The Leisure Seeker
2018
A Once in a Lifetime Roadtrip They Will Never Forget
112 MÍNEnska
38% Critics
57% Audience
45
/100 The Leisure Seeker hefur hlotið mörg
verðlaun og viðurkenningar og var
Helen Mirren t.d. tilnefnd í þrettánda
sinn til Golden Globe-verðlaunanna í
fyrra fyrir leik sinn í henni.
Þau John og Ella, sem eru á áttræðisaldri og eiga gullbrúðkaup að baki,
glíma bæði við alvarlega og ólæknandi sjúkdóma því hann er kominn með
Alzheimer með tilheyrandi minnisgloppum og hún er með krabbamein og
hefur hætt að þiggja meðferð við því. En þau eiga eitt ævintýri eftir. Í
stað þess að sitja heima og bíða eftir endalokunum ákveða... Lesa meira
Þau John og Ella, sem eru á áttræðisaldri og eiga gullbrúðkaup að baki,
glíma bæði við alvarlega og ólæknandi sjúkdóma því hann er kominn með
Alzheimer með tilheyrandi minnisgloppum og hún er með krabbamein og
hefur hætt að þiggja meðferð við því. En þau eiga eitt ævintýri eftir. Í
stað þess að sitja heima og bíða eftir endalokunum ákveða þau hjónin að skella
sér í sína síðustu ferð á húsbílnum sínum, The Leisure Seeker, alla leið frá heimili
sínu í Massachusetts til Key West í Flórída þar sem Ernest Hemingway bjó. Á því
langa ferðalagi lenda þau síðan að sjálfsögðu í hinum kostulegustu ævintýrum ....... minna