Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Sé eftir því að hafa horft á þessa mynd. Alveg afskaplega léleg mynd. Það er ekki nóg að hafa Ashton Kutcher og Töru Reid(sem mér finnst reyndar sérlega pirrandi). Myndin á að vera fjörugur farsi en er í reynd ekkert annað en pínleg þvæla. Maður hefur enga samúð með persónunum.
Það sem margir farsaframleiðendur klikka oft á er að áhorfendur finni samúð gagnvart persónunum. Ég get kannski fengið samúð með fólki sem er sérlega óheppið og ratar í einhverja vitleysu. Ég finn aftur á móti ekki til samúðar með fólki sem sökum einskærrar heimsku og sauðahátts kemur sér í vandræði.
Það er hægt að taka þessa mynd saman í tveimur orðum: Pínleg þvæla. Get með engu móti mælt með þessarri mynd, látið hana vera.
Ég myndi ekki mæla með þessari mynd við neinn. Misheppnuð og fyrirsjáanleg og pínlegt að sitja yfir henni. Þar að auki leikur Tara Reid í henni sem að mínu mati segir mikið til um hvernig þessi mynd er. Til að upplifa sömu skemmtun og þessi mynd býður upp á má allt eins horfa á skjáleikinn í ríkissjónvarpinu í 90 mínútur.
Þessi mynd er eins og margar aðrar myndir en hún er samt svona mynd sem flestir mundu segja hei leigjum þessa mynd hún er örugglega ágæt. Já það mætti segja það þetta er svona mynd eins og margar aðrar bytjar með því að alðal gaurinn fær vinnu svo kynnist hann dóttur yfirmannsins og þau verða hrifin. Svo er eitthvað svona djamm og kelirí en auðvitað fattar kallinn þetta og gaurinn verður rekinn. S.iðan er gellan svo leið að kallinn talar við gaurinn og bíður honum aftur vinnuna. Alltverður gott aftur og happy end. Þetta er voðalega típísk bíómynd. reyndar hefv ég ekki séð hana en get n´æu bara dæmt hana eins og margar svona tíbískar myndir samt eru þesssar myndir allaf allt í lagi og maður verður nokkuð sáttur á eftir.
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Aldur USA:
PG-13
Frumsýnd á Íslandi:
26. september 2003
VHS:
18. febrúar 2004