Náðu í appið
Bönnuð innan 12 áraÍ myndinni er sýnd nekt og/eða þar er að finna kynferðislega hegðun eða tilvísanirMyndin vísar til eða sýnir notkun vímuefnaÍ myndinni er ljótt orðbragð

American Hustle 2013

Frumsýnd: 10. janúar 2014

Everyone Hustles To Survive

138 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 92% Critics
The Movies database einkunn 90
/100
Tilnefnd til 10 Óskarsverðlauna, 7 Golden Globe-verðlauna, 13 verðlauna hjá bandarísku gagnrýnendasamtökunum og 10 BAFTA. Fékk BAFTA fyrir handrit, förðun og Jennifer Lawrence fyrir meðleik.

Eitursnjall atvinnusvindlari neyðist til að hjálpa alríkislögreglunni við rannsókn spillingarmáls sem snertir bæði mafíuna og háttsetta embættismenn bandarískrar stjórnsýslu. Christian Bale leikur hér blekkingameistarann Irving Rosenfeld sem ásamt aðstoðarkonu sinni og ástkonu, Sidney Prosser (Amy Adams), hefur lengi leikið lausum hala röngum megin við laganna... Lesa meira

Eitursnjall atvinnusvindlari neyðist til að hjálpa alríkislögreglunni við rannsókn spillingarmáls sem snertir bæði mafíuna og háttsetta embættismenn bandarískrar stjórnsýslu. Christian Bale leikur hér blekkingameistarann Irving Rosenfeld sem ásamt aðstoðarkonu sinni og ástkonu, Sidney Prosser (Amy Adams), hefur lengi leikið lausum hala röngum megin við laganna strik. Það kemur hins vegar í bakið á honum þegar alríkislögreglumaður að nafni Richie DiMaso neyðir þau Sidney til að aðstoða sig við að spenna gildru fyrir mafíuna í Jersey í því skyni að koma upp um alvarlegt spillingarmál. Inn í aðgerðina blandast síðan stjórnmálamaðurinn Carmine Polito (Jeremy Renner), sem veit ekki í hverju hann er lentur, og eiginkona Irvings, Rosalyn (Jennifer Lawrence), sem er búin að fá nóg af framhjáhaldi eiginmannsins og hyggst grípa til sinna ráða Myndin er lauslega byggð á svokölluðu Abscam-hneyksli sem kom upp í Bandaríkjunum á áttunda áratug síðustu aldar. Það byrjaði með rannsókn alríkislögreglunnar á vörusvikum nokkurra svikahrappa, en þróaðist upp í pólitískan skandal þar sem meira en tugur bandarískra embættismanna var að lokum ákærður fyrir mútuþægni og spillingu.... minna

Aðalleikarar

Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn