Topp 10 Michael Keaton myndir

Bandaríski leikarinn Michael Keaton, sem leikur titilhlutverkið í Beetlejuice Beetlejuice, sem kemur í bíó á morgun, hefur átt frábæran feril í kvikmyndum sem spannar nokkra áratugi, en hann hefur bæði á valdi sínu dramahlutverk og gamanhlutverk.

Hér eru tíu myndir sem vert er að gefa gaum:

1. Birdman or (The Unexpected Virtue of Ignorance) (2014)

  • Hlutverk: Riggan Thomson
  • Afhverju er hún góð: Myndin kveikti aftur í ferli Keaton og hlaut lof gagnrýnenda. Einnig var hann tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn.

Birdman

Birdman 2014

Gaman, Drama · 119 mín12 áraIMDb 7.7

Bandarískur leikari, sem eitt sinn naut mikilla vinsælda í hlutverki ofurhetju, reynir að endurlífga feril sinn og sættast við fortíð sína um leið og hann vinnur sem leikstjóri að uppsetningu leikrits á Broadway…

Gefa einkunn

2. Beetlejuice (1988)

  • Hlutverk: Betelgeuse
  • Afhverju er hún góð: Þetta er eitt þekktasta hlutverk Keatons. Myndin er sígild og einstök blanda af hrolli og gríni.

Beetlejuice

Beetlejuice 1988

Gaman, Ævintýri · 92 mín12 áraIMDb 7.4

Beetlejuice er gamansöm draugasaga og fjallar um ung hjón sem lenda í bílslysi og deyja. Þau snúa síðan aftur sem draugar og fara heim til sín. Í fyrstu virðist allt eins og áður, en fljótlega koma aðrir lifandi íbúar…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

3. Batman (1989)

  • Hlutverk: Bruce Wayne / Batman
  • Afhverju er hún góð: Tímamótatúlkun á Batman. Hann kom með dýpt og margbreytileika og myndin breytti áliti almennings á ofurhetjukvikmyndum.

Batman

Batman 1989

Spenna, Ævintýri · 126 mín12 áraIMDb 7.5

Fyrsta myndin í Batman-seríunni og segir hún frá glæpamanninum Jack Napier/The Joker og áætlun hans um að yfirbuga skikkjuklæddu hetjuna Batman. Sögusvið myndarinnar er hin drungalega Gotham borg. Þar er hættulegt að…

Gefa einkunn

4. Batman Returns (1992)

  • Hlutverk: Bruce Wayne / Batman
  • Afhverju er hún góð: Túlkun Keatons á Batman hér er enn myrkari en áður og flóknari.

Batman Returns

Batman Returns 1992

Spenna, Glæpa, Ævintýri · 126 mín12 áraIMDb 7.1

Eftir að hafa borið sigurorð af Jókernum etur Batman nú kappi við nýjan óvin, Mörgæsina - mann sem vill verða viðurkenndur inn í samfélagslíf Gotham borgar. Hinn spillti athafnamaður Max Schreck er kúgaður til að hjálpa…

Gefa einkunn

5. Spotlight (2015)

  • Hlutverk: Walter „Robby“ Robinson
  • Afhverju er hún góð: Myndin hlaut Óskarsverðlaun sem besta mynd og leikaraliðið er stjörnum prýtt. Myndin er sannsögulg og fjallar um það þegar hópur blaðamanna afhjúpaði barnaníð innan kaþólsku kirkjunnar í Boston.

Spotlight

Spotlight 2015

Drama, Spennutryllir, Söguleg · 128 mín6 áraIMDb 8.1

Sönn saga af því þegar Spotlight teymi dagblaðsins The Boston Globe afhjúpaði barnaníð og hylmingu á glæpunum innan kaþólsku kirkjunnar, sem átti eftir að hafa mikil áhrif á kirkjuna. Myndin byggir á sögu raunverulega…

Gefa einkunn

6. The Founder (2016)

  • Hlutverk: Ray Kroc
  • Afhverju er hún góð: Keaton slær hér í gegn sem hinn metnaðarfulli Ray Kroc, maðurinn sem gerði McDonalds að stórveldi.

The Founder

The Founder 2016

Drama, Söguleg, ÆviágripIMDb 7.2

Myndin fjallar um Ray Kroc sem gerði McDonalds að marg milljarða dollara veldi, en ferlið var umdeilt: Kroc kom að fyrirtækinu upphaflega sem eigandi sérleyfis ( Franchise ) þegar McDonalds var lítil keðja, en keypti að…

Gefa einkunn

7. Jackie Brown (1997)

  • Hlutverk: Ray Nicolette
  • Afhverju er hún góð: Í þessari Quentin Tarantino mynd leikur Keaton heillandi en ögn klaufalegan fíkniefnalögreglumann.

Jackie Brown

Jackie Brown 1997

Drama, Spennutryllir, Glæpa · 154 mín12 áraIMDb 7.5

Flugfreyjan Jackie Brown er gripin við að smygla "byssu"-peningum yfirmanns síns, um borð í flugvélina sem hún vinnur í. Til allrar hamingju fyrir hana, þá ákveða alríkislögreglumaðurinn Ray Nicolet og LA löggan Mark…

Gefa einkunn

8. Mr. Mom (1983)

  • Hlutverk: Jack Butler
  • Afhverju er hún góð: Þetta er gott dæmi um tök Keaton á gríni. Myndin sló í gegn í miðasölunni og styrkti Keaton í sessi sem aðalleikara í grínmyndum.

Mr. Mom

Mr. Mom 1983

Gaman, Drama · 91 mínÖllum leyfðIMDb 6.6

Jack og Caroline hafa það fínt þar til Jack missir skyndilega vinnuna. Þau ákveða að hann verði heimavinnandi á meðan Caroline vinni úti. En málið er að hann hefur aldrei gert handtak heima við og veit ekki neitt í sinn…

Gefa einkunn

9. Night Shift (1982)

  • Hlutverk: Bill Blazejowski
  • Afhverju er hún góð: Hér er önnur mynd sem sýnir hvað Keaton er góður gamanleikari. Frammistaða hans er sprenghlægileg og minnisstæð.

Night Shift

Night Shift 1982

Gaman · 106 mín6 áraIMDb 6.5

Uppburðarlítill starfsmaður í líkhúsi er aftur færður á næturvaktina þar sem hann þarf að vinna með óþolandi nýliða sem dreymir um að fá frábæra viðskiptahugmynd. Lífið tekur svo skrýtna stefnu þegar vændiskona í…

Gefa einkunn

10. Multiplicity (1996)

  • Hlutverk: Doug Kinney (og klón)
  • Afhverju er hún góð: Hér leikur Keaton margar útgáfur af sömu persónunni, en hver þeirra er með ólíkan persónuleika. Myndin er því gott dæmi um fjölhæfni Keaton og tilfinningu fyrir grínleik.

Multiplicity

Multiplicity 1996

Gaman, Rómantík, Vísindaskáldskapur · 117 mínÖllum leyfðIMDb 6.2

Byggingaverkamaðurinn Doug Kinney finnst sem hann hafi engan tíma fyrir sjálfan sig, allur tíminn fer í vinnu, í að sinna eiginkonunni Laura og dótturinni Jennifer. Þá kemur erfðafræðingurinn Dr. Owen Leeds til…

Gefa einkunn