The Client

The Client (1994)

"A New Lawyer Out Of Her League. A Young Boy Who Knew Too Much"

1 klst 59 mín1994 2 álit notenda

Ungur drengur, Mark Sway, lendir af tilviljun í klónum á lögfræðingi sem er í sjálfsvígshugleiðingum og leiðir það til þess að Mark verður hundeltur af...

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum
Hvar má horfa

43 einkunnir á Kvikmyndir.is

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:HræðslaHræðslaBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Streymi
Disney+

Söguþráður

Ungur drengur, Mark Sway, lendir af tilviljun í klónum á lögfræðingi sem er í sjálfsvígshugleiðingum og leiðir það til þess að Mark verður hundeltur af mafíunni jafnt sem lögreglunni. Hinn ellefu ára gamli Mark veit fullvel að hann veit orðið of mikið. Hann veit að hann hefði ekki átt að laumast með litla bróður sínum út í skóginn til að reykja í laumi, og hann veit líka að hann hefði ekki átt að blanda sér í málið þegar feiti lögfræðingurinn kom á stóra bílnum sínum og tengdi slöngu við útblástursrörið. En það er hins vegar of seint fyrir Mark að líta um öxl. Lögfræðingurinn sagði honum nefnilega svolítið sem hann óskar að hann hefði aldrei heyrt, en það er eitthvað um kaldrifjaðan morðingja og hvar sá faldi lík öldungardeildarþingmanns sem hann myrti. Og Ricky, litli bróðir Marks, er nú í losti af völdum taugaáfalls sem hann fékk þegar hann fylgdist með lögfræðingnum misþyrma bróður sínum og svipta sig síðan lífi. Mafían er komin á hæla Marks til að þagga niður í honum, og valdamikill alríkislögreglumaður, "séra" Roy Foltrigg, er líka á hælunum á honum til að komast að leyndarmáli hans. Mark er því hundeltur og fjölskyldu hans er ógnað. Hann er aðeins ellefu ára gamall strákur í skelfilegri veröld hinna fullorðnu, og tíminn er að renna honum úr greipum. Hann finnur sér því lögfræðing, Reggie Love, sem er tilbúin til þess að berjast af sama eldmóði og Mark. Reggie er á vissan hátt utangarðs, en hún er hins vegar klók og harðsnúin og reiðubúin til að hjálpa Mark.

Svipaðar myndir

The Fugitive
The Fugitive
1993·IMDb 7.8
Með Tommy Lee Jones og Robert Wise
Einkunn
A Time to Kill
A Time to Kill
1996·IMDb 7.5
Sami leikstjóri: Joel Schumacher
Disney+
Einkunn
Falling Down
Falling Down
1993·IMDb 7.5
Sami leikstjóri: Joel Schumacher
Einkunn
Perfect Alibi
Perfect Alibi
1995·IMDb 5.4
Líka drama, spennutryllir
Einkunn
The Player
The Player
1992·IMDb 7.5
Gaman, Rómantík
Einkunn
Criminal
Criminal
2016·IMDb 6.3
Með Robert Wise og Tommy Lee Jones
Einkunn
No Way Out
No Way Out
1987·IMDb 7.1
Spenna, Rómantík
Einkunn
Red Dragon
Red Dragon
2002·IMDb 7.2
Með Mary-Louise Parker
Einkunn

Myndbönd

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Akiva Goldsman
Akiva GoldsmanHandritshöfundur

Aðrar myndir eftir sama leikstjóra

Robert Getchell
Robert GetchellHandritshöfundur

Álit notenda (2)

The Client er besta mynd sem hefur verið gerð af þeim mörgu myndum sem hafa verið byggðar á bókum John Grisham. Myndin heldur manni spenntum frá byrjun og alveg út í bláendann. Allt er ger…

Vönduð og einkar vel gerð spennumynd eftir hinni víðfrægu skáldsögu The Client, hún er allra besta myndin af þeim kvikmyndum sem gerðar hafa verið eftir sögum metsöluhöfundarins John Gr…

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!

Umsagnir á TMDB

Framleiðendur

Alcor FilmsUS
Regency EnterprisesUS
Warner Bros. PicturesUS

Verðlaun

🏆

Susan Sarandon tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta leikona