Náðu í appið
Bönnuð innan 16 ára

Dressed to Kill 1980

Fannst ekki á veitum á Íslandi

Every Nightmare Has A Beginning...This One Never Ends

105 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 83% Critics
The Movies database einkunn 74
/100

Á meðan Kate Miller, miðaldra kynferðislega ófullnægð húsmóðir í New York, er í sturtu þá lætur hún sig dreyma kynferðisfantasíu um að sér sé nauðgað á meðan eiginmaður hennar stendur við vaskinn að raka sig. Seinna þennan sama dag, eftir að hafa kvartað við sálfræðinginn sinn Dr. Robert Elliott um hvað eiginmaður hennar er lélegur í rúminu,... Lesa meira

Á meðan Kate Miller, miðaldra kynferðislega ófullnægð húsmóðir í New York, er í sturtu þá lætur hún sig dreyma kynferðisfantasíu um að sér sé nauðgað á meðan eiginmaður hennar stendur við vaskinn að raka sig. Seinna þennan sama dag, eftir að hafa kvartað við sálfræðinginn sinn Dr. Robert Elliott um hvað eiginmaður hennar er lélegur í rúminu, þá hittir hún undarlegan mann í listasafni, og fer með honum heim til hans þar sem þau eiga ástarfund eftir að hafa byrjað að daðra í leigubíl. Áður en hún yfirgefur íbúð hans, þá finnur hún skjöl sem sanna að maðurinn er með kynsjúkdóm. Kate fær áfall, og flýtir sér út og í lyftuna, en verður að snúa aftur í íbúðina þegar hún uppgötvar að hún hafði gleymt giftingarhringnum sínum. Þegar lyftudyrnar opnast, þá er hún myrt með hrottalegum hætti af stórri ljóshærðri konu með dökk sólgleraugu. Liz Blake, dýr vændiskona, er eina vitnið að morðinu og hún er grunuð um morðið, en verður um leið næsta skotmark morðingjans. Liz er bjargað frá því að vera myrt af syni Kate, Peter, sem sækist eftir aðstoð frá Liz við að reyna að finna morðingja móður sinnar, þegar rannsóknarlögreglumaðurinn Marino, sem sér um að rannsaka málið, er ekki nógu samstarfsfús. ... minna

Aðalleikarar

Leikstjórn

Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn