Höllin (2010)
"Time is Like the Water"
Heimildamyndin Höllin fangar andrúmsloftið í einni af þekktari byggingum Reykjavíkur, Sundhöll Reykjavíkur, sem hefur í áratugi verið athvarf eldri borgara sem búa í nágrenninu.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →Söguþráður
Heimildamyndin Höllin fangar andrúmsloftið í einni af þekktari byggingum Reykjavíkur, Sundhöll Reykjavíkur, sem hefur í áratugi verið athvarf eldri borgara sem búa í nágrenninu. Vegna stórs hóps tryggra fastagesta og hás starfsaldurs starfsmanna Hallarinnar, eru skilin milli gesta og starfsmanna óskýr. Myndin er heimild um tíma og fólk sem brátt nýtur ekki lengur við. Hún gefur áhorfandanum líka þá tilfinningu að tíminn í Höllinni standi kyrr, að þar sé annar heimur. Myndin er því saga um venjur og endurtekningu. Sögumenn okkar, starfsfólk og gestir, eru sál hússins og myndin sjálf er óður til Hallarinnar og þess fólks sem á Höllina fyrir griðastað. Áhorfandinn kynnist fólkinu, sögum þess og sýn á lífið, og af hverju það sækir Höllina. Sagan er knúin áfram af persónunum sjálfum sem við hittum fyrir þegar við föngum hvunndaginn í Höllinni.
Svipaðar myndir
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Álit notenda
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráEngin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!
Framleiðendur


















