Grínútgáfa af hrollvekjunni Scream og I Know What You Did Last Summer. Myndin fjallar um hóp af vinsældum miðskólanemum sem grímuklæddur morðingi eltir. Fréttamaður að nafni Hagitha Utslay skrifar fréttir af málinu.
Mer finnst þetta mjög fndin mynd eg get allveg helgið mikið yfir henni eg helda ð allir gera það þessi mynd er eins og þarnascary movie myndonum sem er lika mjög fyndar að allir geta helgið yfir þeim myndum geta hlegið yfir þessari mynd mer finsnt að allir eiga að sja þessa mynd takk fyiri
Shriek if you know what i did last friday the 13th er mjög fyndin og skemmtileg grínmynd sem gerir grín að flestum frægum hryllingsmyndum enn samt er þetta frekar mikill hermiskjóðu-mynd af Sc…
Shriek if you know what i did last friday the 13th er mjög fyndin og skemmtileg grínmynd sem gerir grín að flestum frægum hryllingsmyndum enn samt er þetta frekar mikill hermiskjóðu-mynd af Scary Movie eftir Marlon Wayans. Þetta er líka frekar ódýr mynd og hefur því ekki góðar tæknibrellur og þetta lítur einnig út að vera bara einhver stuttmynd sem nokkrir háskólakrakkar hafa gert bara að gamni. Líka er þessi mynd frá sömu höfundum og gerðu grínmyndina Plump Ficton og eru þeir góðir með húmorinn enn af tveggja klukkutíma mynd finnur maður svona 12 brandara. Tóku víst of lítin tíma að gera hana... Leigið frekar Scary Movie 1 og 2 enn þessa!
Þetta er ágæt mynd,samt ekki jafn góð og scary movie myndirnar.
Sumir brandarar voru góðir en aðrir annaðhvort þvæla eða gamlir brandarar.Höfundar scary movie myndana gerðu grín af k…
Þetta er ágæt mynd,samt ekki jafn góð og scary movie myndirnar.
Sumir brandarar voru góðir en aðrir annaðhvort þvæla eða gamlir brandarar.Höfundar scary movie myndana gerðu grín af kvikmyndum.
brandararnir í þessari mynd eru ekki nærumþví jafn fyndnir.
Þessi mynd er jú algjört rugl frá byrjun til enda, en frábærlega fyndin ef maður er með svokallaðan aulahúmor eins og ég ;) og ef maður er í þessari einu sérstöku týpu af skapi þar s…
Þessi mynd er jú algjört rugl frá byrjun til enda, en frábærlega fyndin ef maður er með svokallaðan aulahúmor eins og ég ;) og ef maður er í þessari einu sérstöku týpu af skapi þar sem maður hlær að hverju sem er. Fín mynd til að hlæja að en hrikaleg efmaður er að leita að kvikmyndalegu meistaraverki...nafnið ætti að segja allt sem segja þarf fyrir flesta...;o)
Þetta er drepleiðinleg mynd! Þetta er illa gerð mynd.
Ég meyna það var gott að gera grín af hrollvekju með því að gera scary movie en að gera svona mynd sem er hunleiðinleg.Ég fann ek…
Þetta er drepleiðinleg mynd! Þetta er illa gerð mynd.
Ég meyna það var gott að gera grín af hrollvekju með því að gera scary movie en að gera svona mynd sem er hunleiðinleg.Ég fann ekkert fyndið við hana húmorinn var svo lélegur.eða það var varla einhver húmor. Að blanda saman nokkrum hrollvekjumyndum er skemmtilegt að horfa á en að horfa á þessa blöndun það er niðurlæging við þessar hrollvekjumyndir. Ógeðslega illa leikin . Ég missti oft út úr söguþráðnum og endirin var versti endir sem hægt er að gera ég meyna það.Og allir sígildu brandararnir voru settir í þetta og það kom ömuglega út.Ég var í sjokki eftir myndina svo ömugleg.
Allar þessar myndir sem hafa verið gerðar með þeirri hugmynd að gera grín að öðrum hrollvekjum hafa allar mistekist, eins og Scary Movie myndirnar(þvílíkt ruglmyndir og leiðinlegar). Og …
Allar þessar myndir sem hafa verið gerðar með þeirri hugmynd að gera grín að öðrum hrollvekjum hafa allar mistekist, eins og Scary Movie myndirnar(þvílíkt ruglmyndir og leiðinlegar). Og svo kemur þetta líka algjöra kjaftæði sem er álíka leiðinleg eins og Scary Movie. Ég mæli engan veginn ekki með þessari mynd.
Það er ekkert að þessari mynd!!! Það eru margir ágætis brandarar þarna. Tom Arnold er snillingur og hann er góður í þessari mynd. Þessi húmor höfðaði allavegna til mín og vina minna…
Það er ekkert að þessari mynd!!! Það eru margir ágætis brandarar þarna. Tom Arnold er snillingur og hann er góður í þessari mynd. Þessi húmor höfðaði allavegna til mín og vina minna. Við erum náttúrulega hálfvitar. Hún er ekkert verri en Scary movie og hún er betri en Scary movie 2.
Alveg hrein og klár niðurlæging við húmor almennt að flokka þennan viðbjóð sem gamanmynd. Þessi mynd getur komið hverjum sem er í argandi fýlu og er hennar eini kostur Tom Arnold. Hann e…
Alveg hrein og klár niðurlæging við húmor almennt að flokka þennan viðbjóð sem gamanmynd. Þessi mynd getur komið hverjum sem er í argandi fýlu og er hennar eini kostur Tom Arnold. Hann er einmitt eigandi þessarar hálfu stjörnu sem splæst er hér og ekki orð um það meir.
Hræðileg mynd. Myndin er eitt stórt kjaftæði! Þessi mynd er ekki einu sinni fyndin. Enn ein mistökin sem gera grín að unglingahrollvekjum og fleiri myndum til. Mér stökk varla bros á vör …
Hræðileg mynd. Myndin er eitt stórt kjaftæði! Þessi mynd er ekki einu sinni fyndin. Enn ein mistökin sem gera grín að unglingahrollvekjum og fleiri myndum til. Mér stökk varla bros á vör við að horfa á hana. Leikararnir eru reyndar verri en myndin, þeir eru hræðilegir. Ég skil ekki sum atriðin eins og þegar morðinginn kemur inn á klósett þar sem stelpa er og breytist morðtilraunin í auglýsingu fyrir Freshmaker og í lokin birtast stafirnir THE END en myndin endar ekki fyrr en þeir koma í þriðja sinn. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með þessa mynd, ég hélt hún yrði allavega fyndin.