Náðu í appið
Bönnuð innan 16 ára

Resident Evil: Retribution 2012

(Resident Evil 5)

Fannst ekki á veitum á Íslandi

Frumsýnd: 14. september 2012

Heimsyfirráð ... og dauði

95 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 28% Critics
The Movies database einkunn 39
/100

Barátta Alice gegn Regnhlífafyrirtækinu og hinum blóðþyrstu uppvakningum þeirra og hermönnum heldur áfram þar sem frá var horfið í síðustu mynd sem endaði á því að fyrirtækið náði henni á sitt vald. Þegar Alice kemur til sjálfrar sín er hún stödd í höfuðstöðvum fyrirtækisins sem er sífellt að verða öflugra og valdameira. Henni verður ljóst... Lesa meira

Barátta Alice gegn Regnhlífafyrirtækinu og hinum blóðþyrstu uppvakningum þeirra og hermönnum heldur áfram þar sem frá var horfið í síðustu mynd sem endaði á því að fyrirtækið náði henni á sitt vald. Þegar Alice kemur til sjálfrar sín er hún stödd í höfuðstöðvum fyrirtækisins sem er sífellt að verða öflugra og valdameira. Henni verður ljóst að ef ekkert verður við gert munu hinir geggjuðu forkólfar fyrirtækisins að lokum ná að leggja allan heiminn að fótum sér. Með harðræði og útsjónarsemi tekst Alice að sleppa úr prísundinni, hundelt af uppvakningunum, sem nú hafa tekið á sig jafnvel enn skelfilegri myndir en áður, og vel vopnum búnum hermönnum sem hafa þá skipun eina að ná henni aftur á sitt vald. Leikurinn berst síðan um víðan völl, til New York, Moskvu og fleiri staða þar sem Alice tekst að finna nokkra nýja og vinveitta liðsmenn auk þess að hitta aftur suma af þeim sem hafa áður barist við hlið hennar. Um leið verður henni ljóst að á bak við alla atburðarásina og þrátt fyrir allt sem hún hefur áður uppgötvað er enn eitt leyndarmál sem hún verður að afhjúpa ...... minna

Aðalleikarar

Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn