Strumparnir 2
2013
(The Smurfs 2)
Fannst ekki á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 31. júlí 2013
Búið ykkur undir óþekktir!
90 MÍNEnska
14% Critics 34
/100 Söguþráðurinn er þessi: Hinn illi galdrakarl Kjartan býr til tvo hrekkjótta litla kalla sem líta út svipað og strumpar, og kallar þá Óþekktarangana ( e. naughties ). Kjartan vonast til að þessir kallar hans hjálpi honum að klófesta hinn dýrmæta strumpatöfraseið. En þegar hann uppgötvar að aðeins alvöru strumpur getur fært honum það sem honum langar... Lesa meira
Söguþráðurinn er þessi: Hinn illi galdrakarl Kjartan býr til tvo hrekkjótta litla kalla sem líta út svipað og strumpar, og kallar þá Óþekktarangana ( e. naughties ). Kjartan vonast til að þessir kallar hans hjálpi honum að klófesta hinn dýrmæta strumpatöfraseið. En þegar hann uppgötvar að aðeins alvöru strumpur getur fært honum það sem honum langar í, og að hann verði að komast yfir leynilegt töfraorð frá Strympu til að breyta óþekktaröngunum í alvöru strumpa, þá ákveður Kjartan að ræna Strympu og fara með hana til Parísar. Í París hefur Kjartan slegið í gegn með galdrasýningu sinni, sem mesti galdrakarl í heimi. Nú þurfa strumparnir að snúa aftur í veröld mannanna og finna aftur vini sína, þau Patrick og Grace Winslow, og bjarga Strympu. Mun Strympa, sem hefur alltaf liðið pínu utangarðs meðal Strumpana, líða betur með óþekktarormunum Vexy og Hackus, eða munu strumparnir sannfæra hana um að hún eigi að eiga heima hjá þeim áfram. Íslensk talsetning: Þórhallur Sigurðsson er Kjartan galdrakarl. Raddir Strumpanna eru m.a. Ævar Þór Benediktsson, Guðjón Davíð Karlsson, Karl Ágúst Úlfsson, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, Stefán Karl Stefánsson, Lára Sveinsdóttir og Álfrún Örnólfsdóttir.... minna