Náðu í appið
Bönnuð innan 16 áraMyndin getur valdið ótta hjá eða er ógnvekjandi fyrir ung börn

Lizzie Borden Took an Ax 2014

Fannst ekki á veitum á Íslandi

Sek eða saklaus?

91 MÍNEnska

Ný mynd eftir Nick Gomez um morðin á þeim Andrew og Abby Borden árið 1892 og réttarhöldin yfir dóttur þeirra, Lizzie Borden, sem var ákærð í málinu. Borden-morðmálið er eitthvert mest rannsakaða morðmál í gjörvallri réttarsögu Bandaríkjanna. Borden-hjónin voru sterkefnuð og bjuggu ásamt dætrum sínum í bænum Fall River í Massachusettsríki... Lesa meira

Ný mynd eftir Nick Gomez um morðin á þeim Andrew og Abby Borden árið 1892 og réttarhöldin yfir dóttur þeirra, Lizzie Borden, sem var ákærð í málinu. Borden-morðmálið er eitthvert mest rannsakaða morðmál í gjörvallri réttarsögu Bandaríkjanna. Borden-hjónin voru sterkefnuð og bjuggu ásamt dætrum sínum í bænum Fall River í Massachusettsríki þar sem Andrew Borden átti og rak m.a. verksmiðjur auk þess að stunda fasteignaviðskipti og sitja í stjórnum fjármálafyrirtækja. Þann 4. ágúst árið 1892 voru þau Andrew og Abby myrt á hrottalegan hátt á heimili sínu með exi. Mikil ringulreið skapaðist við rannsókn málsins af ýmsum ástæðum en svo fór að saksóknari ríkisins ákvað að ákæra Lizzie fyrir morðin. Og fyrir þá sem e.t.v. vita ekki hvernig málið fór er best að segja ekki frá því hér heldur hvetja fólk til að sjá myndina ...... minna

Aðalleikarar

Leikstjórn

Handrit

Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn