Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Allveg finasta mybnd sem natturlega byggt af fyrstu mynd sem varmjög góð ef engin er buin ða sja 1 myndina þurf aþeir að sja hana aðir en þeisr sja þessa þvi hun er byggð a fyrstu mynd sem er mjög goð eg gef þessar i mynd 3 stjörnur utaf þvi að hun er eins og hun er eitthvað aðeins raunvöruleg mjög góð mynd samt takk fyrir
Úfff... Resident Evil: Apocalypse er léleg kvikmyndagerð í hnotskurn. Ég bjóst alllavega við mynd sem hægt var að horfa á einu sinni eins og forverinn en Apocalypse er bara léleg, hún var ekki léleg á fyndinn hátt heldur leiðinleg og algert kjaftæði. Uppvakningarnir eru hræðilegir, hasarinn er ömurlegur. Það er greinilegt að leikstjórinn nennti ekki að vanda sig og ákvað að taka upp allt í shaky nærskotum svo að enginn sé hvað væri á seyði. Svo er myndin stútfull af einhverjum tölvugerðum kvikindum sem eru mjög óathyglisverð og léleg. Ég veit ekkert hvað þeir voru að hugsa en tvær hálfnaktar stelpur dugar ekki til þess að gera góða mynd því allt annað en það var ömurlega gert. Ég tel hálfa stjörnu of mikið en ég held að það séu til mun verri myndir einhversstaðar þrátt fyrir að nánast ekkert í Resident Evil: Apocalypse var nálægt góðu.
Resident evil:apocalypse er með lélegri myndum sem ég hef séð. hún er alveg svakalega asnaleg en samt ágæt. þeir sem hafa lesið bókina eðaunnið leikina taka sj´lfsagt eftir því að hú er ekkert lík þeim. ég skil ekki hvernig hægt er að gera svona asnalega mynd sem á í raun að vera góð. mér finnst svona horror myndir með svona súper fólki alveg svakalega pirrandi og þetta er þannig mynd. ég ætla nú að vona að ég eyðileggi ekki fyrir neinum með því að segja frá smá atriði þegar að Milla drepur mann með hugar orkunni og mjög illa tölvu gert blóð lekur út ú honum. ég mæli eindergið með leikjunum en ekki myndinni.
Þrusugóð ævintýra/spennumynd -alveg eins og ég vil hafa þær! Flottur leikur, flottir bardagar, flott tónlist, flottir búningar, flott grafík og bara flott mynd. Ég fílaði fyrri myndina mjög vel og bjóst ekki við neinu af þessari en hún kom mér svona líka algjörlega á óvart. Þær fá báðar svo gott sem fullt hús hjá mér. Þessi er jafnvel enn betri en fyrri myndin. Endirinn er sérstaklega ánægjulegur hér. En nú er aðalpersónan enn komin á stjá og í enn verri heimi en áður og sýnir fljótt mátt sinn sem ofurmanneskja eins og hægt er að kalla hana. Hún þarf að kljást við gamla óvini sem nýja og virðist að sjálfsögðu ósigrandi, hvort sem hún berst við menn eða önnur fyrirbæri. Mikill hraði, hasar og spenna og heill söguþráður sem heldur athyglinni allt í gegn. Ég dýrka svona myndir... Mæli með þessari mynd fyrir alla aðdáendur góðra framtíðar- og spennumynda. Vona að það komi framhald áður en langt um líður. Takk fyrir mig.
Ég vissi ekki hverju ég mátti búast við af þessari mynd. Ég hélt að þessi mynd yrði ekki eins góð og 1. myndin. Ég hafði ekki heyrt um eina mynd sem þessi Alexander Witt hafði gert en langaði samt að sjá þessa mynd því ég fílaði myndina sem Paul Anderson gerði alveg í tætlur. Þessi mynd, þótt ótrúlegt sé, fannst mér einhvern veginn betri. Það sést strax að þessir leikstjórar eru með mjög mismunandi stíl. Alexander Witt gefur þessari mynd svona tölvulúkk sem er gott því maður vill að heimurinn sem er gerður fyrir svona mynd sé eins líkur og er í leikjunum. Það var það sem böggaði mig mest með 1. myndina. Munurinn á þessari og fyrstu myndinni er að actionið er búið að endurbæta til hins betra og hún er mun fyndnari en fyrsta myndin. Svo finnst mér það cool að hann notar persónur úr tölvuleiknum í myndinni eins og Carlos, Jill Valentine og síðast en ekki síst Nemesis sem er ótrúlega flottur í þessari mynd. Besta útskýringin á þessari mynd er að þetta er Resident Evil að viðbættum meiri action og betri húmor. Þannig að ég ætla að skella 3 og hálfa stjörnur á þessa mynd.
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Kostaði
$45.000.000
Tekjur
$129.394.835
Vefsíða:
Aldur USA:
R
Frumsýnd á Íslandi:
1. október 2004
VHS:
17. febrúar 2005