Topp tíu kuldamyndirnar

Nú er frost á fróni frýs í æðum blóð. Svo virðist sem veturinn ætli aldrei að fara og vilji frysta í okkur hvert bein og hverja frumu.

Af því tilefni er hér listi yfir tíu bestu myndirnar sem gerast í frostjökulkulda við erfiðar aðstæður:

The Revenant

The Revenant 2016

Drama, Spennutryllir, Vestri · 156 mín16 áraIMDb 8.0

Sönn saga Hughs Glass sem skilinn var eftir í óbyggðum nær dauða en lífi árið 1823 eftir árás bjarnar. En Hugh lifði af og gríðarlega illa særður eftir björninn, fótbrotinn, vopnlaus og matarlaus náði hann samt sem áður…

Horfa:Netflix
Gefa einkunn

Fargo

Fargo 1996

Drama, Spennutryllir, Glæpa · 98 mín16 áraIMDb 8.1

Jerry vinnur á bílasölu tengdaföður síns, og er kominn í fjárhagsvandræði. Hann prófar ýmis úrræði til að redda sér peningum, sem hann þarfnast af óútskýrðum ástæðum. Svo virðist sem tengdafaðir hans sé um það bil að…

Gefa einkunn

The Thing

The Thing 1982

Hrollvekja, Vísindaskáldskapur, Ráðgáta · 109 mín16 áraIMDb 8.2

Vísindamenn á Suðurheimskautinu eiga í höggi við geimveru sem getur skipt um form, og getur brugðist sér í líki fólksins sem hún drepur. Bandarískur vísindaleiðangur til Suðurheimskautsins er truflaður af hópi trylltra…

Gefa einkunn

Alive

Alive 1993

Drama, Spennutryllir, Ævintýri · 127 mín12 áraIMDb 7.1

Ruðningslið frá Uruguay sem er innikróað hátt uppi í Andesfjöllum, þarf að gera leita allra leiða til að lifa af eftir að flugvélin þeirra hrapar. Sagan gerist árið 1972, og liðið er á leið til Chile í keppnisferð. En…

Gefa einkunn

Whiteout

Whiteout 2009

Spenna, Drama, Spennutryllir · 101 mín16 áraIMDb 5.5

Alríkislögreglumaðurinn Carrie Stetko á aðeins þrjá daga eftir af dvöl sinni í alþjóðlegri rannsóknarstöð á Suðurheimsskautinu, en hún hyggst segja upp að loknum tíma sínum þarna. Um leið og fyrsti snjóbylur vetrarins…

Gefa einkunn

Wind River

Wind River 2017

Drama, Glæpa, Ráðgáta · 107 mín16 áraIMDb 7.7

Alríkislögreglukonan Jane Banner fær aðstoð frá gamalreyndum veiðimálafulltrúa í bænum, Cory Lambert, til að rannsaka morð á friðarsvæði indjána. Áður en langt um líður þarf Lambert að kafa djúpt ofaní eigin fortíð en á…

Gefa einkunn

Frozen

Frozen 2013

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 102 mínÖllum leyfðIMDb 7.4

Myndin fjallar um konungsdæmi þar sem eilífur vetur ríkir, vegna álaga sem Snjódrottningin Elsa lagði á landið. Anna er haldin óbilandi bjartsýni og ákveður að takast á hendur ferðalag til að finna Elsu ( það vill til…

Gefa einkunn

The Grey

The Grey 2012

Spenna, Drama, Spennutryllir · 117 mín16 áraIMDb 6.7

Liam Neeson leikur forystumann olíuleitarmannanna sem eru svo sem öllu vanir en hafa samt aldrei þurft að glíma við jafnerfiðar aðstæður. Eftir að flugvélin hefur stöðvast á snæviþöktum stað er enginn tími til að…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

Insomnia

Insomnia 2002

Drama, Spennutryllir, Ráðgáta · 118 mín12 áraIMDb 7.2

Rannsóknarlögreglumaður, sem er sendur úr borginni til að rannsaka morð á unglingsstúlku í litlum bæ í Alaska, skýtur fyrir slysni félaga sinn þegar þeir eru að reyna að handtaka grunaðan. Í staðinn fyrir að játa sekt…

Gefa einkunn
.

Cliffhanger

Cliffhanger 1993

Spenna, Spennutryllir, Ævintýri · 113 mín16 áraIMDb 6.5

Þegar útbúnaður Gabe klikkar þegar þau eru í fjallgöngu og eru að fara yfir djúpt gil á vír, þá fellur hún niður og Gabe mistekst að bjarga henni. Ári seinna þá er Gabe beðinn um að fara aftur á sama fjall til að bjarga…

Gefa einkunn