Serena
2014
Hún leyfði engum að standa í veginum
109 MÍNEnska
17% Critics 36
/100 Ung og ástfangin hjón einsetja sér að ná fótfestu í timburiðnaðinum í fjalllendi Norður-Karólínuríkis á kreppuárunum, en leiðin á toppinn verður ekki greið. Serena er byggð á samnefndri skáldsögu eftir Ron Rash og er leikstýrt af hinni margverðlaunuðu Susanne Bier sem gerði m.a myndirnar Den Eneste Ene, Brødre og Hævnen. Sagan hefst árið 1929 í Boston... Lesa meira
Ung og ástfangin hjón einsetja sér að ná fótfestu í timburiðnaðinum í fjalllendi Norður-Karólínuríkis á kreppuárunum, en leiðin á toppinn verður ekki greið. Serena er byggð á samnefndri skáldsögu eftir Ron Rash og er leikstýrt af hinni margverðlaunuðu Susanne Bier sem gerði m.a myndirnar Den Eneste Ene, Brødre og Hævnen. Sagan hefst árið 1929 í Boston þar sem þau George Pemperton og Serena hittast í fyrsta skipti. Þau verða ástfangin og giftast, en halda síðan til Norður-Karólínu þar sem fjölskylda Georges hafði stundað skógarhögg með góðum árangri um árabil áður en kreppan skall á. Þau hjón einsetja sér að endurbyggja fyrirtækið, en þegar Serena kemst að því að George á sér leyndarmál úr fortíðinni sem ógnar framtíð þeirra ákveður hún að grípa til vafasamra úrræða ...... minna