Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Já ég kíkti á Date Movie með vinkonu minni, finnst okkur geðveikt gaman að fara á geðveika grínmynd og hlægja af okkur rassgatið, úff það gerðist ekki á Date Movie. Myndinn er skrifuð af 2 af 6 höfunum Scary Movie myndunm... fannst mér þessir tveir höfundar reyna of mikið að gera grín...endalaust flassback á sama atiðið sem var fyndið fyrstu 2 skiptinn svo varð það þreytt.. myndinn var stundum langdreginn svo komu svona 1 og 1 fyndið atriði... gert er grín af Napoleon Dynamite,Hitch, Mr. & Mrs.,Meet the Parents/Fockers,My Best Friend’s Wedding, Bridget Jones svo einhvað sé nefnd.. ég sat þarna inn í bíósanum með vinkonu minni gáttuð yfir hversu léleg mynd þetta var... Jason Friedberg og Aaron Seltzer reyndu OF mikið að gera myndinna fyndna að hún varð bara alls ekki fyndinn...
Síðan hvenær var King Kong deitmynd?
Alltaf þykir mér gaman að sjá hressa grínmynd sem hefur eitthvað nýtt og skemmtilegt fram að færa. Date Movie er því miður ekki slík mynd, og hvergi nálægt því!
Hún notfærir sér svipaða grunnhugmynd og Scary Movie-myndirnar (ásamt líklega Not Another Teen Movie – ef einhver man þá enn eftir henni) hafa notast við nema nú eru það formúlukenndu, rómantísku klisjurnar sem fá að kenna á því, eða svo hélt ég a.m.k.
Jú jú, myndin skellir nokkrum titlum í hrærivél á borð við My Big Fat Greek Wedding, My Best Friend’s Wedding, Bridget Jones, Pretty Woman en útaf einhverjum ástæðum þá eru þarna Meet the Parents/Fockers, Napoleon Dynamite, Hitch, Mr. & Mrs. Smith, Kill Bill (?), Lord of the Rings (??), King Kong (!!)... Ég get haldið lengi áfram.
Allavega, sumum þykir þetta örugglega voða sniðugt og nett fyndið. Mér persónulega fannst þessi mynd vera ófyndin út í gegn, og meira niðurdrepandi til áhorfs.
Hún er furðulega þreytt og í sumum tilvikum langdregin. Hún kemur með eitt og eitt skot sem hægt er að glotta yfir, eða mig minnir svo... Get hins vegar ekki sagt að einhver ákveðin augnablik hafi staðið upp úr.
Date Movie er bara pjúra tímasóun, og það er lýsing sem ég hika ekki við að fullyrða. Í bland við það er myndin leiðinleg og örvæntingarfull, og ekki sé ég fyrir mér að nokkur einstaklingur undir ca. 14 ára aldri muni sjá eitthvað gott í þessu.
2/10

Ouch. Þetta er ömurleg mynd hún er fokking hræðileg ég glotti ekki einu sinni aldrei í gegnum alla helvítis myndina (afsakið orðbragðið en þess mynd á það skilið) í alvöruni fólk þetta er ömurleg mynd hún er nágkvæmlega ekkert fyndin hún er illa leikin og illa leikstýrð. það er oftar en einu sinni reynd að gera grín af öðrum og miklu betri myndum og mistekst það alveg hræðilega eins og allt annað sem var reynd í þessari mynd. Að horfa á þessa mynd var eins og einhver hefði stungið nál í augun á mér og sprautað blásýru í þau og eftir það rifið þau út og nauðgað þeim. þetta er með verstu myndum sem ég hef nokkrun tíman séð og mæli ég eindregið með að þið horfið aldrei á hana og forðist hana. ekki horfa á þessa mynd !!!!!!
Þegar ég fór á þessa mynd bjóst ég við að sjá eitthvað svipað því sem ég sá í auglýsingunni. Var reyndar nokkuð spenntur fyrir henni. Ótrulegt hvað ég hafði rangt fyrir mér! Það eina sem ég sá var það sem var í auglýsingunni, nema hvað að það voru aðeins lengri útgáfur af bröndurunum. Brandararnir voru langdregnir og margir bara ekkert fyndnir. Þetta er mynd sem virðist skemmtileg og fyndin en langdregnir brandarar og lítill söguþráður skapa hina fullkomnu tíma- og peningaeyðslu og svei mér þá ég mæli gegn því að fólk fari á þessa mynd þar sem hún er langt í frá penginganna virði!
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Jason Friedberg, Aaron Seltzer
Vefsíða:
Aldur USA:
PG-13
Frumsýnd á Íslandi:
31. mars 2006