Rock of Ages
2012
(Rock Forever)
Ekki aðgengileg á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 20. júní 2012
Nothin' But a Good Time
123 MÍNEnska
43% Critics
55% Audience
47
/100 Kvikmyndin Rock of Ages er byggð á samnefndum söngleik sem
var fyrst settur á svið árið 2006, sló í gegn í gegn á Broadway árið
2009 og hefur síðan farið sigurför um leiklistarheiminn.
Söngleikurinn gerist árið 1987 og byggir ekki síst á vinsælustu rokktónlist
þeirra ára þegar hljómsveitir eins og Def Leppard, Journey, Poison,
Twisted Sister og Foreigner... Lesa meira
Kvikmyndin Rock of Ages er byggð á samnefndum söngleik sem
var fyrst settur á svið árið 2006, sló í gegn í gegn á Broadway árið
2009 og hefur síðan farið sigurför um leiklistarheiminn.
Söngleikurinn gerist árið 1987 og byggir ekki síst á vinsælustu rokktónlist
þeirra ára þegar hljómsveitir eins og Def Leppard, Journey, Poison,
Twisted Sister og Foreigner áttu sviðið.
Drew Boley vinnur á krá og rokkklúbbi í Hollywood sem heitir The
Bourbon Room, en staðurinn er þekktur fyrir sína villtu rokktónleika.
Drew er sjálfur mikill rokkari sem vonast til að fá tækifæri til að láta
ljós sitt skína á sviðinu.
Dag einn kemur á krána ung kona að nafni Sherrie, en hún er komin
alla leið frá Kansas til að láta reyna á drauma sína um að fá vinnu sem
söngkona. Drew fellur umsvifalaust fyrir henni og sannfærir eiganda
kráarinnar um að ráða hana í vinnu.
Á sama tíma hefur samtökum sem vilja láta jafna krána við jörðu
vaxið fiskur um hrygg og athyglin sem málið fær verður til þess að
eigandinn ákveður að efna til „lokatónleika“ þar sem rokkgoðið
Stacee Jaxx á að koma fram, en Stacee hafði einmitt hafið sinn
glæsta feril á The Bourbon Room ...... minna