Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Secret Window er gerð eftir samnefndri skáldsögu Stepen King. Johnny Depp leikur næstum því King sjálfan, þ.e. rithöfund dularfullra smásagna. Dag einn bankar John Turturro upp á og sakar Jón Doppu um að stela smásögu af honum sem Depp kannast ekki við. Myndin fer af stað sem frekar týpísk stalker mynd en breytist í eitthvað annað. Maður finnur vel fyrir að maður er í heimi King og hvað sem er getur gerst. Myndin er mjög vel leikin enda reynsluboltar hér í öllum hornum. Það verður líka bara að segjast eins og er, Johnny Depp er eiginlega alltaf góður og hann velur góðar myndir til að vera í. Þetta er langt frá því að vera stórmynd eða must see en mér fannst hún skemmtileg.
Þessi mynd kom mér virkilega á óvart. Hafði ekki miklar væntingar til þessarar myndar, en tók hana af sömu ástæðu og margir aðrir: Johnny Depp er í henni. Og finnst mér hann standa sig alveg þokkalega vel í sínu hlutverki sem rithöfundurinn. Svo er gaman að sjá John Turturro í hlutverki Shooters. Einn af mínum uppáhaldsleikurum og alltaf gaman að sjá hann, sama hvort sem það sé í Big Lebowski, Barton Fink eða þessari. Og verð að vera sammála Tómasi um það hversu hröð myndin er. Hún nær athygli manns alveg frá byrjun til enda, og það er kostur. En hvað varðar plottið á myndinni: Þó að það virki ágætlega, er þetta ekki eitthvað sem við erum búin að sjá áður í annarri mynd? En samt, mæli með henni samt sem áður.
Ég var á video leigjunni í gær og var að hugsa um að taka annaðhvort Dark water eða Skeleton key,myndir sem ég var þegar búinn að sjá en endaði að ég tók Secret window því ég fýla sálfræði trylla og Johnny Depp er minn uppáhalds leikari.
Mort Rainey(Johhny Depp)er subbulegur og hrokkafullur rithöfundur sem stendur í miðjum skilnaði eftir að konan hans Amy(Maria Bello)hélt framhjá honum svo hann býr einn í sumarbústaði þeirra hjóna,hann er þar aleinn og er að skrifa nýja skáldsögu þegar mjög undarlegur maður sem kallar sig John Shooter(John Turturro)og segir að -Mort hafi stolið frá sér skáldsögu og hótar öllu illu en Mort getur sannað það að hann sé ranglega áskaður og hefur sannanir og Shooter gefur honum þriggja daga frest.
Svo fara hryllilegir hlutir að gerast og spennan magnast eða hvað?
Ég varð fyrir vonbrigðum með Secret window hún er mjög lík Hide and seek og Shining en kom úut ári á undan Hide and seek en það er samt mun betri mynd.
Secret window var frekar stutt en endirinn rosa óhugnalegur,kunning minn var reyndar búinn að kjafta frá honum og það eyðilegði fyrir mér myndina en endrinn var engu síðar hryllilegur(meint í sömu merkingu og óhugnanlegur).Myndin er ekki mjög vel gerð og mynnti á tíma bili sem sjónvarpssmynd.Johnny Depp hefur verið mikilu betri en var ágætur sem aðalpersónan,mun betri var Turturro sem hinn skrítni og óhugnanlegi Shooter,og Maria Bello var skítsæmileg.Mæli mun meira með Hide and seek,góð mynd þar á ferð en sleppiði bara secret window.
Johnny Depp sýnir hér enn og aftur að hann er stórleikari. Við kynnumst rithöfundi sem hefur skorið frá nútímasamfélagi og hýrist í kofa út buskanum.
Depp hefur átt í skilnaði við fyrrverandi konu sína og er hann í sífelldu þunglyndi sem dagurinn líður. Einn daginn kemur til hans maður(Turturo), mjög dularfullur, og segir hann að Depp hafi stolið af sér sögu, Depp kannast ekkert við það og fer að rannsaka málið. Það sem hann kemst að og það sem á eftir kemur er tvímælalaust óséð og hafði ég ekki græna glóru um það hvernig myndin myndi enda.
Þessi mynd er ein af þeim sem heldur manni allan tímann og er maður sífellt að pæla í henni, það sem maður fær í andlitið í lokin er vel biðinnar virði, en mér fannst þó endirinn ekki eins góður og myndin var búin að byggja upp, hefði getað verið betri. En Depp fær kredit fyrir leik sinn og er hann án efa með betri leikurum í dag.
Andskoti góð mynd og ein af þessum fáu góðu myndum sem eru byggðar á skáldsögum eftir Stephen King. Johnny Depp fer alveg á kostum í aðalhlutverkinu sem rithöfundur í sóðaskap og rugli og það er alveg frábært að sjá hann leika svona vel. Maria Bello er líka fín, spilar vel úr annars hálf klisjukenndu hlutverki. Hins vegar er soldið vont að sjá John Turturro, eitthvað svo slappur og bara ekki rétti maðurinn í hlutverkið en það gerir ekkert til þar sem að Depp valtar alveg yfir Turturro og jafnvel alla aðra leikara í myndinni. Margir hafa haft orð á því að óvænta uppljóstrunin í þessari mynd Secret window þurfi á hvíld að halda í bili þar sem að eitthvað svona hefur verið notað reglulega undanfarið og undirritaður er að vissu leiti sammála því en plottið kemur samt reglulega á óvart við fyrsta áhorf. Þetta er samt orðið gott í bili. Secret window hefur sína galla en hún hefur sína kosti sem eru fleiri en gallarnir. Undirritaður er því ánægður með myndina og gefur henni þrjár stjörnur ásamt dágóðum meðmælum.
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Vefsíða:
Aldur USA:
PG-13
Frumsýnd á Íslandi:
30. apríl 2004
VHS:
6. október 2004