Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Ég var alveg búinn að gleyma þessari, sá hana þegar hún kom út og svo ekki fyrr en núna. Ef ég hefði munað hver morðinginn var hefði þessi mynd verið ALGJÖR tímasóun. Í staðinn var hún bara næstum tímasóun.
Ok, enn einu sinni er einhver að reyna að drepa Sidney Prescott. Morðingjar í fyrri myndum hafa verið drepnir en samt veit nýji morðinginn hvernig hann á að hreyfa sig og tala í síma nákvæmlega eins og hinir. Líkt og fyrri myndir er Scream 3 mjög meðvituð um sig sjálfa ef svo má segja. Það er stöðugt verið að vitna í hryllingsmyndir og lögmál sem gilda í framhöldum. Ég verð að segja að það er orðið ansi þreytt í þriðju myndinni. Plottið gengur út að það er verið að búa til Stab 3 mynd í myndinni og leikararnir eru drepnir í sömu röð og þeir eiga að deyja í myndinni. Hmm, ok. Annars er þessi mynd nákvæmlega það maður býst við, whodunnit slasher. Myndin er stöðugt að reyna að afvegaleiða mann en á endanum er manni liggur við alveg sama hver morðinginn er. Ég hefði betur mátt sleppa þessari upprifjun.
Þriðja Scream myndin segir frá því þegar enn einn morðingi í draugabúningi skýtur upp kollinum og tekst að hafa uppi á Sidney Prescott(Neve Campbell) sem er í felum. Morðinginn á einhver mál óleyst við Sidney sem undirritaður skilgreinir ekki nánar. Þessar Scream myndir verða stöðugt verri með hverjum kafla. Sú fyrsta er ágæt, númer tvö sæmileg en þessi er virkilega þreytt og jafnvel leiðinleg á köflum. Leikurinn er vondur, Courteney Cox er alveg hörmuleg, David Arquette ekkert skárri og Lance Henriksen virðist löngu útbrunninn. Jafnvel Neve Campbell á mjög bágt með að halda myndinni á floti sökum lélegs handrits þó svo að endaplottið sé eiginlega mjög gott og fær myndin hærri einkunn fyrir það eitt og sér. Í heildina er þessi mynd þurr og skortir allan djús úr fyrstu myndinni og þá er undirritaður ekki að meina að morðin séu færri eða minna krassandi heldur er stemningin í Scream 3 einhvernveginn leiðinlegri heldur en í forverunum tveimur. Þó svo að hún sé slæm þessi þá verðurðu eiginlega að sjá hana ef að þú hafðir gaman af hinum bara út af plottinu sem gefur manni nýja sýn á hinar. En þrátt fyrir allt var undirrituðum ekki skemmt og gefur eina og hálfa stjörnu í einkunn.
Scream3 er versta scream myndin til þessa enda Kevin Williamson farinn og Ehren Kruger kominn í staðinn en Kruger gerði hinar FRÁBÆRU Ring myndir og Skeleton key
hann skrifaði þær mjög vel en þetta handrit er á mörkunum að vera í neðarlagi hann er betri að skrifa frumlega og yfirnáttúrlega spennutrylla heldur en Hollywood unglinga morðingja myndir og Graven stendur sig því miður ekki vel.
Leikaranir hörmulegir,persónurnar leiðinlegar,óáhugaverðar og grútleiðinlegar og morðin léleg og svo bara einn morðingi.
Hinar scream voru frumlegar og voru að gagnrýna unglingahrollvekjur og ofbeldi í sjónvarpi og að Ameríkanar gera myndir um næstum alla raðmorðingja landsins en þetta er eins og það sem þeir Graven og Williamson voru að gagnrýna og gera grín af. Og var ég búinn að segja að leikararnir voru DRULLULÉLEGIR og maður leiður á Gale,Sidney og Dewey það hefði verið hægt að gera þessa betri en hún er hinsvegar ágætis kvöld spennumynd en þetta er ekki unglingahryllingsmynd.
Cotton Weary(Schreiber)er myrtur á meðan hann var að leika sjálfan sig í stab 3(stab myndirnar voru bygðar á atburðunum sem Sidney og Co. lentu í scream 1 og 2 og þetta er bara eitthvasð rusl framhald)og svo fara allir leikararnir að deyja ekki á ógeðsleganm eða subbulegann hátt eins og í hinum.
Sidney(Cambell)flutt útí rassgat og búin að breyta um nafn og Gale(Cox)er að berjast við að verða stórstjarna en er að gleymast og Dewey er leiðinlegri sem aldrei fyrr og er orðin lífvörður hjá einhverri B mynda leikkonu sem er að leika Gale í stab 3.
Mynd sem má sleppa en fyrir hörðustu Scream aðdáendur þá meiga þeir kíkja á þessa en bara ekki búast við Scream eða Scream 2.
Scream 3 er ein af þessum hryllingsmyndum sem hafa glataðan endi ég tek td. I still know ........, Urbran Legent og Scream 2 en allar þessar myndir eru ný tegund af hrollvekju ( sem nefnist unglingahrollvekja ). Leikarar myndarinnar eru algjörir B-myndaleikarar og fer þar í fararbroddi Neve Campell, einnig eru þau með leikara eins og Contrey Cox og David Arquette ( sem í raun og veru ætti að vera laungu dauður síðan í Scream 2 ). Engu að síður var þessi mynd betri en tvö myndin (enda þurfti nú ekki mikið til). Upprunarlega Scream myndin var eina myndin sem er góð.
Ég fór á þessa mynd kl 24 á föstudag. Ég fíla hinar tvær Scream myndirnar mjög mikið en þessi er seinasta myndin og mér finst hún vera best af þeim öllum. það er meira grín og fleiri morð í þessari mynd og ég hef aldrei áður fengið svona mikið adrenalín kick í bíó-i, miklu meira en á hinum 2 myndunum. Ég gef Scream 1 þrjár stjörnur og Scream 2 tvær og hálfa stjörnu. En þessi er miklu betri og fær því fjórar stjörnur. Ég mæli með að allir fari á þessa mynd.
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Ehren Kruger, Kevin Williamson
Kostaði
$40.000.000
Tekjur
$161.834.276
Vefsíða:
Aldur USA:
R
Frumsýnd á Íslandi:
31. mars 2000
Útgefin:
24. apríl 2015
VOD:
24. apríl 2015
VHS:
20. september 2000