Náðu í appið
Bönnuð innan 16 áraÍ myndinni er ljótt orðbragð

Red 2008

(Redemption)

Fannst ekki á veitum á Íslandi

They should have told the truth.

93 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 71% Critics
The Movies database einkunn 61
/100

Brian Cox fer með hlutverk Avery Ludlow, einræns roskins manns sem býr eingöngu með hundinum sínum, Red, eftir að eiginkonan Mary féll frá. Hann talar ekki mikið við aðra og finnst fátt betra en að sitja við stöðuvatn í nágrenni heimilisins og veiða með hundinn sér við hlið. Einn daginn koma þrír unglingsstrákar, Danny (Noel Fisher), Harold (Kyle Gallner)... Lesa meira

Brian Cox fer með hlutverk Avery Ludlow, einræns roskins manns sem býr eingöngu með hundinum sínum, Red, eftir að eiginkonan Mary féll frá. Hann talar ekki mikið við aðra og finnst fátt betra en að sitja við stöðuvatn í nágrenni heimilisins og veiða með hundinn sér við hlið. Einn daginn koma þrír unglingsstrákar, Danny (Noel Fisher), Harold (Kyle Gallner) og Pete (Shiloh Fernandez) og ætla að ræna peningum af Avery, en þegar þeir fá aðeins 30 dollara upp úr krafsinu ákveður Danny í bræðiskasti að skjóta hund Averys. Þegar Avery fer heim til föður Dannys (Tom Sizemore) til að segja honum hvað gerðist neitar Danny öllu saman og faðirinn vísar Avery á brott. Í framhaldi af því kærir Avery Danny fyrir verknaðinn, en ekkert hefst upp úr því. Það leiðir til þess að Avery ákveður að taka lögin í eigin hendur...... minna


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn