Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Tímasóun!
Ég sat í bíósal í tæplega 80 mínútur eða svo, og ég sá eftir þessum 80 mínútum um leið og ég stóð upp úr sætinu. Þessi mynd var svo mikil tímasóun, peningasóun og ég bara veit ekki hvað. ég meina það, twilight myndirnar gera eiginlega grín af sér sjálfar og það var fyndnara en þetta. Miðað við efnið sem var verið að nota gæti verið hægt að gera mjög, mjög fyndna mynd. En nei, þetta var eins slæmt og hægt var. ég hló kanski í mesta lagi tvisvar, annars var ég bara að bíða eftir að myndin væri búin, og ég gæti komist heim að gera eithvað gáfulegt.
Ég get sagt með hreinni samvisku að þetta er versta mynd sem ég hef séð, bara síðan ég man eftir mér.
1/10

Svona vondur húmor skaðar heilsuna
Ég ætla að byrja á því að hemla á reiði minni og reyni að skrifa eins faglega umfjöllun og ég get, og reyni að hafa hana eins stutta og hægt er.
Í fyrsta lagi þá þarftu að vera virkilega, virkilega ófyndinn einstaklingur til þess að geta klúðrað heilli spoof-mynd um Twilight-seríuna (ásamt öllu vampíruæðinu sem fylgdi með) því fyrirbærið gerir nánast grín að sér sjálfu. En í stað þess að vera með einn ófyndinn einstakling á bakvið kameruna hér, þá eru þeir tveir. Það er ekki oft þar sem ég ræðst persónulega á leikstjóra með orðum en Jason Friedberg og Aaron Seltzer eru FÁVITAR! Algjör húmorslaus smábörn sem sérhæfa sig í þeirri list að kveikja í peningum í 80 mínútur. Þeir eru nánast jafn heftir í kvikmyndagerð og Tommy Wiseau, en a.m.k. fær sá gaur mann til að hlæja – oft!
Vampires Suck er að vísu ekki versta myndin þeirra (skal alveg viðurkenna að einn af hverjum 105 bröndurum virkaði á mig), en hverjum er ekki skítsama?? Besta mynd þessara manna er hvort eð er eitt af því alversta sem ég hef á minni 23 ára ævi séð, þannig að framför þeirra koma oftast í hænuskrefum. Það sem mér þótti samt sorglegast við Vampires Suck er hversu áberandi mikill peningur fór í sviðsmyndir, leikmuni og búninga. Í alvöru talað... hvaða stúdíó gefur mönnunum sem gerðu m.a. Meet the Spartans og Disaster Movie heilar 20 milljónir til þess að gera grín að Twilight og öðrum vampírumyndum þegar þeir hefðu léttilega getað fengið einhverja hópa af unglingum til að gera það sama fyrir minni pening, og eflaust fyndnara.
Það er löngu orðið ljóst að Friedberg og Seltzer hata sitt eigið líf. Með því að gera sífellt fleiri svona ógeðfelldar spoof-myndir eru þeir að gera sig að einhverjum hötuðustu „kvikmyndagerðarmönnum“ samtímans, og það líður ekki langt þar til menn verða byrjaðir að ráðast á þá með brotnum glerflöskum úti á götu. Það var einu sinni tími þar sem spoof-myndir höfðu einhvern lúmskan sjarma við sig, og menn eins og David Zucker og Jim Abrahams vissu hvað þeir voru að gera. Það er ansi djarft að segja að Friedberg og Seltzer hafi persónulega slátrað spoof-mynda geiranum og grafið hann í sand, en það er dagsatt! Við þurfum fleiri myndir eins og Black Dynamite til að rétta þessu öllu við.
2/10 - Ef þér líkar í alvörunni við þessa mynd, þá vorkenni ég þér. Því miður.

Um myndina
Leikstjórn
Jason Friedberg, Aaron Seltzer
Handrit
Jason Friedberg, Aaron Seltzer
Kostaði
$20.000.000
Tekjur
$80.547.866
Vefsíða:
Aldur USA:
PG-13
Frumsýnd á Íslandi:
20. ágúst 2010
Útgefin:
20. janúar 2011
Bluray:
20. janúar 2011