The Mule
2018
Frumsýnd: 25. janúar 2019
Nobody Runs Forever
116 MÍNEnska
70% Critics 58
/100 Vegna fjárhagsvandræða tekur garðyrkjufræðingurinn Earl Stone upp á því á gamals aldri að smygla eiturlyfjum fyrir mexíkóskan eiturlyfjahring frá landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó til Michigan og Arizona þar sem hann kemur þeim í hendur dreifenda. Sagan er byggð á sönnum atburðum og sækir efniviðinn í grein Sams Dolnick sem nefnist The Sinaloa Cartel’s... Lesa meira
Vegna fjárhagsvandræða tekur garðyrkjufræðingurinn Earl Stone upp á því á gamals aldri að smygla eiturlyfjum fyrir mexíkóskan eiturlyfjahring frá landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó til Michigan og Arizona þar sem hann kemur þeim í hendur dreifenda. Sagan er byggð á sönnum atburðum og sækir efniviðinn í grein Sams Dolnick sem nefnist The Sinaloa Cartel’s 90-Year Old Drug Mule og birtist í The New York Times fyrir nokkrum árum. Þar sagði frá hinum níræða Leo Sharp (sem í myndinni er látinn heita Earl Stone) sem var handtekinn árið 2011 með hátt í 100 kíló af kókaíni í bíl sínum eftir að aksturslag hans hafði vakið athygli lögreglumanns. Í ljós kom að Leo hafði um tíu ára skeið stundað stórfellt kókaínsmygl beint fyrir framan nefið á landamæraeftirlitinu án þess að vekja nokkurn grun. Vakti málið að vonum athygli enda er Leo sennilega elsti maður sem handtekinn hefur verið sem burðardýr auk þess sem hann var nokkuð þekktur innan garðyrkjusamfélagsins í Bandaríkjunum, sérstaklega fyrir ræktun sína á liljum í ýmsum nýjum litaafbrigðum og er eitt þeirra meira að segja nefnt í höfuðið á honum.... minna