Muppets Most Wanted

Muppets Most Wanted (2014)

The Muppets 2, Prúðuleikararnir 2

"Taking the world by farce / 2 Frogs 1 Pig Epic Mayhem"

1 klst 52 mín2014 1 álit notenda

Prúðuleikararnir eru mættir aftur og eru í þetta sinn staddir í Evrópu á annasömu sýningarferðalagi þar sem þeir troða upp fyrir fullu húsi í frægum leikhúsum, m.a.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum
Hvar má horfa

1 einkunn á Kvikmyndir.is

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →
Öllum leyfðÖllum leyfð

Hvar má horfa

Streymi

Söguþráður

Prúðuleikararnir eru mættir aftur og eru í þetta sinn staddir í Evrópu á annasömu sýningarferðalagi þar sem þeir troða upp fyrir fullu húsi í frægum leikhúsum, m.a. í London, Berlín og Madrid. Eins og jafnan gengur mikið á hjá leikhópnum og Kermit froskur má hafa sig allan við að stýra hlutunum í rétta átt um leið og hann glímir við persónuleg vandamál sem tengjast flest Svínku. Á sama tíma gengur skartgripaþjófurinn Constantine laus, en hann lítur nokkurn veginn nákvæmlega út eins og Kermit. Þegar Constantine uppgötvar þetta fær hann þá snjöllu hugmynd að villa á sér heimildir, láta laganna verði halda að Kermit sé hann og þykjast sjálfur vera Kermit. Til að koma þessari útsmognu áætlun í framkvæmd sendir hann aðstoðarmann sinn, hinn slóttuga Dominic Badguy, til að leiða Kermit í gildruna sem á síðan eftir að heppnast fullkomlega. En þó að Constantine líti út eins og Kermit þá á hann við þann veikleika að stríða að hann talar ensku með erlendum hreim og því fer ýmsa fljótlega að gruna að hér sé ekki allt með felldu ...

Svipaðar myndir

The Muppets
The Muppets
2011·IMDb 7.1
Sami leikstjóri: James Bobin
Disney+
Einkunn
Rio
Rio
2011·IMDb 6.9
Líka gaman, glæpa
Einkunn
Rio 2
Rio 2
2014·IMDb 6.3
Líka gaman, ævintýri
Einkunn
Epic
Epic
2013·IMDb 6.6
Líka gaman, ævintýri
Disney+
Einkunn

Myndbönd

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Álit notenda (1)

Meiri Pruðuleikarar

★★★★★

Eftir vinsældir Muppets frá 2011 var bara spurning hvenær næsta kæmi og var ákveðið að fá flotta leikara - ekki eins góð og fyrri með Jason en samt verulega skemmtileg

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!

Framleiðendur

Walt Disney PicturesUS
Mandeville FilmsUS
The Muppets StudioUS