Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Myndin Ghost Town fjallar um tannlækninn Bertram Pincus (Ricky Gervais) sem finnst ekkert spes við það að umgangast annað mannfólk. Eftir að hafa dáið í 7 mínútur í aðgerð sér hann drauga sem vilja öll að hann hjálpi sér. Einn draugurinn (Greg Kinnear) vill að Pincus láti fyrrverandi konuna sína hætta með kærastanum sínum.
Þetta er þessi týpíska saga full af klisjum. Vondi maðurinn sem verður góður. Ég vonaðist eftir því að myndin gæti falið klisjuna með léttum tón og mörgum bröndurum en því miður heppnast það ekki. Ricky Gervais er mjög fínn sem Pincus og sömuleiðis er alltaf gaman að sjá Greg Kinnear í mynd en öll atriðin með þeim tveimur eru leiðinleg og það er engin þróun á sambandi þeirra.
Það er fínn húmor á köflum í myndinni en meirihluti brandarana eru þvingdir og ekkert fyndnir. Persónurnar í myndinni eru mjög dæmigerðar og leikararnir gera ekkert fyrir þær svo það er virkilega leiðinlegt að fylgjast með þeim út myndina. Ricky Gervais er að mínu mati mjög fyndinn á heimavelli en því miður er hann ekki á heimavelli hérna. Myndin er fyllt af kjánahrollum, fáum góðum bröndurum og ágætum frammistöðum. 5/10
Eftir að hafa dáið í 7 mínútur vegna læknamistaka, öðlast tannlæknirinn Bertram Pincus (Ricky Gervais) þann eiginleika að geta séð og talað við drauga. Einn þessara drauga (Greg Kinnear) sannfærir Pincus um að aðstoða sig við að stía í sundur ekkju sinni og nýja kærastanum hennar.
Hér er á ferðinni fyrsta mynd Ricky Gervais með honum í aðalhlutverki. Eftir að hafa gert garðinn frægan með ‘The Office’ og ‘Extras’ hefur hann hægt og bítandi verið að flytja sig yfir til Hollywood með litlum hlutverkum í myndum á borð við ‘Stardust’, ‘Night at the museum og fleirum’.
Þó svo að myndin sjálf sé í raun ágætis afþreying fyrir sunnudagskvöld, þá er efni hennar hvorki nýtt af nálinni né nær hún sér almennilega á flug. Þess í stað hangir hún undir meðallagi allan tímann og gefur Gervais ekki mikið til að vinna með. Söguþráðurinn er einskonar samansull af ‘The Sixth Sense’ og ‘Ghost’ en engan veginn jafn skemmtileg. Ekki misskilja mig samt, ég hafði gaman að henni. Hló upphátt nokkrum sinnum en fékk þó oftar kjánahroll, en ef þig bráðvantar léttmeti fyrir sunnudagskvöld, horfðu þá á Ghost Town.
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Framleiðandi
DreamWorks/Paramount Distribution
Vefsíða:
Aldur USA:
PG-13