maggi1973

Notendagagnrýni

maggi1973

Skráður frá mars 2026
20 Gagnrýni
1 Fylgjendur
9.3 Meðaleinkunn

Gagnrýnir (20)

The Wolf of Wall Street (2013)

★★★★★ 10.0/10

Leiksigur DiCaprio

Leonardo DiCaprio og Martin Scorsese hafa vert nokkrar myndir saman og að mínu mati er þetta besta enn sem komið er- myndin - myndin fjallar í stuttu máli um milljarðarmæringinn Jordans Belfort og fall hans í lífinu sem er einkar áhugavert - DiCaprio fékk ekki Óskarinn fyrir þessa en hefði átt skilið þar sem þetta er hans skemmtilegasta hlutverk sem ég hef séð hann i- 3 tima mynd en maður finnur alls ekki fyrir þvi

Good Time (2017)

★★★★★ 10.0/10

Alveg mögnuð

Robert Pattison sannar enn og aftur hér í þessari mynd hve goður leikari hann er og hans val á hlutverkum eftir Twilight myndirnar verður alltaf enn áhugaverðari
Hér leikur hann Connie sem gerir allt til að hjálpa broður sínum - myndin gerist í kringum sólarhring í New York borg -myndin er mjög hröð og heldur manni alveg við efnið til enda .
Pattison verður bara betri eftir hverri mynd og Primetime er önnur frábær sem ég mæli líka með

Heaven Can Wait (1978)

★★★★☆ 8.0/10

70s grínmynd

Warren Beatty var einn af þeim stærri stjörnum í kringum 70-80 og lék í fullt af flottum myndum þar a meðal þessi skemmtilega einfalda mynd um fótboltastjörnu sem næstum því deyr en í stað þess að fara til himnaríkis þá fer sálin hans í líkama milljarðamærings - skemmtileg og einföld rom com og góðir aukaleikarar

Don't Look Now (1973)

★★★★★ 10.0/10

Mögnuð

Don’t look now fjallar um hjon sem missa dóttur I slysförum þegar hún drukknar - I sorginni ákveða þau að fara til Feneyja til takast á við lífið sem er framundan en a lausu er morðingi sem er að drepa ungar konur og er í rauðum regn jakka eins og dóttirin var í þegar hún lést
Meira art horror og Donald og Julie eru frábær í þessari - endirinn er líka ógleymanlegur

The Best Little Whorehouse in Texas (1982)

★★★★☆ 8.0/10

Dolly

Dolly Parton var ein besta kántrí söngkona ef ekki best allra tíma - tónlist hennar spannaði marga áratugi en hún lék einnig í nokkrum fínum myndum þar á meðal þessum sem er byggð á leikriti - Dolly stjórnar hóruhúsi í Texas og á í ástarsambandi við Burt Reynolds sem leikur fógetann - Dom Deluise stelur svo myndinni sem hann gerir oft - skemmtileg grínmynd og Dolly er alltaf sjarmerandi a skjánum
Fín kvöldstund að kíkja á þessa

The Russia House (1990)

★★★★★ 10.0/10

Alveg frábær

Russia house er ein af þínum uppáhalds með Sean Connery og Michelle Pfeiffer of samleikur þeirra er alveg frábær - mjög slow burn mynd en heldur manni alveg frá byrjun - eftir sögu John Le Caree og með góðum aukaleikurum .
Mynd sem skilur vel eftir sig og maður hugsar vel eftir a .

Spies Like Us (1985)

★★★★☆ 8.0/10

80s fílingur

Þegar Dan Aykrod og Chevy Chase gera mynd saman þá býst maður við góðri skemmtun og það tekst her - kalda stríðs grínmynd sem er með góðan húmor -mæli með þessari

The Swimmer (1968)

★★★★☆ 8.0/10

Einstök

Burt Lancaster er einn af bestu Hollywood stjörnum sem voru uppí - Swimmer var mynd sem ég var alltaf á leiðinni að sjá og ákvað að kíkja loksins og sá alla ekki eftir - myndin fjallar um mann sem labbar í gegnum bakgarða hjá fólki og stingur sér til sunds hjá þeim - samtölin eru vel skrifuð og endirinn kemur vel a óvart - einföld 95 mínútna mynd sem skilur vel eftir sig

Digger (2026)

★★★★★ 10.0/10

Frábært verk Alejandro

Hef verið aðdáandi Alejandro leikstjórnans síðan ég Ameros perros - síðan komu frábærar myndir td 21 grams og Babel - Birdman var ekki í uppáhaldi hjá mér þannig áður en ég sá þessa var ég ekki viss .
Að endanum fannst mér þessi algjör snilld - alls ekki fyrir alla og Cruise fer á kostum - mikið twists I handritinu og fannst það kostur - myndin lauk líka mjög flott . Eins konar blanda af dr strange love og Brazil
Held að hún verði cult classic eftir einhver ár

