast gegn mafíuforingjanum Al Capone, og notar til þess óhefðbundar aðferðir meðal annars, en sögusviðið er mafíustríðin á þriðja áratug 20…

The Good Shepherd 2006
Óreiðukennt upphaf leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, er sagt í gegnum sögu eins manns. Fámáli einfarinn Edward Wilson stýrir leynilegum aðgerðum leyniþjónustunnar CIA í Svínaflóa. Þjónustuna grunar að Castro hafi fengið…

Donnie Brasco 1997
Sönn saga um FBI-manninn Joe Pistone sem kemst inn í mafíuna í New York og starfar þar á laun undir dulnefninu Donnie Brasco. Hann á að safna sönnunargögnum gegn glæpamönnunum. Þar vekur hann athygli mafíósans Lefty…
Netflix
Eastern Promises 2007
Ljósmóðirin Anna kemst yfir rússneska dagbók ungrar stúlku, sem lést á sjúkrahúsinu við barnseignir. Anna er staðráðin í að finna samastað handa nýfædda barninu og fær tilboð frá veitingahúsaeiganda til að þýða bókina…

The Big Sleep 1946
Einkaspæjarinn Philip Marlowe er ráðinn til starfa af auðugum herforingja til að upplýsa um og stöðva dóttur hans, Carmen, frá því að verða fjárkúguð vegna spilaskulda. Marlow sekkur djúpt í vef ástarþríhyrnings…

The Irishman 2019
Leigumorðingi mafíunnar horfir yfir farinn veg, og mögulegan þátt sinn í morðinu á verkalýðsleiðtoganum Jimmy Hoffa. Frank “The Irishman” Sheeran, hefur margt á sinni könnu. Hann er fyrrum stjórnandi hjá…
Netflix
American Gangster 2007
Þegar einn af stærstu dópkóngum Manhattan geispar golunni grípur einkabílstjórinn hans, Frank Lucas (Denzel Washington), tækifærið og kemur sér í valdastöðu. Frank er harður í horn að taka og er farinn að stjórna…

The Godfather: Part II 1974
Saga Corleone mafíufjölskyldunnar í New York heldur áfram. Myndin segir frá því þegar "Don" Vito Corleone var ungur að árum á Sikiley á Ítalíu. Hann flytur svo til New York í byrjun 20. aldarinnar. Fylgst er með…

Brother 2000
Japanskur mafíósi, Takashi, er sendur í útlegð til Bandaríkjanna. Hann kemur sér fyrir í Los Angeles þar sem yngri bróðir hans býr og kemst að því að þó að hann sé í nýju landi, þá eru reglurnar enn þær sömu, og þeir…





