Aðalleikarar
Leikstjórn
Ekki alveg nógu góð mynd. En er samt engin hörmung, það er á hreinu. Ég hef séð verr en þetta. Antonio Banderas er ágætur og Angelina Jolie er fín, og gaman að sjá hana loksins í sinni fyllstu dýrð, ef þið fattið. En þrátt fyrir það, þjáist hún með lélegum söguþræði, og hefði alveg mátt gera hana betur en gert er hér. En gef henni 1 og hálfa. Finnst það sanngjörn einkunn.
Mér fannst myndin of löng, og söguþráðurinn hvorki nógu áhugaverður né spennandi. Ég sat í bíó og beið hálfpartinn eftir að myndin kláraðist, svo ómöguleg var hún. Þetta er of fyrirsjáanleg mynd. Það sem bjargaði myndinni voru nokkur töff atriði sem voru nokkurn veginn þess virði að sjá. SAMT ekki í bíó, myndin er ekki 800.- virði, frekar ráðlegg ég fólki þá að leigja hana á video.
Ég bjóst ekki við neinu þegar ég fór á þessa mynd og ég fékk ekki neitt. Ég hefði betur beðið eftir þessari mynd á spólu. Hún fær samt eina stjörnu og hana fær Angelina Jolie. Hún er alltaf að vaxa í áliti hjá mér sem leikkona. Antonio Banderas er eins og álfur út í hól. Forðist þessa (p.s. hún er auglýst sjáið Jolie bera en það er í raun blöff, að vísu er hún ber en come on, fyrr má nú aldeilis vera).
Mjög leiðingjörn og langdregin. Angelina Jolie passar enganvegin sem einhver hefðarfrú, þó hún smellpassi í ástaratriðin í myndini. Sagan var mjög fyrirsjáanleg og á engan hátt spennandi. Ef ykkur finnst gaman að pinta ykkur þá endilega skellið ykkur í stjörnubíó á þessa mynd. Annars held ég að það sé meira spennandi að sitja heima hjá sér og horfa á Fólk með Sirrý
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Michael Cristofer, Cornell Woolrich
Framleiðandi
MGM
Kostaði
$42.000.000
Tekjur
$35.402.320
Vefsíða:
Aldur USA:
R
Frumsýnd á Íslandi:
8. febrúar 2002
VHS:
3. apríl 2002