Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Sandler leikur 30 ára gamlan waterboy sem kemst að því að hann hefur hæfileika í ruðningi.Alls ekki Sandlers besta mynd en samt ágætis skemmtun.
Hinn villti grinisti i Hollywood, Adam Sandler slær rækilega i gegn i grinsmelli þar sem hlaturinn gengur aldrei til þurrðar. Bobby Boucher (Adam Sandler)er skritinn mömmustrakur sem olst upp a bóndabyli og langaði aldrei neitt nema að slökkva þorsta iþróttamanna sem koma illa fram við hann. En þegar þjalfarinn Klein (Henry Winkler) gefur Bobby tækifæri til að syna i hvað honum byr losnar um uppsafnaða gremju og hæfileikar koma i ljós sem breyta honum ur auðmjukum vatnsdreifistjóra i iþróttagarp. I myndinni leika einnig óskarsverðlaunaleikkonan Kathy Bates (Titanic, Misery) og hin kynþokkafulla Fairuza Balk (The Craft). Her faið þið tækifæri til að hylla Vatnsberann i stórskemmtilegri kvikmynd!
Þetta er góð mynd með Adam Sandler. Bobby Boucher(Sandler) er mömmu stráku og lætur alla valta yfir sig. Hann gefur fólki vatn enda kallaður waterboy. Dag einn hittir hann þjálfarann Klein(Henry Wrinkler) sem tekur hann inn í fótboltaliðið sitt. Í fyrstu getur hann ekki neitt en eftir að Klein sagði honum að það væri allt í lagi að hefna sín. Seinna verður hann einn besti maðurinn í liðinu. Mamma hans veit ekki af þessu því að hún vill ekki að Bobby sé að spila fúsbolta eins og hún segir. Kathy Bates(Mysery) leikur mömmu Boucher og í hennar augum eru allir djöfullinn sjálfur nema litli sæti mömmu strákurinn hennar. Dag einn kemst hún að þessu og verður ekki glöð. Hún endar á sjúkrahúsi þar sem að Boucher gefur upp fótbolta vegna mömmu sinnar. Bobby hélt að pabbi sinn hefði dáið í eyðimörk vegna vatnsskorts en hann dó ekki, hann yfirgaf mömmu Boucher. Í endanum á myndinni kemur faðir hans aftur og vill allt í einu vera vinur Bobby en þá kemur mamman í hlutverkið...
Alveg ágæt mynd en Adam Sandler ætti að halda áfram að gera myndir eins og Billy Madison og Eight Crazy Nights því að hann er orðinn lélegri með aldrinum (Eight Crazy Nights er undantekning). Vatnsberi nokkur að nafni Bobby Boucher (Adam Sandler) á heima hjá mömmu sinni (Kathy Bates,Misery) og er frekar óvinsæll hjá liðinu sem hann vinnur hjá. Hann hefur alltaf langað að verða atvinnumaður í fótbolta og þá fær hann einmitt boð frá þjálfaranum og hann kemst í liðið.
Myndinn er um aumingja sem adam sandler leikur sem hefur alla sína tið og alist upp við að vera algjör aumingi. Hans æðsti draumur er að vera vatnsberi og geta komið hreinu og góðu vatni til leikmanna í fótboltaliði. Fær hann að vera vatnsberi hjá slöku liði sem ekki hefur unnið leik á mörg ár. Stuttu seinna uppgötvast ótrúlegur hæfileiki í að stoppa leikmenn og henda þeim niður, einmitt það sem henntar í ameríska fótboltanum. Fyrr en varið er hann mikilvægasti leikmaður liðsins og liðið vinnur hvern leikinn á fætur annarri. Mjög fyndin mynd með adam sandler
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Framleiðandi
Touchstone Pictures
Kostaði
$23.000.000
Tekjur
$185.991.646
Vefsíða:
Aldur USA:
PG-13
Frumsýnd á Íslandi:
15. janúar 1999
VHS:
29. júlí 1999