Coyote vs. Acme (2026)

★★★☆☆ 6.0/10

Looney tunes

Sem mikill aðdáandi af looney tunes var eg Mjog spenntur að sjá þessa en að endanum var hún bara fín en ekkert meira - coyote fer i mal við Acme fyrirtækið sem býr til alls konar varning sem hann notar til að reyna ná i roadrunners - Will Forte og John Cena eru skemmtilegir en þessi mynd hefði mátt vera betri en gaman að sjá gamla félaga á skjánum
3af 5

The Life of Chuck (2024)

★★★★★ 10.0/10

Who is Chuck

Mike Flanagan hefur gert nokkrar myndir eftir sögu meistarans Stephen King og yfirleitt hryllingsmyndir en þessi sker sig vel út og er meira sci fi mystery drama með Tom Hiddleston um karakter sem heitir Chuck og skiptist myndin í nokkra kafla úr lífi hans - fyrsti hlutinn er bestur og frumlegur.
Mjog vel leikin og var uppáhaldsmyndin mín 2024- mæli vel með þessari

Inland Empire (2006)

★★★★★ 10.0/10

Meistari Lynch

Síðasta bíómynd meistarans Lynch er einstök upplifun og Laura Dern sýnir storleik - alls ekki fyrir alla en þarna er A ferðinni 3 tima Lynch veisla og má segja að þú byrjar ekki a þessari ef þú hefur ekki séð neins eftir hann - kannski best að enda
Myndin fjallar í stuttu máli um leikkonu sem er í endurgerð ad pólskri mynd og það eru álög á myndinni og ekkert er eins og það sýnist sem er algengt með Lynch myndir.

Priest (1994)

★★★★★ 10.0/10

Priest

Alveg frábær mynd um kaþolskan prest sem er í togstreitu með sína kynhneigð - þung drama mynd sem eftir a skilur mikið eftir sig - Robert Carlyle alltaf góður og leikur ástmann prestsins - mæli hiklaust með þessari

Wilde (1997)

★★★★☆ 8.0/10

Oscar Wilde

Einstaklega vel leikin mynd með Stephen Fry sem gerir Oscar Wilde að mjög áhugaverðum karakter -Jude Law lek þarna eitt af fyrstu hlutverkunum áður en hann varð stærri leikari - frábær drama mynd og söguleg og Bretarnir klikka aldrei þegar kemur að svona myndum

The Ladykillers (1955)

★★★★★ 10.0/10

Klassík

Þessi er ein af bestu grínmyndum sem gerðar hafa verið og frábært leikaralið með Alex Guinness sem criminal mastermind og Peter Sellers I minni hlutverki en vanalega en átti eftir að vera stjarna siðar - en se sem stelur myndinni er Katie Johnson sem :the old lady -forðist remake myndina með Tom Hanks - þessi er mun betri

Primetime (2026)

★★★★★ 10.0/10

Pattison

Robert Pattison sannar sig enn og aftur að hann er einn besti leikari í dag- byggt á dateline þáttunum um 2006 um Chris Hansen sem tælir barnaníðinga í þáttunum sínum- og hans einkalíf kemur þar inn í líka sem truflar hans vinnu
Þetta er ein af betri myndum ársins
Mæli með þessari

God's Own Country (2017)

★★★★★ 10.0/10

Eftirminnileg

Þetta er ein af þessum myndum sem ég fór alveg blint i þegar hún var sýnd í bíó her og labbaði út vel sáttur - Aðalleikarnir mjög goðir og i fyrsta skipti sem ég sá Josh O’Connor - fallega tekin I sveitum Englands og gott handrit - mæli vel með

Desperately Seeking Susan (1985)

★★★★★ 10.0/10

Frábær 80s

Ein af þessum 80s myndum sem ekki er hægt að endurgera og margir sau Madonnu i fyrsta skipti her - skemmtilegur húmor og fínasta popp og kók mynd - ekki mikil plott en hafði milt gaman af henni

All of Us Strangers (2023)

★★★★★ 10.0/10

Meistarastykki

Minn uppáhalds 2023 og engin mynd a því ari kom nálægt þessari - báðir leikarnir frábærir og handritið vel skrifað og eftir að hlusta a always on my mind með pet shop boys i myndinni hljómar það öðruvísi eftir það - Claire Foy fær líka að njota sin í þessari - mynd sem skilur mikið eftir sig

Peggy Sue Got Married (1986)

★★★★★ 10.0/10

Peggy Sue

Frábær mynd þar sem ég sá Nicholas Cage I fyrsta skipti í mynd og Jim Carrey líka - Kathleen einstaklega skemmtileg í þessari.
Tímaflakk þar sem spurningin er : hefði lifið mitt getað verið betri - mæli hiklaust með þessari perlu