The Green Wave

The Green Wave (2010)

1 klst 20 mín2010

Blogg-umræður og twitter-færslur frá Íran eru grunnurinn að þessari upplýsandi og á köflum átakanlegu kvikmynd í teiknimyndastíl sem sýnir Grænu byltinguna árið 2009 í Íran.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →
Öllum leyfðÖllum leyfð

Söguþráður

Blogg-umræður og twitter-færslur frá Íran eru grunnurinn að þessari upplýsandi og á köflum átakanlegu kvikmynd í teiknimyndastíl sem sýnir Grænu byltinguna árið 2009 í Íran. Í maímánuði eru íbúar landsins enn sannfærðir um að samfélagsumbætur séu á næsta leiti en þegar Ahmadinejad „vinnur“ kosningarnar tekur kúgun aftur völdin. Kosningadagurinn í Íran í júní 2009 varð að einum allsherjar blekkingarleik: kjörseðlar glötuðust og kjörstöðum var lokað. Þetta varð upphafið að myrku tímabili í sögu Írans. Forsetaframbjóðandinn Mousavi var settur í stofufangelsi, Ahmadinejad hrifsaði til sín völdin og byssukúlum rigndi yfir mótmælendur. Þúsundir flykktust út á götur í Íran til að mótmæla kosningasvindli undir kjörorðunum „Hvað varð um atkvæði mitt?“ en mótmælunum var mætt af mikilli harðýðgi. Hin 26 ára gamla Neda Soltan lét lífið þegar hún mótmælti með þúsundum annarra í Teheran og varð fyrir tilefnislausri árás af hendi öryggissveita. Dramatískt myndskeið náðist af atvikinu. Námsmanni er kastað í dimma dýflissu þar sem hann sætir harðræði ásamt samföngum sínum og sumir lifa fangavistina ekki af. Ung kona rifjar upp daginn sem hún var leyst úr haldi: „Mér var sleppt úr litlu fangelsi en ég varð fangi í öðru miklu stærra: Íran.“

Svipaðar myndir

Human Planet
Human Planet
2011·IMDb 9.0
Líka heimildarmynd
Einkunn
Tangled
Tangled
2010·IMDb 7.7
Gaman, Rómantík
Einkunn
Miroir noir
Miroir noir
2008·IMDb 8.0
Líka heimildarmynd
Einkunn

Myndbönd

Aðalleikarar

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!

Verðlaun

🏆

The Youth Jury Award – FIFDH Genève 2011 Best Director Award One World Prague 2011 The Václav Havel Jury Special Award One World Prague 2011 Student’s Choice Award – Movies that Matter Festival 2011.