Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Bróðir minn þurfti endilega að taka mig á þessa mynd og ég vissi að hún yrði slæm. Og Jet Li stóð sig verst. Hvernig hann t.d. hreyfði hálsinn og brosti í leiðinni. Það voru glataðar tæknibrellur og ástæðan að ég gefi myndinni hálfa stjörnu var vegna þess að brúni kallinn lék vel. Jackie Chan myndirnar eru miklu betri.
Mér fannst þetta góð mynd, góð bardagaatriði þó að það var stundum sýnt hægt. Alla vegna sat ég spennt allan tíman sem ég var bíó og beið eftir hvað séði næst. En ég mæli samt ekki með því að fólk sem hefur ekki gaman af Kong Fú ekki horfa á hana því það mun bara hneyksla það fólk. Sjálfu sér er söguþráðurinn ekki góður en það er nánast í hvaða mynd sem hann Jet Li leikur í þá virðist eins og hann geti allaf bæt söguráðin á einhvern hátt. En ég mæli þessari mynd fyrir þá sem vilja sjá spennumynd með honum Jet Li
The One er bara enn önnur eftirherma af snilldarmyndinni
The Matrix. Ég verð nú samt að segja að bardaga atriðin eru fín
en allt of mikil Matrix herma eins og flestar myndir sem Jet Li leikur í t.d. Romeo Must Die og fleiri. Söguþráðurinn er ágætur samt ekki nógu góður.Þetta er típísk mynd þar sem tveir eða fleiri eru eins og alltaf er sama aðferðin notuð til að finna út hver er góði kallinn og hver er vondi, þau spyrja um eitthvað sem vondi ætti ekki að vita. Jet Li er góður bardagalistamaður en ekki nógu góður leikari og ekki bæta aukahlutverkin það upp.
Það eru takmörk fyrir því hvaða bévítans vitleysu maður lætur hella yfir sig meðan maður horfir á menn lumbra hver á öðrum.
Gef samt eina og hálfa vegna þess að Jet Li er lipur og skemmtilegur slagsmálakall og Jason Statham er flottur í sínu hlutverki sem endranær.
Ég hélt að þessi mynd væri betri. En hún er yfirborðskennd, alltaf það sama að gerast og ekki nógu góðir leikarar. Jet Li kann ekki ensku en bardagaatriðin eru ágæt, þó mætti sleppa tónlistinni, ekki að hún sé ekki góð, hún passar bara ekki inn í atriðin. Ef þið nauðsynlega viljið sjá The One, takið hana þá á video.
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Framleiðandi
Columbia Pictures
Aldur USA:
PG-13
Frumsýnd á Íslandi:
23. nóvember 2001