The Railway Man
2013
Fannst ekki á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 21. nóvember 2014
HORFT Í AUGU FORTÍÐARINNAR
116 MÍNEnska
67% Critics 59
/100 Sönn saga breska hermannsins Erics Lomax sem var neyddur ásamt þúsundum annarra til að leggja járnbrautina á milli Bang- kok í Tælandi og Rangoon í Burma árið 1943. Bókin The Railway Man eftir Eric Lomax kom út árið 1995 og þykir mögnuð frásögn, ekki bara vegna þess hve vel hún lýsir ánauð þeirra 60 þúsund erlendu hermanna og stríðsfanga... Lesa meira
Sönn saga breska hermannsins Erics Lomax sem var neyddur ásamt þúsundum annarra til að leggja járnbrautina á milli Bang- kok í Tælandi og Rangoon í Burma árið 1943. Bókin The Railway Man eftir Eric Lomax kom út árið 1995 og þykir mögnuð frásögn, ekki bara vegna þess hve vel hún lýsir ánauð þeirra 60 þúsund erlendu hermanna og stríðsfanga sem Japanir neyddu til að leggja járnbrautina frá Bangkok í Tælandi til Rangoon í Burma árið 1943 heldur einnig vegna þess að löngu síðar, eða árið 1995, hitti Eric einn af kvölurum sínum, Japanann Takashi Nagase, augliti til auglitis við brúna yfir fljótið Kwai þar sem segja má að þeir hafi gert upp málin. Sjálfur hafði Takashi þá skrifað metsölubók um reynslu sína og notað peningana til að fjármagna Búddaklaustur sem reist var við brúna, að hans sögn í tilraun til að bæta að hluta fyrir gjörðir sínar, en af þeim 60 þúsund erlendu hermönnum sem unnu verkið, m.a. undir hans harðstjórn, dóu 12.399.... minna